Fréttablaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 50
Síðkjóla, jakkaföt og smóking er
hægt að fá í miklu úrvali og oft-
ast á verðmunurinn er talsverður.
Fréttablaðið gerði sér ferð í þrjár
verslanir í Kringlunni og fékk versl-
unarmenn í Sautján, Hugo Boss og
Cosmo til þess að velja eitthvað
af þeim sparifötum sem verslan-
irnar bjóða upp á. Áramótafötin
eru sem fyrr með fremur hefð-
bundnu sniði, svört eða dökk
jakkaföt og smóking á karl-
mennina og síðkjólar af
ýmsum gerð- um á
konurnar.
Glæsileg inn í nýja árið
Það er alltaf skemmtilegra að líta vel út þegar nýtt ár gengur í garð. Úrvalið af glæsi-
legum sparifatnaði er mikið í tískuverslunum Reykjavíkur, bæði fyrir karla og konur.
Búðir landsins fyllast þessa dagana
af partíhöttum fyrir gamlárskvöld.
Partíhattarnir eru alveg tilvaldir
til þess að draga úr stífleika í ára-
mótaveislum landsmanna, því það
er nær ómögulegt að taka sjálfan
sig hátíðlega þegar maður skartar
fjólubláum og keilulaga glanshatti
á höfðinu.
Í raun ætti að vera siður á flestum
heimilum að fjárfesta í partíhöttum
fyrir gamlárskvöld. Allir geta nefni-
lega fundið hatt við sitt hæfi og best
að hattarn-
ir séu
eins litskrúðugir og völ er á.
Það er sömuleiðis góð regla
að hattarnir stangist algjör-
lega á við annan klæðaburð,
sem oft er með hefðbundnu
sniði á áramótunum. Þess
vegna á það að vera óskrifuð
regla bannað sé að kaupa sér
svartan pípuhatt og telja
það með sem partíhatt,
nema auðvitað að jakka-
fötin, séu appelsínugul
og glansandi.
Telja má víst að krakkarn-
ir hafi gaman af því að sjá
fullorðna fólkið prúðbúið
við fína matarborðið og með
glansandi partíhatt á hausnum,
þó það sé ekki nema bara einu sinni
á ári. Flestir hattarnir á þessum
myndum fást í Tiger.
Partíhattar á hvern haus
Fjölskylduboð og aðrar veislur eiga það til að vera dálítið þvingaðar í sumum tilvikum.
Fátt er eins hentugt til að draga úr stífninni og hressa partíið við með alvöru partí-