Fréttablaðið - 05.12.2006, Page 68
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
78þúsund gestir 36þúsund gestir
40þúsundgestir
3 vikur
á toppnum!
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
I
besta mynd
besti leikar
besti leikstjórinn,
besti aukaleikarinn
og besta tónlistin
5 edduverðlaun
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
BLAÐIÐ
M.M.J. kvikmyndir.com
V.J.V. TOPP5.IS
Þ.Þ. FBL
STÓRKOSTLEGASTA SAGA ALLRA TÍMA LIFNAR HÉR VIÐ Í
STÓRBROTINNI MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF.
UPPLIFIÐ HINA SÖNNU MERKINGU JÓLANNA
Jólamyndin 2006
CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 5.50, 8, 10.10
THE NATIVITY STORY kl. 6 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
PULSE kl. 10.15 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5 og 8
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 3.40, 5.50 og 8
PULSE kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 4
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 3.50
BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 5.40 og 8 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 10 B.I. 14 ÁRA
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 6 og 8
SAW III kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 6 B.I. 12 ÁRA
Hljómsveitin Amiina heldur
útgáfutónleika í Tjarnar-
bíói á fimmtudag í tilefni
af útkomu smáskífunnar
Seoul. Fyrsta breiðskífa
sveitarinnar er væntanleg á
næsta ári.
Amiina hefur verið á tónleika-
ferðalagið um Evrópu og Banda-
ríkin við góðar undirtektir. Meðal
annars fékk hún mjög góða dóma
fyrir frammistöðu sína á CMJ-tón-
listarhátíðinni í New York þar sem
yfir 1100 hljómsveitir tóku þátt. Á
heimasíðunni The Eye Online kom
m.a. fram að Amiina gæti hæglega
stigið úr skugga Sigur Rósar á
næstunni með svipaðri frammi-
stöðu og hún sýndi á tónleikastaðn-
um Joe´s Pub.
„Þetta gekk rosavel. Það var svaka
gaman að túra sjálfar og skipu-
leggja allt sjálfar. Við erum búin
að túra mikið með Sigur Rós og
spila á litlum tónleikum en þetta
var fyrsta tónleikaferðin sem við
fórum í sjálfar,“ segir María Mark-
an. Hún játar að það hafi verið
nokkur viðbrigði að vera allt í einu
einar á báti. „Við höfum verið í
heilt ár að spila fyrir hundruð þús-
unda manna og það hefur gengið
mjög vel. Núna vorum við á minni
stöðum og það var svolítið gaman
að fá meiri nálægð við áhorfendur.
Það myndaðist nánari stemning og
meira flæði á milli áhorfenda og
okkar. Við vorum með 25 hljóðfæri
á sviðinu og vorum að gera alls
konar hluti sem tapast kannski á
stærra sviði þegar fólk sér ekki
hvað við erum að dútla,“ segir
hún.
Smáskífan Seoul hefur að geyma
tvö lög af fyrstu breiðskífu Amiina
sem er væntanleg í febrúar eða
mars. Annað laganna er þó í nýrri
útgáfu. Einnig er á smáskífunni lag
sem verður ekki á plötunni. Um
miðjan mars ætlar Amiina síðan í
sex vikna tónleikaferðalag um
heiminn til að fylgja plötunni eftir.
Útgáfutónleikar verða í Tjarn-
arbíói fimmtudaginn 7. desember
og er miðaverð 1000 krónur.
Fyrrverandi eiginmaður söngkon-
unnar Jennifer Lopez, Ojani Noa
gefur ævisögu sína út von bráðar.
Í ævisögunni er að finna nákvæm-
ar lýsingar á kynlífi Jennifers og
hans, ásamt lífshlaupi kappans.
Jennifer höfðaði mál gegn Ojani
þar sem dómari dæmdi henni í
hag og bannaði Ojani að græða á
frásögnum af kynnum hans við
Jennifer. En allt kom fyrir ekki,
Ojani lét deigan ekki síga og hefur
nú leitað réttar síns annarsstaðar
og útlit er fyrir að bókin komi út
eftir allt saman.
