Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 8
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
0
1
2
9
Forelduð Partírif frá SS.
McCain Superfries, franskar kartöflur.
Blástursofn forhitaður í 180–200° C.
Franskar settar í efri skúffu, rifin í neðri skúffu.
Hitað í 20 mín. eða þar um bil.
Eldsnögg lausn á góðum kvöldmat.
Tónninn í samskiptum
Bandaríkjastjórnar við ráðamenn
í Íran hefur harðnað til muna að
undanförnu og óttast sérfræðing-
ar að lítið megi út af bera til að til
stríðsátaka komi.
Nicholas Burns, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna – sá
sem hringdi í Geir H. Haarde þann
15. mars í fyrra til að tilkynna um
brottför varnarliðsins frá Kefla-
víkurflugvelli, sagði í gær að
bandarískir hermenn hefðu hand-
tekið í Norður-Írak nokkra Írana
sem grunaðir væru um að hafa
útvegað uppreisnarmönnum úr
röðum sjía-múslima í Írak háþró-
uð vopn og sprengiefni. Íranar
halda því fram að mennirnir séu
diplómatar.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði fyrr í vikunni að herlið
Bandaríkjamanna í Írak myndi
grípa til aðgerða gegn Írönum sem
staðnir væru að verki í Írak. „Auki
Íran við hernaðarleg afskipti sín í
Írak, hermönnum okkar eða sak-
lausum Írökum til skaða, munum
við svara fyrir okkur af festu,“
sagði Bush. Hann lagði þó áherslu
á að engin áform væru uppi um að
ráðast inn í Íran.
Írak er orðið vettvangur fyrir
átök Írana og Bandaríkjamanna.
Íranar ögra tilkalli Bandaríkja-
manna til hernaðarlegra yfirráða
á Persaflóasvæðinu. Spennan sem
þetta skapar veldur Íraksstjórn
áhyggjum, en sjíinn Nouri al-Mal-
iki forsætisráðherra treystir jafn-
framt á góð tengsl við ráðamenn í
Teheran.
Hinn 20. janúar var fjórum
bandarískum hermönnum rænt og
þeir drepnir í Karbala, helgri borg
sjía í Mið-Írak, og fimmti hermað-
urinn féll í skotbardaganum.
Ónafngreindur bandarískur her-
málafulltrúi greindi frá því að
meðal þess sem verið væri að
kanna væri hvort íranskir
útsendarar hefðu annað hvort
framkvæmt árásina eða staðið á
bak við hana. Væru þær grun-
semdir byggðar á óvenjulegum
aðferðum sem beitt var, þar með
talið vopnum og einkennisbúning-
um sem kunna að hafa verið banda-
rísk. Getum hefur verið leitt að
því að árásin í Karbala væri hefnd-
araðgerð vegna handtökunnar á
Írönunum fimm nokkrum dögum
fyrr.
Bandaríkjaher í Írak er sagður
ætla að efla til muna gæslu við
landamærin að Íran, í því skyni að
hindra vopnasmygl, og efld við-
vera bandarískra herskipa á Persa-
flóa er einnig ótvíræð viðvörun til
ráðamanna í Teheran.
Vaxandi hætta talin
á átökum við Írana
Ásakanir bandarískra ráðamanna um að Íranar kyndi undir uppreisn í Írak og
átök við bandaríska hermenn þar í landi, efld viðvera bandarískra herskipa á
Persaflóa og fleira veldur spennu sem talin er auka hættu á að til átaka komi.
Skólayfirvöld Iðn-
skólans í Reykjavík og Fjöltækni-
skóla Íslands kynntu hugmynd að
sameiningu skólanna tveggja á
um tvö hundruð manna fundi í
Iðnskólanum í gær. Hugmyndin
að sameiningunni er komin frá
Baldri Gíslasyni, skólameistara
Iðnskólans, og Jóni B. Stefáns-
syni, skólameistara Fjöltækni-
skólans.
Ef af sameiningunni verður er
ein tillagan að nafni nýja skólans,
2tTækniskólinn, segir Baldur, og
bætir því við að önnur breyting á
rekstrarfyrirkomulaginu sé sú
að skólinn verði einkarekinn en
fái áfram fjárstuðning frá ríkinu,
svipað og Verslunarskóli Íslands.
Baldur segir að næsta skrefið
í sameiningarferlinu verði að
menntamálaráðuneytið muni
taka afstöðu til hugmyndarinnar.
„Hversu hratt þetta ferli mun
ganga fyrir sig ræðst af því
hversu vel gengur að gera sam-
komulag við ráðuneytið um sam-
eininguna,“ segir Baldur og bætir
því við að ráðuneytið hafi tekið
vel í hugmyndina. „Allar viðræð-
ur við ráðuneytið eru vel á veg
komnar en það á eftir að loka
samningunum.“
Hann segir að kennslan innan
skólanna verði að mestu óbreytt
til að byrja með af sameiningunni
verður og að nýi skólinn verði
áfram til húsa í skólabyggingun-
um tveimur, Iðnskóla Reykjavík-
ur á Skólavörðuholti og húsi Fjöl-
tækniskólans, gamla
Stýrimannaskólanum.
Skólarnir tveir sameinist
Óbyggðanefnd hefur
hafnað frávísunarkröfu Ragnars
Aðalsteinssonar hæstaréttarlög-
manns, sem hann setti fram fyrir
hönd nokkurra skjólstæðinga sinna,
á þjóðlendukröfum ríkisins á aust-
anverðu Norðurlandi.
Í svari óbyggðanefndar kemur
fram að Ragnar nefni ekki tiltekn-
ar jarðir þegar hann krefst frávís-
unar þjóðlendukrafna ríkisins. Þess
vegna svarar nefndin bréfi Ragn-
ars eins og hann eigi við allar þjóð-
lendukröfur ríkisins á austanverðu
Norðurlandi.
Í bréfinu kemur fram að rök-
stuðningur Ragnars fyrir frávísun-
arkröfunni, að ríkið hefði ekki fært
fram nægjanleg gögn fyrir þjóð-
lendukröfum sínum á svæðinu
þegar það setti þær fram, sam-
ræmdist ekki þjóðlendulögunum,
því rannsóknin á kröfunum hefði
ekki hafist. Ef nefndin myndi vísa
kröfunni frá væri hún að leggja
efnislegt mat á hana án þess að það
lægju fyrir nægilegar upplýsingar
um réttmæti hennar. Eins kemur
fram í bréfinu, og er vísað í dóm
því til stuðnings, að ekkert í þjóð-
lendulögunum bendi til þess að
óbyggðanefnd geti ekki gert kröfur
í landssvæði sem jarðeigendur hafi
þinglýstar eignarheimildir fyrir.
Tveimur varakröfum Ragnars
var einnig hafnað.
Ragnar sagði í gær að hann væri
ekki búinn að taka ákvörðun um
hvernig hann myndi bregðast við
höfnunni, hvort hann færi með
málið fyrir dómstóla eða ekki.
Hann ætlar að bera höfnunina
undir skjólstæðinga sína.
Nefndin hafnaði kröfunni