Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 52
8
Það er hannyrðatími í Húsmæðra-
skólanum í Reykjavík þegar Frétta-
blaðsfólk kíkir í heimsókn. Í stórri
og bjartri stofu eru stúlkur að prjóna
lopasokka og tátiljur undir leiðsögn
Eddu Guðmundsdóttur handavinnu-
kennara. Flestar eru að prjóna hæl
í fyrsta skipti. Blaðamaður fyllist
lotningu yfir því þar sem sú list
hefur aldrei legið vel fyrir honum.
„Þetta er bölvað vesen,“ viðurkennir
ein þeirra. „En það verður auðvelt,“
bætir hún svo við brosandi. Tátilj-
urnar skarta kaðlaprjóni og það er
líka kúnst sem gaman er að kunna.
Ungbarnahúfur með gataprjóni og
lopapeysur eru á verkefnalistanum
og líka þæfing á ull.
Í næstu stofu er Helga Friðriks-
dóttir að kenna útsaum og þegar for-
vitnast er um verkefnið sem náms-
meyjarnar eru með milli handanna
lýsir hún því. „Í byrjun fá stúlkurn-
ar lítil bróderiskæri og merkja þau
með litlum rósapúðum. Nú eru þær
að sauma hulstur í kramarhúsastíl
utan um skærin, meðal annars til
að vernda viðkvæman skæraodd-
inn. Í leiðinni læra þær alls konar
útsaumsspor,“ segir hún og nefn-
ir tunguspor, klóspor, leggsaum,
lykkjuspor, spánskan saum, afturst-
ing og fræhnúta.
Stúlkurnar hófu námið í Hús-
mæðraskólanum um miðjan janúar
og verða fram á vor. Þær læra und-
irstöðuatriði heimilishalds svo sem
matargerð, bakstur og margs konar
handverk í skólanum og allar sem
spurðar eru lýsa yfir ánægju með
viðfangsefnin. „Ég hef áhuga á að
læra þetta allt“ og „þetta er allt ótrú-
lega skemmtilegt“ er meðal þess sem
blaðamaður fær að heyra.
Að síðustu er haldið niður í kjall-
arann og þaðan yfir í vefstofuna
sem er veröld út af fyrir sig. Þar eru
einstök listaverk að verða til eins og
marglit veggstykki og mjúkar voðir.
- gun
Marglit veggstykki
og mjúkar voðir
Í virðulegu húsi við Sólvallagötu í Reykjavík sitja ungar
stúlkur og nema listir eins og útsaum, prjón og vefnað.
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
Reiðtygi
Hnakkar
Reiðfatnaður
Íþróttavörur
Dans- og ballettvörur
Fimleikafatnaður.
Útivistarfatnaður
Full búð
af nýjum og
flottum vörum
Verið velkomin