Nánar lýsing-
ar á kynlífi
Í tilraun til þess að koma vopnum
af götunum hefur borgarstjórn
borgarinnar Oakland í Bandaríkj-
unum brugðið á það ráð að bjóða
fólki alls kyns gjafir í skiptum
fyrir skotvopn. Meðal þessara
gjafa eru miðar á tónleika með
hljómsveitinni Guns N’ Roses og
miðar á körfuboltaleik með liðinu
Golden State Warriors. Takmark
borgaryfirvalda er að ná í rúmlega
300 byssur í nokkrum hollum, en
nú þegar hefur náðst í 32 byssur,
og fengu allir sem skiluðu þeim inn
tónleikamiða að launum. Tuttugu
skammbyssum og tólf rifflum var
skilað og er nú næsta verk að koma
þeim til vopnaeftirlits Bandaríkj-
anna sem sér um að eyðileggja
þær.
Miðar í
skiptum
fyrir byssur
Við sem lifum lífinu stöðugt bíð-
andi eftir því að eitthvað nýtt komi
okkur á óvart verðum sífellt fyrir
vonbrigðum. En í örfá skipti á ári
gerist hið ólíklega. Eitthvað ryðst
inn í heim okkar úr óvæntustu átt
og hljómar eins og ferskt grunn-
vatn bragðast.
Þannig er það með þessa sveit
hér, Cansei De Ser Sexy, sem er
víst portúgalska fyrir „þreytt á því
að vera sexí“. Flestir þekkja sveit-
ina sem CSS.
Þessi sveit er frá Brasilíu og
hljómar eins og ef liðsmenn Sonic
Youth og Blonde Redhead væru
unglingar í dag með ódrepandi
áhuga á svalri klúbbatónlist á borð
við !!!, M.I.A. og Goldfrapp. Þessi
sex manna hópur virðist heldur
ekki taka sig of alvarlega. Sveitin
er aðallega mönnuð stelpum. Ein
þeirra starfar undir listamanna-
nafninu Lovefoxxx en aðrir liðs-
menn ganga undir eigin nöfnum.
Lögin eru öll með temmilega kæru-
leysislegum töktum sem gerir það
nær ómögulegt að vera kyrr við
hlustunina. Hljómborðslínur og
gítarpartar eru afbragð og
Lovefoxxx hljómar merkilega svip-
að og Kim Gordon úr áðurnefndri
Sonic Youth. Langatöng er vel á
lofti í textunum, þá aðallega gegn
sýndarmennsku og tilgerð. Þetta
kemur greinilega fram í lögunum
„Fuckoff is not the only thing you
have to show“ og „Art bitch“ sem
ræðst á þá listamenn sem tapa sér í
tilgerð og hroka. Það er alls ekki
eins og sveitin sé að predika það
yfir hlustandanum að hún séu besta
sveit í heimi. Eiginlega þvert á
móti, eins og kristallast í opnunar-
lagi plötunnar „CSS Suxxx“.
Þetta er ein af bestu plötum árs-
ins vegna þess að hvert einasta lag
er eins ferskt og nýkreistur ávaxta-
safi. Plata sem hefur nægilegan
kraft til þess að koma þér í djamm-
stuð á þunnudagsmorgni.
Gegn tilgerð og sýndarmennsku!
Tölvuteiknimyndin Flushed Away
er nú sýnd í kvikmyndahúsum en
hún segir frá vandræðum snobb-
uðu rottunnar Roddy sem lendir á
vergangi í holræsum Lundúna
eftir að honum er sturtað niður í
bókstaflegri merkingu.
Roddy hefur komið sér vel fyrir
á fínu heimili í Kensington þar
sem hann býr eins og greifi og
lætur tvo þjónustuhamstra stjana
við sig. Þessi þægilega veröld hans
hrynur þegar holræsarottan Syd
skríður upp úr baðvaskinum og
ákveður að setjast að á huggulegu
heimilinu.
Roddy grípur strax til aðgerða
og ætlar að losa sig hið snarasta
við vágestinn með því að lokka
hann í „nuddpottinn“ og sturta
honum niður. Syd sér hins vegar
við Roddy sem endar sjálfur ofan í
klósettinu og skolast þaðan ofan í
holræsin.
Þar kynnist hann litskrúðugu
undirheimasamfélagi og í Rottu-
borg hittir hann Rítu sem hann
fær til þess að hjálpa sér að kom-
ast aftur heim svo hann geti end-
urheimt konungdæmi sitt.
Einvalalið leikara talar fyrir
persónur myndarinnar með Hugh
Jackman í aðalhlutverkinu. Kate
Winslet ljær Rítu rödd sína en
aðrir sem láta í sér heyra eru til
dæmis Ian McKellen, Andy Serkis,
Bill Nighy og Sean Reno. Myndin
er einnig sýnd með íslensku tali og
þar leikur Felix Bergsson Roddy.
Hremmingar í holræsum