Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 58

Fréttablaðið - 05.12.2006, Síða 58
Ég er íhalds- seggur hvað varðar íslenska tungu. Frá því að ég man eftir mér hef ég geiflað mig og grett yfir þágu- fallssýki og gert mitt ítrasta til að bjarga þeim sem lent hafa í klóm þess ógurlega sjúkdóms, ég hef leiðrétt fleiri en ég kæri mig um að muna og örugglega farið í taugarnar á enn fleirum vegna tungumálafasisma míns. Á vafri mínu um netheima hef ég rekið mig á ófáar bloggsíður þar sem mál- og stafsetningar- villur vaða uppi. Ég tek eina og eina stafsetningarvillu svo sem ekkert sérstaklega inn á mig, en ég get ekki annað en dæst þegar annað hvert orð í færslu er skammstafað og hitt er stafsett vitlaust. Ég loka augum fyrir sms- og msn-skilaboðum sem vaða í skammstöfunum á borð við lol, gg, omg og nkl. Ég veit ekki einu sinni almennilega hvað þær þýða, og hef engan áhuga á að kynna mér það nánar. Fyrir nokkru síðan gafst mér kostur á að fylgjast með samtali tveggja unglingsstúlkna í bíl sem ég var einnig farþegi í. Ég get hins vegar ekki haldið því fram að ég hafi skilið það. Inn á milli leyndust vissulega orð sem ég hef tekið mér í munn, en bróðurpart- urinn var einhvers konar inter- net-talmál sem ég þekki ekki. Í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær spyr Guðmundur B. Krist- mundsson, sem stóð að rannsókn á lestrar- og ritfærni Íslendinga ásamt Elísabetu Arnardóttur, hvort ekki ætti að nýta þá hvatn- ingu sem skapast af nýrri tækni, svo sem bloggi, sms-um og msn-i, til að vinna öðruvísi með mál og málhegðun í skólanum. Ég verð að segja að ég á erfitt með að sjá hvernig aukin msn- og sms-notk- un á að auðga íslenska tungu. Þessi fyrirbæri heita meira að segja kjánalega stafsettum nöfn- um. Sjáðu! Nýju stelpuna! Vá, haltu mér fast! Rólegur vinur, rólegur! Hvernig er hægt að vera svona sæt!? Hvernig er það eiginlega hægt! Nákvæm- lega. Hugsaðu þér hvernig væri að hafa hana sem kærustu, þetta bros, þessi augu þessi líkami! Bara ef hún væri fyrir nördalega og vandræðalega stráka værir þú í góðum málum. Jæja Palli minn, varstu hræddur eftir allar hryllingsmyndirnar? Þú segir engum, er það nokkuð? Ég var bara hræddur við húsið! Brakið, smellirnir, dynkirnir og vatnslagnirnar ... Angrar það þið aldrei Nei, ekki svo mikið, mamma þín hrýtur hærra en þetta allt! En heppinn. Jóhannes! Hvað kosta 127 “Láttu þér batna kort”? Við erum í Ruslavinafélaginu! Ruslavinafélagið? Hvar heyrðirðu það? Í bók, sem ég fann í ruslinu! Krakkar mínir, það sést hvergi orðið í gólfið! Nú verðið þið að taka aðeins til. Allt í lagi Allt í lagi Nú skulum við rýma smá skika á gólfinu! Ég næ í skóflu til að moka í hrúgu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.