Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 33
Kaffi Hljómalind býður bestu
kökur bæjarins og dásamlegt
kaffi á aðeins sex hundruð
krónur í tilefni af löngum
laugardegi á Laugavegi.
Í tilefni af löngum laugardegi
ætlar Kaffi Hljómalind að bjóða
upp á heitan drykk og köku að
eigin vali á aðeins sex hundruð
krónur.
Kökurnar á Kaffi Hljómalind
eru með þeim bestu í bænum en
meðal þeirra má nefna; eplaböku,
möndluköku, súkkulaðiköku,
döðluköku með karamellu og ban-
anaköku sem inniheldur engar
mjólkurvörur. Þau sem hafa einu
sinni smakkað heimagerða
Hljómalindarköku eiga erfitt með
að fara annað, því þær hreinlega
bráðna í munninum og því um að
gera að nýta sér þetta góða tilboð.
Á Kaffi Hljómalind er allt hrá-
efni sem notað er í mat, kökur og
drykki lífrænt ræktað og þar er
reynt að skipta sem mest með
„fair trade“ viðskiptaháttum, „svo
ekki sé níðst á verkamönnum í
þróunarlöndunum“, segir Einar
Rafn Þórhallsson, starfsmaður á
kaffihúsinu, og bætir því við að
allt kaffi staðarins komi frá Súm-
ötru en með því að kaupa kaffi
þaðan vilja eigendurnir styrkja
Súmötru eftir flóðbylgjuna sem
skall þar á fyrir þremur árum.
„Við erum einnig með úrval af
gómsætum mat og drykkjum;
súpu, lasagna, hummus, brauð,
safa, kökur og kaffi ásamt heima-
gerðu engiferöli.“
Til að standa undir nafni stend-
ur Hljómalind reglulega fyrir tón-
leikum, tvisvar til þrisvar í hverri
viku. „Hér er opið fram eftir
kvöldi en við framreiðum samt
ekki áfengi. Þetta gerir okkur
kleift að halda tónleika sem allir
geta komið á því það er ekkert ald-
urstakmark þar sem ekkert áfengi
er veitt. Allur ágóði af kaffihúsinu
fer svo í góðgerðarmál, eða í að
lækka vöruverðið, því Kaffi
Hljómalind er ekki rekið í gróðra-
skyni. Reyndar er þetta líka sam-
vinnurekið í þeim skilningi að allir
sem hér vinna eiga kaffihúsið.
Núna eru sjö eigendur að kaffi-
húsinu,“ segir Einar.
Þessa dagana eru liðsmenn
Hljómalindar að leita sér að nýju
húsnæði þar sem eigandi þess
ætlar sér að rífa það og reyna að
byggja verslunarmiðstöð. Einar
er ekki mjög hress með þetta,
enda erfitt að finna hentugt hús-
næði í miðbænum.
Spurður að því hvort Kaffi
Hljómalind sé hippakaffihús svar-
ar hann svo hlæjandi: „Þetta er
allavega ekki það sem maður kall-
ar „posh“.“
Heitir drykkir og
dásamlegar kökur
Sumarlína Orginal 2007 er
komin í Verksmiðjuna að
Skólavörðustíg 10 í Reykjavík.
Það er hönnuðurinn Heiða
Eiríksdóttir sem stendur á bak
við Orginal, sem nú er í verslun-
um bæði hjá frændum vorum í
Danmörku og Finnlandi. Heiða
lærði fatahönnun í Danmörku og
lýsir fatnaðinum sem kvenleg-
um, þó fönkí með dúkkulegu
yfirbragði.
Kvenlegt með dúkku-
legu yfirbragði
Laugavegi 51 • s: 552 2201
3000
2000 1500
1000500
Fallegar íslenskar
peysur
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is