Fréttablaðið - 05.12.2006, Side 65
ásamt Guðmundi Péturssyni
JÓLATÓNLEIKAR
7. desember kl. 20:30 í Fríkirkjunni í Reykjavík
14. desember kl. 20:30 í Hveragerðiskirkju
Nánari upplýsingar á kk.is
Miðasala á midi.is og verslunum Skífunnar
Styrkt af alþýðu Íslands
KK & ELLEN
Bókin How The World Will Change
With Global Warming eftir Trausta
Valsson, skipulagsfræðing og arki-
tekt, er dálítið einkennileg.
Þegar ég byrjaði að lesa hana
taldi ég að um hreinræktað vísinda-
rit væri að ræða. Ég hélt að höfund-
urinn væri agaður, nákvæmur,
drægi ekki vafasamar ályktanir
eða héldi fram fjarstæðum. En
bókin er ekki þannig.
Helsta umfjöllunarefnið í bók
Trausta er hækkun meðalhita á
jörðinni síðastliðin árhundruð og í
framtíðinni. Þessi hnattræna hlýn-
un hefur verið kölluð mikilvægasta
úrlausnarefni mannkynsins.
Trausti útskýrir hvernig meðal-
hiti hefur hækkað á jörðinni frá 0
upp í 0,8 gráður, frá lokum nítjándu
aldar. Hlýnunin hefur orðið sökum
aukins bruna mannsins á ýmiss
konar jarðefnaeldsneyti eins og
kolum, olíu og gasi. Kolefnisloft-
tegundir sem myndast við þennan
bruna berast út í andrúmsloftið og
valda hlýnuninni.
Ef svo fer sem horfir og maður-
inn gætir ekki betur að því hvernig
hann gengur um náttúruna gæti
meðalhitinn á norðurhveli farið upp
í þrettán gráður á næstu 150 árum,
en hann var um 0 gráður árið 1900.
Á sama tíma gæti hitastig við mið-
baug hækkað; þar yrði ólíft sökum
hita, þurrka og vatnsskorts.
Sú umfjöllun hvernig íshellan á
norðurhveli jarðar mun þiðna með
hlýnuninni gæti haft mikil áhrif á
íslenskt samfélag að mati Trausta.
Eftir því sem ísinn verður minni
þeim mun meiri líkur eru á að sigl-
ingaleiðin um Beringssund yfir í
Kyrrahafið og til Ameríku og Asíu
opni fyrir aukinni umferð skipa um
landið. Að mati Trausta gæti Ísland
orðið að mikilvægri umskipunar-
höfn fyrir vöru- og olíuflutninga í
breyttum heimi − talið er að um tut-
tugu prósent af olíubirgðum jarðar
séu undir íshellunni.
Þetta eru forvitnilegar og
skemmtilegar pælingar hjá höf-
undinum, en ég viðurkenni að ég
hef ekki vit til dæma um hversu
marktækar þær eru út frá þeim
forsendum sem hann dregur álykt-
anir sínar út frá. Óháð því þá er
skrítið að velta því fyrir sér að mis-
notkun mannsins á vísindum og
tækni geti haft þær afleiðingar á
umhverfið að Ísland verði að mikil-
vægum áningarstað skipa í úthafs-
siglingum í framtíðinni.
Þá er það moldviðrið. Þegar Trausti
predikar lífsspeki sína í bundnu og
óbundnu máli verður bókin neyðar-
leg. Hann birtir margar af helstu
hugmyndum bókarinnar í ljóðum á
spássíum bókarinnar: „Að berjast
ekki gegn breytingum/Er sú lexía
sem menn þurfa að læra./ Hin nýja
leið í lífinu er að taka breytingum
opnum örmum.“
Trausti hefur komist að þeirri
niðurstöðu að heimurinn tekur stöð-
ugum breytingum, meðal annars
vegna hugmynda sinna um hnatt-
ræna hlýnun. Þessi hugmynd hans
um óumflýjanlegar breytingarnar
eru leiðarstef í bókinni: „Nútíma-
maðurinn er staðnaður/ í háttum
sínum./ Þetta er í mótsögn/ við eðli
heimsins.“
Auk þess segir Trausti okkur að
það sé eitt af einkennum mannsins
að lifa í núinu og vera hræddur við
breytingar. Maðurinn þarf að líta í
kringum sig og átta sig á því að
heimurinn er lifandi heild og að
náttúran er í sífelldri hringrás.
