Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 56
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Kristinn
Jónsson
Skriðustekk 22, Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala, föstudaginn
1. desember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 7. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Sesselja Guðmunda Sigurðardóttir
Helgi Sigurður Guðmundsson Sigrún Sjöfn Helgadóttir
Stefanía Guðríður Guðmundsdóttir
Kristín Helga Guðmundsdóttir Vilhjálmur Geir Siggeirsson
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu
við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
Sigurbjörns Þorleifssonar
Maríubaugi 123, Reykjavík.
Hulda Fríða Ingadóttir
Þorleifur Sigurbjörnsson Catherine Elisabet Batt
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Ármann Fr. Ármannsson
Ingi Guðmundsson Hildur Pálsdóttir
Jón Ó. Guðmundsson Erla Guðný Gylfadóttir
Andri Ingason Birta Ingadóttir
Sara Huld Ármannsdóttir Thelma Huld Ármannsdóttir
Alexander Batt Þorleifsson Guðný Dís Jónsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðjón Ottó Bjarnason
frá Böðvarsholti, Ennisbraut 18, Ólafsvík,
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 2. desember.
Kristín Jóna Guðjónsdóttir Gunnar H. Hauksson
Bjarni Guðjónsson Bjarney Guðmundsdóttir
Jóhann Pétur Guðjónsson Þórey Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, vinur, bróðir okkar,
mágur og frændi,
Ásgeir Hilmar Jónsson
Bræðraborgarstíg 32, Reykjavík,
sem lést af slysförum sunnudaginn 26. nóvember,
verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn
6. desember kl. 15.00.
Þorbjörg Eiríksdóttir
Bára Bryndís Sigmarsdóttir
Jón Guðmundsson Guðný Ragnarsdóttir
Jóna Halldórsdóttir Svanur Pálsson
Ragnhildur Þórólfsdóttir
og systkinabörn.
40 ára
Krúsa mamma
Svæða- og viðbragðsfræðingur
Eiðistorgi 9, Seltjarnarnesi,
er fertug í dag
Trausti og Tryggvi
„Allir okkar draumar geta
ræst ef við höfum hugrekkið
til að láta þá rætast.“
Tónskáldið Mozart deyr
Skemmtistaðurinn Glaumbær, sem rek-
inn var í húsinu að Fríkirkjuvegi 7, þar
sem Listasafn Íslands er nú til húsa, á
sér stað í hug og hjarta margs Íslend-
ingsins. Hann var vinsælasti skemmti-
staðurinn á sjöunda áratugnum, eða allt
þar til að húsið skemmdist mikið í elds-
voða aðfaranótt 5. desember 1971. Nú
eru því liðin 35 ár frá því að fastagestir
Glaumbæjar voru sviptir viðverustað
sínum.
„Þetta var lang, langvinsælasti stað-
urinn á þessum tíma,“ sagði Ólafur
Laufdal í samtali við Fréttablaðið, en
hann vann sem þjónn í Glaumbæ í nokk-
ur ár. „Það var heldur ekki um svo
marga staði að ræða fyrir ungt fólk á
þessum tíma,“ bætti hann við. Ólafur
segir Glaumbæ hafa verið barn síns
tíma. „Hann var í raun-
inni Bítlabarn. Allar
vinsælustu hljómsveit-
ir landsins á þessum
tíma, eins og Hljómar,
Rooftops og Óðmenn,
tróðu upp þar. Þessar
hljómsveitir, og
fólkið sem hlust-
aði á þær, voru
heldur ekki
gjaldgengar
inn á staði
eins og Hótel Sögu,“ sagði Ólafur. Þær
erlendu hljómsveitir sem lögðu leið sína
til landsins á meðan Glaumbær var og
hét komu einnig fram þar, enda Glaum-
bær eini staðurinn með stórt svið, að
sögn Ólafs. Síðustu tónleikar Hljóma
fóru fram á sviðinu í Glaumbæ og segir
Ólafur hafa verið fullt út úr dyrum. „Í
portinu fyrir framan staðinn og út eftir
götunni voru hundruð manna sem kom-
ust ekki inn,“ sagði hann.
Ef Glaumbær var Bítlabarn voru
fastakúnnar staðarins það líka. „Á þess-
um tíma fóru allir í Karnabæ að versla.
Tískan var líka að breytast mikið, þarna
er innflutningur á tískufatnaði rétt að
hefjast. Það hefði heldur ekki hvarflað
að neinum að fara í óburstuðum skóm út
á lífið,“ sagði Ólafur. „Þjónarnir voru
meira að segja í smóking,“ sagði hann
hlæjandi. Hann var umkringdur fasta-
kúnnum og segir marga merkismenn
þjóðfélgsins hafa vermt sætin við bar-
inn. „Þarna voru Davíð Oddsson og Ólaf-
ur Ragnar Grímsson. Í rauninni var
þetta ákveðin kynslóð, allir sem fóru út
að skemmta sér á annað borð komu á
Glaumbæ,“ sagði Ólafur.
Endalok staðarins höfðu í för með
sér grát og gnístran tanna hjá mörgum
skemmtanaþyrstum borgarbúum. Ólaf-
ur segir sorgina hafa verið mikla, en
staðurinn lifi kannski sterkar í minning-
unni fyrir vikið. „Hann var hreinlega
miðpunktur ákveðinnar menningar,“
sagði hann.
AFMÆLI FÆDDUST ÞENNAN DAG