Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 72
BLS. 12 | sirkus | 2. FEBRÚAR 2007
Aha, Katie Holmes hefur upplýst
um leyndarmál Hollywood-
kvennanna. Það er ekki mjög sexí,
en það greinilega virkar.
Er frú Cruise, sem yfirleitt er talin
vera mjög grönn manneskja, steig
út úr bíl í París á dögunum kom í
ljós að hún gengur í grenningar-
nærbuxum.
Ekki hefði maður haldið að Katie
þyrfti á svona nærbuxum að halda,
en ef hún gengur í þeim eru án efa
tonn af leikkonum sem ganga líka í
svona. Það er samt ekki séns að
Tom sé slefandi á eftir unnustu
sinni er hún labbar um heimili
þeirra í þessum.
Svona gera þær þetta!
MJÖG GRÖNN Katie Holmes er rosalega
grönn stelpa og ekki hefði maður haldið
að hún þyrfti að ganga í svona shock-up
naríum.
LEYNDARMÁLIÐ UPPLÝST Katie
Holmes flassar hér mest
ókynæsandi nærbuxum veraldar.
Þær eru án efa í miklu uppáhaldi
hjá Tom Cruise.
Ah, einu sinni var stúlka sem hét Nicole
Richie. Hún var ung og villt með nokkur
aukakíló á líkama sínum. Það mikilvæg-
asta við hana var að hún var skemmtileg.
Í dag er hún nánast óþekkkjanleg og
alveg rosalega leiðinleg týpa. Við viljum
hressu Nicole til baka. Sirkus gróf upp
nokkrar gamlar og góðar myndir af
fröken Nicole Richie.
Við viljum
þessa
Nicole aftur
VILLTAR VINKONUR Paris Hilton og
Nicole Richie voru alltaf saman – og
alltaf svolítið villtar.
MEÐ GUÐFÖÐUR SÍNUM Hver hefði trúað
þessu? Nicole er nánast óþekkjanleg á
þessari mynd.
Í DAG Hverjum er ekki sama um þessa
horrenglu? Það er ekkert spennandi við
hana.
Hinn bráðskemmtilegi þáttur Grey’s
Anatomy kom, sá og sigraði á SAG-
verðlaunahátíðinni sem haldin var á
dögunum. Leikarar þáttarins skemmtu
sér vel eftir sigurinn, en eitthvað vantaði.
Leikarinn Isaiah Washington sem leikur
dr. Burke í þáttunum mætti ekki á
hátíðina en mikið hefur verið deilt um
framkomu hans eftir að hann kallaði T.R.
Knight, sem leikur George, „fagga“.
Isaiah er nú kominn í einhvers konar
meðferð vegna orða sinna og framkomu
og verður spennandi að sjá hvað
framleiðendur þáttarins ákveða að gera
við kappann. Já, það er ekkert grín að
tala af sér í Hollywood.
Isaiah
vantaði!
MYNDARLEGUR HÓPUR Isaiah
Washington sem leikur hinn myndarlega
dr. Burke í þáttaröðinni Grey’s Anatomy
mætti ekki á SAG-verðlaunahátíðina
vegna ummæla um meðleikara sinn.
Dita Von Teese sótti um skilnað frá
eiginmanni sínum Marilyn Manson fyrir
nokkrum vikum, en svo virðist sem
Manson hafi ekki verið hinn fullkomni
eiginmaður. Hverjum kemur það svo sem
á óvart? Hann er nú þegar kominn með
nýja stúlku upp á arminn og er það hin
unga Evan Rachel Wood.
Marilyn Manson er greinilega með
sérstaka týpu og er litla Evan orðin meira
og meira eins og Dita — hvít húð og
rauður varalitur. Húm, það er eitthvað
mjög furðulegt við þetta.
GUÐDÓMLEG
KONA Við erum
fegin að Dita
Von Teese
skildi við
Marilyn
Manson.
NÝJA KÆRASTAN Evan Rachel Wood er orðin
ótrúlega svipuð Ditu í útliti.
Þ að er ekkert grín að þurfa að díla við ljósmyndara og
venjuleg manneskja myndi
örugglega fara yfir um út af öllu
flassinu. Madonna, eiginmaður
hennar Guy Richie og börn komu
öll saman í London á frumsýningu
teiknimyndarinnar Arthur and the
Invisibles. Það sést langar leiðir að
Lourdes litla er orðin vön sviðsljós-
inu, en bróðir hennar Rocco er ekki
alveg jafn sjóaður í þessum bransa.
Á rauða dreglinum gat hann alls
ekki haldið augunum opnum, enda
hundruð ljósmyndara að smella af
með sterkum flössum. Það er alveg
fáránlega sætt og segja myndirnar
meira en nokkur önnur orð.
MADONNA OG FJÖLSKYLDA KÍKTU ÚT Á LÍFIÐ
Of mikið flass
fyrir litla Rocco
ER ALLT Í GÓÐU?
Madonna, Guy og Lourdes
tékka hvort allt sé ekki í
góðu hjá litla Rocco.
Hollywood
Hanna
ÖLL FJÖLSKYLDAN MÆTT
Þessi fallega fjölskylda geislaði
á frumsýningu Arthur and the
Invisibles. Takið eftir því hvað
Rocco er kraminn í framan.
Hann getur ekki haldið augum
sínum opnum vegna flassins.
ÓVANUR SVIÐSLJÓSINU
Rocco á eftir að venjast
flassi ljósmyndara, en
systir hans þykir nokkuð
sleip á þessu sviði.
STELUR STÍL
FYRRVERANDI
EIGINKONU