Fréttablaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 85
Nánari upplýsingar um afgreiðslutíma vínbúða er að finna á vinbud.is
11:00 - 20:00
LOKAÐ
Lau. 30. des
Sun. 31. des
Reykjavík og nágrenni
Opnunartími vínbúða helst óbreyttur nema ofangreinda daga.
Brad Pitt og Angelina Jolie gerðu Namibíu að heitasta griðarstaðnum á
einni nóttu þegar þau ákváðu að fæða dótturina Shiloh í Namibíu. Fimm
og sex stjörnu hótelgarðar í eyðimörkinni bjóða ferðamenn velkomna.
Fyrir þá sem vilja ekki týpíska staði er Namibía rík af náttúruauðlind-
um og fjölbreyttri menningu. Fallegt land með endalaust sólskin og
endalausa möguleika.
Eþópía er frekar þekkt fyrir hungursneyð, fátækt og óstöðugt stjórn-
málaástand. En með betra þjóðfélagsástandi hefur Eþíópía risið úr
skugganum og er orðinn vinsæll ferðamannastaður meðal sjálfstæðra
ferðalanga sem þyrstir í smá ævintýri. Landslagið er stórkostlegt, fólk-
ið vinalegt og sagan áþreifanleg.
Kraká, sem var höfuðborg Póllands til ársins 1609, er einn af „nýju“
ferðamannastöðunum í Evrópu. Borgin slapp ósködduð frá eyðilegging-
unni sem dundi yfir landið í seinni heimsstyrjöldinni. Ótrúlegar sögu-
legar minjar komu Kraká á heimsminjalista UNESCO. Í gamla bænum
eru söguleg kennileiti inn á milli nútíma verslunarsenu. Þó að mögnuð
saga setji mark sitt á borgina er hún með báðar fætur í framtíðinni, og
hátíðir sem haldnar eru allt árið bjóða upp á framúrskarandi tónlist og
leikhús.
Brasilía er sívinsæl og kynngimögnuð og heldur áfram að vera einn
heitasti ferðamannastaðurinn í heiminum. Erfitt er að svara því hvort
sé villtara frumskógurinn eða fólkið. Karnivalið í Ríó er það brjálað-
asta í heiminum. Orkan og gleðin í fólkinu er smitandi þar sem það
nærist á dansi, drykkjum, strönd, íþróttum og sólinni. Brasilía er hita-
beltisparadís og gífurlega fallegt land með ósnortnum regnskógum,
sandströndum og öðrum náttúruperlum.