Fréttablaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Nei, þetta er nú ekki eitthvað sem
hefur blundað í mér lengi,“
segir Heimir Jónasson
aðspurður hvort uppsögn
hans sem forstöðumaður
Stöðvar 2 hefði átt sér lang-
an aðdraganda. Heimir
lætur af störfum hjá fyrir-
tækinu nú um áramótin.
Tilkynnt hefur verið að
Pálmi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs,
taki við starfinu en hann verð-
ur titlaður sjónvarpstjóri
Stöðvar 2.
Heimir segir að árin sjö í starfi hafi verið
einu orði sagt frábær en Heimir er ábyrgur
fyrir vinsælum þáttum á borð við Viltu vinna
milljón og Idol-stjörnuleit. „Ég hef farið í gegn-
um margar sveiflur hjá stöðinni og starfað
með frábæru fólki. Ég er ánægð-
ur með mín störf og þetta
hefur verið frábær rússí-
banareið,“ segir Heimir
sem sagði að meginástæðan
fyrir brotthvarfi sínu væru
mismunandi áherslur hjá
sér og Ara Edwald, for-
stjóra 365 miðla.
Heimir þekkir vel
til Pálma Guðmunds-
sonar, arftaka síns, og
sagði fyrirtækið varla
geta fundið betri mann
í starfið. „Pálmi er
toppmaður, einn af
mínum bestu félög-
um í vinnunni og það
eru allir í góðum
höndum hjá honum,“
segir Heimir sem vildi
ekki upplýsa hvert hans
næsta verkefni eftir það
yrði.
Heimir Jónasson hættur á Stöð 2
„Ég fer út um miðjan janúar og
ferðast um með hljómsveitinni
Rock Star: Supernova í sex til sjö
vikur,“ segir söngvarinn Magni
Ásgeirsson. Eins og greint var frá
um miðjan október var Magna
ásamt Toby, Dilönu og húshljóm-
sveitinni víðfrægu ýtt út af borð-
inu vegna launamála en samning-
ar hafa náðst að nýju. „Ég er ekki
að fara að meika það og
hef ekkert sérstakt
upp úr þessu. Ég
er hins vegar viss
um að hver ein-
asti maður sem
kann að glamra á
kassagítar myndi
ekki slá hend-
inni á móti svona tilboði,“ svarar
Magni aðspurður hvort nú bíði
hans ekki bara gull og grænir
skógar úti í hinum stóra heimi.
Hljómsveitin fer til allra
stærstu borga í Norður-Ameríku,
kemur við í Kanada og herlegheit-
unum lýkur svo í Los Angeles þar
sem þættirnir voru einmitt teknir
upp og stjarna Magna reis sem
hæst. Söngvarinn hefur ferðast
um landið með hljómsveit sinni Á
móti sól en hann segir þessar tón-
leikaferðir ekki sambærilegar.
„Þetta er svolítið öðruvísi en að
troða upp í Hreðavatnsskála, bæði
verður rútan mun flottari og svo
erum við að spila á tónleikastöðum
sem hýsa tugþúsundir áhorfenda,“
segir Magni í gríni. Rock Star:
Supernova hefur ráðið til sín nýjan
bassaleikara eftir að Jason New-
sted slasaðist rétt áður en tónleika-
ferðin átti að hefjast. Sá heitir
Johnny Colt og spilaði áður með
bandarísku rokkhljómsveitinni
Black Crowes og að sögn Magna
þykir hann víst ögn hressari en
forveri hans Newsted sem löngum
hefur haft orð á sér fyrir að vera
hálfgerður fýlupúki.
Magni ætlar hins vegar ekki að
kveðja landið þegjandi og hljóða-
laust því Á móti sól stendur fyrir
stórdansleik á Broadway í kvöld.
Söngkonan Dilana hyggst troða
upp með sveitinni en Magni upp-
lýsir að hljómsveitin sé farin í
óformlegt frí um óákveðinn tíma.
„Hljómsveitir hætta ekki, þær
taka sér bara smá pásu,“ segir
Magni.
... fær Ísleifur Þórhallsson sem
ætlar að bæta bíómenningu
landans með fjölgun óháðra
kvikmynda, færri auglýsingum
og afnámi hléa.
Vesturportsparinu Gísla Erni
Garðarssyni og Nínu Dögg Filipp-
usdóttur fæddist lítil stelpa á
fimmtudaginn, en
hún er fyrsta
barn þeirra
hjóna. Prins-
essan hefur
hlotið
nafnið
Rakel
María,
og heit-
ir þar
með í
höfuð-
ið á föðursystur sinni, Rakel Garð-
arsdóttur sem er framkvæmda-
stjóri Vesturports. Rakel var að
vonum stolt af nöfnu sinni og sagði
alla vera við hestaheilsu þegar
Fréttablaðið náði tali af
henni í gær, en hún
var þá búin að heilsa
upp á splunkunýja
frænku sína. „Hún
er bara lítil, sæt
stelpa. Falleg og
eiturhress,“
sagði hún
sposk.
Rakel María
var einar 16 merkur þegar hún
kom í heiminn. „Þetta er stór og
stæðileg stelpa,“ sagði Rakel hin
eldri. „Það eru náttúrulega allir í
skýjunum með þetta, eins og alltaf
þegar börn fæðast. Það er voða
sjaldan eitthvað annað í gangi,“
bætti hún við.
Nína Dögg hefur haft
hægt um sig að undanförnu
og dvaldist til dæmis heima
við á meðan Vesturport
lagðist í leikleiðangur um
Evrópu. Í síðasta
afkvæmi Vesturports,
kvikmyndinni Börnum,
fór Nína Dögg hins vegar
á kostum í hlutverki
fjögurra barna móður
og hefur því ein-
hverja reynslu af
hlutverkinu
sem hún
spreytir sig
nú á í veru-
leikanum.
Vesturportsprinsessa fædd