Trausti setur ýmislegt fleira
þessu líkt fram í gegnum alla bók-
ina, með viðeigandi upphrópunar-
merkjum og endurtekingum, og
lesandi fær það á tilfinninguna að
höfundurinn vilji fá hann til sjá
ljósið sem hann einn sér. Þess vegna
er bókin á köflum eins og trúar- en
ekki vísindarit.
Höfundurinn leggur þessa heim-
spekilegu línu í byrjun bókarinnar
og tengir nánast hvað sem er við
spekina til að gera málflutning sinn
trúanlegri. Ég skil aftur á móti ekki
hvernig þessi vasaheimspeki
kemur hnattrænni hlýnun við.
Helsti gallinn á bókinni er að margt
í henni virðist ekki tengjast umfjöll-
unarefninu.
Trausti birtir ólíklegustu bóka-
kápur á spássíum: allt frá vísinda-
heimspekiriti til ritgerðarsafns
eftir listgagnrýnanda, riti eftir fjöl-
miðla- og framtíðarfræðing, vís-
indaskáldsögu og ferðabók til pól-
anna.
Í myndatextunum segir hann að
nútímalist hjálpi okkur að venjast
breytingum með því að verða vön
því sem við höfum ekki séð áður og
að ferðabækur um pólferðir séu
áhugaverðar. Hann annaðhvort
sleppir því að fjalla um þessar
bækur eða gerir það í svo miklu
framhjáhlaupi að lesandi spyr sig
hvaða tilgangi þær þjóni í umfjöll-
uninni.
Svo minnist hann á sögu- eða
bókmenntaleg atriði sem hafa ekk-
ert með hnattræna hlýnun að gera;
goðsagnir, Adam og Evu og kross-
ferðirnar. Öll þessi umfjöllun virð-
ist vera leið að því markmiði
Trausta að móta heildræna lífs-
speki sem byggir á hugmyndum
hans um hnattræna hlýnun.
Í bókinni útskýrir Trausti hvernig
hlýnun jarðar og þiðnun íssins á
norðurhveli mun hafa áhrif á
stjórn- og efnahagsmál í heiminum.
Eins og sést er ansi mikið undir í
bókinni sem er stutt: 166 blaðsíður.
Trausti segir að með þeim breyt-
ingunum sem eru afleiðingar af
hlýnuninni muni valdajafnvægið í
heiminum breytast: til dæmis er
rökrétt að Berlín verði helsta borg
Evrópusambandsins.
Niðurstaða Trausta í bókinni er
að Ísland geti grætt á hlýnunni.
Hann segir að mannkynið eigi að
sporna við henni en er fullur efa-
semda um það sé hægt. Þess vegna
eigi íbúar jarðarinnar að búa sig
undir flutninga að pólunum í fram-
tíðinni.
Hann kemst að þeirri niðurstöðu
að heimur framtíðarinnar sé heim-
ur norðurhvelsins og viðurkennir
að túlkun hans sé sett fram til að
koma sér vel fyrir markaðssetn-
ingu á Íslandi í framtíðinni. Sá sem
veit þetta spyr sig hvað vaki fyrir
Trausta með bókinni: er hann vís-
inda- eða sölumaður.
Af þessari umfjöllun sést að bókin
er gölluð af mörgum ástæðum. Það
sem er jákvætt við hana er að
Trausti útskýrir ágætlega af hverju
hlýnað hefur á jörðinni og hvaða
afleiðingar þessi hlýnun getur haft.
