Fréttablaðið - 05.12.2006, Side 60
!
Kl. 13.00
Yfirlitssýning á verkum Drafnar
Friðfinnsdóttur stendur yfir í Lista-
safni Akureyrar. Dröfn lét mikið að
sér kveða í íslensku listalífi og hasl-
aði hún sér völl í einum erfiðasta
geira grafíklistarinnar, tréristunni.
Opið alla virka daga nema mánu-
daga frá 12 til 17.
Blásarakvintett Reykjavíkur og
félagar halda sína árlegu seren-
öðutónleika í 26. sinn í kvöld. Í til-
efni af 250 ára afmæli Mozarts
leika þeir félagar kvöldlokkuna
„Gran Partita“ K 361 sem samin
er fyrir þrettán blásara en í dag
er dánardægur tónskáldsins. Að
sögn Einars Jóhannessonar klar-
inettuleikara er þar um að ræða
sérlega auðugt og ægifagurt verk.
„Leikskáldið Peter Shaffer notar
til að mynda kafla úr hæga þætt-
inum í verki sínu Amadeus þegar
tónskáldið Salieri er að rífast við
guð. Þetta verk er eins og guðlega
innblásið eins og svo margt eftir
Mozart, ótrúlega fjölbreytt og vel
skrifað. Við skemmtum okkur
alltaf konunglega við að leika
það,“ segir Einar.
Langt er síðan verkefni þetta
var á efnisskrá kvintettsins og
segir Einar tíma kominn til að
endurnýja kynnin af því. Tón-
leikahópurinn er stór að þessu
sinni en hann skipa óbóleikararn-
ir Daði Kolbeinsson, Peter
Tompkins og Sigurður Ingvi
Snorrason, fagottleikarnir Haf-
steinn Guðmundsson, Rúnar Vil-
bergsson og Brjánn Ingason,
hornleikararnir Joseph Ognibene,
Þorkell Jóelsson, Lilja Valdimars-
dóttir og Emil Friðfinnsson, Einar
Jóhannesson sem leikur á klarin-
ett og bassethornleikararnir
Kjartan Óskarsson og Rúnar Ósk-
arsson. Með sveitinni leikur einn-
ig Jóhannes G. Georgsson á
kontrabassa.
Tónleikarnir fara fram í Frí-
kirkjunni í Reykjavík og hefjast
kl. 20.
Guðlega innblásið
Ólafur Kjartan Sigurðarson
fær frábæra dóma á Bret-
landi fyrir frammistöðu
sína í titilhlutverki óper-
unnar Rigoletto eftir Verdi.
Söngvarinn kveðst taka
skottúr heim til Íslands til
að komast í jólaskap.
Ólafur Kjartan hefur sungið hlut-
verk Rigolettos undanfarið hálft
ár, fyrst hjá Opera Holland Park
og síðan hefur hann ferðast um
Bretland með Opera North sem er
eitt af fjórum stærstu óperuhús-
unum þar í landi.
Ólafur Kjartan hefur leyst af tvo
fræga baritóna fyrir Opera North
og á dögunum hljóp hann til dæmis
í skarðið fyrir Alan Opie á sýningu
hópsins í Newcastle og fékk lof-
samlega dóma fyrir frammistöðu
sína. Gagnrýnendur hafa sagt
frammistöðu hans í hlutverki
Rigolettos meistaralega og kraft-
mikla. Að sögn fær íslenski barit-
óninn hárin til að rísa á höfðum
áheyrendanna og er haft eftir
gagnrýnanda The British Theatre
Guide að leikur hans og söngur
myndi heild sem jaðri við upplifun
hins sanna Rigoletto.
„Þetta er búið að vera skemmti-
legt stím en fyrir mig er það stórt
og mikilvægt skref að komast að
hjá Opera North,“ segir Ólafur
Kjartan. „Í kjölfar þessarar vel-
gengni var mér boðið hlutverk
Fords í óperunni Falstaff sem
verður sett upp á komandi hausti
og hef ég ákveðið að þiggja það
glæsilega boð.“ Fleiri vegtyllur
hafa einnig hlotnast Ólafi Kjartani
því á dögunum fékk hann sérstaka
viðurkenningu áhorfenda hjá
Opera Holland Park. „Hjá þeim er
ákveðinn hópur áhorfenda sem
eru fastir áskrifendur að sýning-
um þeirra. Þessi hópur greiðir
atkvæði um bestu frammistöðu í
kven- og karlhlutverki á hverju
sýningartímabili og mér var sýnd-
ur sá heiður að þessu sinni. Að fá
viðurkenningu fyrir Rigoletto er
bæði skemmtilegt og gagnlegt
fyrir mig – hann virðist ætla að
reynast mér vel.“
Söngvarinn er samt á lang-
þráðri heimleið en á döfinni eru
tvennir jólatónleikar heima á
Íslandi. Hann mun syngja á jóla-
tónleikum á Akureyri næsta laug-
ardag ásamt Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Karlakór Dalvíkur
og Huldu Björk Garðarsdóttur
sópransöngkonu undir stjórn Guð-
mundar Óla Gunnarssonar en á
sunnudaginn verða stórtónleikar í
Salnum í Kópavogi þar sem Ólafur
Kjartan kemur fram ásamt fleiri
góðum listamönnum. „Ég ætla að
taka heimkomuna með trukki og
reyna að komast í jólaskap eins
fljótt og hægt er,“ segir söngvar-
inn sposkur.
