Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 46
{ Heima er best } 2
Kristinn Frímann Jakobsson er kokkur á Strik-
inu. Hann er fæddur og uppalinn Akureyr-
ingur og lærði á Bautanum líkt og Valdimar,
matreiðslumeistarinn á staðnum. Strikið er
aðeins rúmlega árs gamall veitingastaður en
hefur getið sér góðan orðstír fyrir góðan mat
á góðu verði.
„Matarframboðið á Strikinu er fjölbreyti-
legt. Í hádeginu er þetta léttari staður þar
sem fólk sem vinnur í bænum kemur og fær
sér léttan hádegisverð. Þá erum við með rétt
dagsins og fisk dagsins en það er breytilegt
upp á hvað er boðið. Á kvöldin skiptum við
aðeins um gír og þá er þetta orðinn fínni stað-
ur. Boðið er upp á létta rétti í forrétt og alveg
upp í flottar nautasteikur,“ segir Kristinn en
reglulega er skipt um matseðil á Strikinu og
verður það einmitt gert núna í byrjun febrúar.
Á sama tíma verður matseðillinn stækkaður,
svo og vínseðillinn.
Akureyringar eru duglegir að sækja Strikið
en ferðamenn eru þó einnig áberandi meðal
gesta. „Yfir sumarið erum við í sambandi
við ferðaskrifstofur sem koma með hópa,“
útskýrir Kristinn en staðurinn tekur níutíu
manns í sæti. „Við erum líka með sal í sama
húsi sem heitir Parken þar sem við getum séð
um veislur eða fólk nýtt hvernig sem er. Þá
sýnum við þar líka fótbolta og handbolta-
leiki,“ segir Kristinn.
Strikið stendur við Skipagötu 14 þar sem
Fiðlarinn var áður til húsa. Veitingastaðurinn
er á fimmtu hæð og útsýnið því frábært yfir
Vaðlaheiði og inn og út fjörðinn. Stórar svalir
eru nýttar á sumrin og er þá vinsælt að snæða
úti við í góðu veðri og líta yfir Eyjafjörðinn.
Kristinn eldaði þrjá rétti fyrir lesendur. „Ég
eldaði silung sem er mjög einfaldur og góður
réttur og er á matseðlinum hjá okkur. Svo eru
það kjúklingabringur með villisvepparisottó
sem kemur á nýja seðilinn. Í eftirrétt er það
súkkulaðikaka Striksins sem er klassísk og
góð.“ solveig@frettabladid.is
STEIKTUR SILUNGUR MEÐ KARTÖFLUTEN-
INGUM
Fyrir 4
Aðferð:
Kryddjurtadressing
Aðferð:
KJÚKLINGABRINGA MEÐ VILLISVEPPA-
RISOTTÓ
Fyrir 4
Aðferð:
Sósan:
Fondant-kartöflur
Aðferð:
Villisvepparisottó
Aðferð:
FRÖNSK SÚKKULAÐIKAKA
Aðferð:
Krem
Aðferð:
GLJÁÐUR BANANI
Léttur á daginn,
fínn á kvöldin
Strikið á Akureyri er þekkt fyrir góða rétti á góðu verði í hádeginu. Á
kvöldin er skipt um gír og breytist staðurinn í fínan veitingastað.
Útsala
20-50% afsláttur
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16
30% afsláttur af rúmum
Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
rafstillanleg og hefðbundin.