En hann gerir það á ensku en ekki
íslensku, sem lætur mann draga þá
ályktun að hann hafi ekki haft upp-
fræðslu almennings á Íslandi í huga
þegar hann skrifaði bókina.
Almenningur í enskumælandi lönd-
um hefur örugglega aðgang að betri
bókum um viðfangsefnið. Pælingar
Trausta eru samt mjög forvitnileg-
ar og vekja lesanda til umhugsun-
ar: hann fær stjörnurnar fyrir þær.
Niðurstöðum hans ber þó að taka
með fyrirvara. Ástæðurnar fyrir
því eru tvær. Túlkun hans er sett
fram Íslandi til heilla, auk þess sem
erfitt er að taka mark á vísinda-
manni sem byggir bók upp á jafn
illa ígrundaðri lífsspeki, veður eins
mikið úr einu í annað og birtir jafn
mikið af vaðli í jafn stuttri bók.
Áhugavert efni í gallaðri bók
2 3 4 5 6 7 8
Hinn ástríðufulli leikklúbbur Hug-
leikur er þekktur fyrir að gera sér
mat úr jólunum. Að þessu sinni
bjóða hugleikarar upp á jóladag-
skrá sem heitir Jólabónus og verð-
ur flutt í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld og fimmtudagskvöld kl.
21.00.
Félagið Hugleikur fékk á dög-
unum viðurkenningu á degi
íslenskrar tungu fyrir nýsköpun í
leikritun, útúrsnúning ýmiskonar
á tungumálinu og alls kyns með-
ferð á menningararfinum. Félagið
sér því sóma sinn, sem aldrei fyrr,
í að vinna af atorku að þessu öllu
saman, nú á viðurkenndan hátt.
Og sjaldan úr jafnmiklu að moða
og einmitt þegar kemur að jólun-
um: að þessu sinni verða í boði
fjórir einþáttungar eftir jafn-
marga höfunda í leikstjórn jafn-
margra félagsmanna en eru leikn-
ir af miklu fleirum. Þeir
einþáttungar sem í boði eru að
þessu sinni eru:
Bónusförin eftir Þórunni Guð-
mundsdóttur, Jólasveinar eru líka
kynverur eftir Nínu B. Jónsdóttur,
Mikið fyrir börn eftir Þórunni
Guðmundsdóttur, Hrefnu Frið-
riksdóttur, Þórunni Harðardóttur
og Sævar Sigurgeirsson,
Skurður eftir Sigurð H.
Pálsson. Auk þess verður
á boðstólunum Hugleik-
ræn jólatónlist úr
ýmsum áttum, m.a. í
flutningi söngsveitar-
innar Hjáróms og stór-
sveitarinnar Ljótu hálf-
vitanna. Ekki er síðan
loku fyrir það skotið
að eitthvað verði
gripið í jólaföndur.
Jólabónus Hugleiks
Kvartett Kristjönu Stefáns verður
með útgáfutónleika á Café Rósen-
berg annað kvöld. Geisladiskurinn
Ég verð heima um jólin með Kvart-
ett Kristjönu Stefáns er kominn út
í nýrri útgáfu, en hann kom fyrst
út fyrir áratug og seldist þá fljót-
lega upp.
Hér er um að ræða djasstónlist
með jólasniði, en kvartettinn skipa
Kristjana Stefánsdóttir söngkona,
Vignir Þór Stefánsson píanóleik-
ari, Smári Kristjánsson kontra-
bassaleikari og Gunnar Jónsson
trommuleikari.
Í tilefni þessarar stórkostlegu
endurkomu ætlar kvartettinn að
halda endurútgáfutónleika á Café
Rósenberg og hefjast þeir klukk-
an 22 á miðvikudagskvöldið. Sér-
stakur gestur verður stórsöngvar-
inn Páll Óskar Hjálmtýsson.
Heima um jólin.