Jólafríið verður samt óverulegt
þetta árið því framundan er einnig
stórt verkefni í óperunni í Saar-
brücken í Þýskalandi þar sem
Ólafur Kjartan mun syngja titil-
hlutverkið í óperunni Kullervo.
„Ég verð með hausinn í kafi í
finnskri þunglyndisóperu allan
desembermánuð en það fer alveg
ágætlega við skammdegið,“ segir
hann að lokum.
David Gieselmann, höfundur leik-
ritsins um Herra Kolbert, verður
viðstaddur uppfærslu hátíðarsýn-
ingar Leikfélags Akureyrar á
verkinu næstkomandi laugardag.
Höfundurinn þekkist boð félags-
ins í kjölfar afar jákvæðra dóma
og viðbragða áhorfenda en sýn-
ingin hefur hlotið næsta einróma
lof.
Verk Gieselmanns hafa verið
sýnd um allan heim en Herra Kol-
bert er hans þekktasta verk og
hefur verið sýnt um nær alla Evr-
ópu auk Bandaríkjanna, Ástralíu
og Suður-Ameríku. Gieselmann
ólst upp í Darmstadt í Þýskalandi.
Hann er leikari og leikstjóri en
lauk svo námi frá Listaháskólan-
um í Berlín í handritaskrifum árið
1998 og setti í framhaldinu upp
fjölda eigin leikverka. Hið virta
Royal Court höfundaleikhús í
London bauð honum að taka þátt í
leikritasmiðjum árið 1999 og 2000,
en þar var leikritið Herra Kolbert
frumsýnt. Verkið hlaut mikið lof
og hefur síðan verið sýnt víða um
heim þar sem það hefur vakið
verðskuldaða athygli enda beitt og
ágengt þrátt fyrir ómótstæðilegan
húmor.
Verkið Herra Kolbert var frum-
sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í
október en sýningum lýkur 16.
desember. Tekið skal fram að sýn-
ingin er ekki væntanleg til Reykja-
víkur, þrátt fyrir fjölda fyrir-
spurna og áskorana og verða
áhugasamir því að drífa sig norð-
ur í land til að fá notið þessarar
leikhúsreynslu. Nánari upplýsing-
ar má finna á heimasíðu leikfé-
lagsins, www.leikfelag.is.
Höfundur Kolberts í heimsókn
Spaðarnir spila í Iðnó
Dustin Hoffman sagði í síðustu
viku að einn af sínum stóru glæp-
um í lífinu hefði verið að vinna
ekki með Fellini þegar honum
bauðst það. Hann setti fyrir sig að
Fellini döbbaði allt tal eftir á. Dust-
in vildi taka það upp á tökustað og
bauðst til að borga þá upptöku. Nei,
nei, sagði Frederico og hló að Kana-
stráknum. Þannig missti Dustin af
Fellini. Myndin sem kom til álita
sem samstarfsverkefni þeirra var
La cittá delle donne (1980) eða
Kvennabærinn eins og hún hefur
verið kölluð á íslensku. Marcello
Mastroianni fékk rulluna.
Á sínum tíma var litið á verkið
sem háðslega meðferð á kven-
rembunni. Karlmaður eltir konu
sem hann hrífst af í lest inn á hótel
þar sem hann lendir á yfirgengi-
lega femíniseraðri kvennaráð-
stefnu. Þarna koma fyrir margvís-
legar týpur, allt frá einlægum
karlhöturum, hórum og tánings-
stúlkum upp í mjúkar og móður-
legar eldri konur. Konurnar hafa
völdin alla myndina í gegn: er Fell-
ini að fjalla hér um martröð flagar-
ans, sem í þessari stöðu ræður ekki
neitt við neitt?
Í kvöld má sjá þessa mynd í
Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum
Kvikmyndasafns Íslands og hefst
sýningin kl. 20. Myndin er með
íslenskum texta.
Í fangi kvenna