Fréttablaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 43
9
Örlygur segir að þróun skólans hafi
verið ör frá upphafi og hefur nem-
endafjöldinn næstum fjórfaldast
frá upphafi skólans. Námsúrvalið
hefur einnig aukist til muna. „Við
vorum með margar brautir í upp-
hafi, bæði verknám og bóknám,
en núna er þetta enn fjölbreyttara.
Við kennum til dæmis á mörgum
stöðum, meðal annars á Litla-
Hrauni og Sogni,“ útskýrir Örlygur
með bros á vör.
Stærsta nýjungin í námsúrval-
inu um þessar mundir hjá FSu eru
þrjár íþróttaakademíur. Það sem
kom einmitt þessum akademíum
af stað var nýtt íþróttahús skól-
ans sem tekið var í notkun árið
2004. Enn meiri nýjung er sérstök
hestamennskubraut, sem er bæði
bókleg og verkleg. „Við erum að
þróa þetta áfram og síðan sjáum
við hvernig gengur,“ segir Örlygur
og samþykkir að varla sé hægt að
finna sunnlenskara nám.
Yfir 900 nemendur stunda nú
nám í dagskólanum hjá FSu en
um 5 prósent nemenda koma ann-
ars staðar frá en af Suðurlandi.
„Ég held að sérstaða skólans felist
í fjölbreytninni og að við erum
raunverulega að reyna að þjón-
usta alla nemendur,“ segir Örlyg-
ur. „Við viljum þróast áfram sem
framhaldsskóli og höfum áhuga
á því að efla menntun á Suður-
landi. Við viljum líka halda áfram
að auka fjölbreytnina hjá okkur
en einnig að taka þátt í háskóla-
væðingu Suðurlands, hvernig sem
henni verður háttað. Skólinn hefur
alltaf verið á uppleið og við vonum
að það haldi áfram,“ segir Örlygur
bjartsýnn að lokum.
Alltaf á uppleið
Örlygur Karlsson, starfandi skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurlands (FSu), þekkir vel til starfsemi skólans enda
unnið við skólann frá því að hann var stofnaður.
{ suðurland }