Fréttablaðið - 23.02.2007, Síða 8

Fréttablaðið - 23.02.2007, Síða 8
 Hver er nýr ræðismaður Íslendinga í Færeyjum? Hvað heitir forsætisráð- herra Ítalíu sem sagði af sér í fyrrakvöld? Hvað heitir eigandi vefsíð- unnar klam.is, sem keypti sér miða á fyrirhugaða klámráð- stefnu á 100 þúsund krónur? Dönsku prófessorarnir Frede Hvelplund við Álaborgar- háskóla og Niels I. Meyer við Danmarks Tekniske Universitet segja að verð á rafmagni í Dan- mörku hafi hækkað um þriðj- ung, samkeppni minnkað og samþjöppun fyrirtækja aukist eftir markaðsvæðingu rafork- unnar. Þeir segja að í stað betri áætl- ana og aukins afhendingarör- yggis raforku ráði nú skamm- sýnir viðskiptahagsmunir för. Ein höfuðástæða þessa sé trú Evrópusambandsins á að á mark- aði ríki frjáls samkeppni eins og henni er lýst í skólabókum. Þetta kemur fram á vef BSRB. Haft er eftir framkvæmda- stjóra orkumála Evrópusam- bandsins, Neelie Kroes: „Það eru vonbrigði að tíu árum eftir að markaðsvæðingin hófst erum við enn langt frá því marki að hafa sameiginlegan raforku- markað sem starfar vel og sam- keppni ræður ríkjum.“ Karl og kona á fertugsaldri voru handtek- in á Eskifirði á sunnudag fyrir fataþjófnað og innbrot á Austurlandi. Að sögn lögreglu lét parið greipar sópa í síðustu viku. Fólkið stal úr tveimur verslunum á Egilsstöðum þrjá daga í röð og var að sögn starfsfólks í annarlegu ástandi. Síðasta sunnudag brutust svo skötuhjúin inn í fleiri verslanir á Egilsstöðum og á Reyðarfirði. Verslanirnar sem um ræðir eru Skógar og Sentrum á Egilsstöðum og verslanirnar Pex og Veiðiflugan í Molanum á Reyðarfirði. Sigurbjörg Þórarinsdóttir, eigandi verslunarinnar Skóga, segir að um helmingi af þýfinu hafi verið skilað en þó vanti enn nokkuð upp á. Það sama á við um hinar verslanirnar. Ekki er enn vitað hve mikið tjónið er. Þegar lögregla hafði upp á fólkinu reyndist bifreið þeirra full af fatnaði. Að sögn Óskars Bjartmarz, yfirlögregluþjóns á Egilsstöðum, var fólkinu sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Tekin með fullan bíl af fötum Íran hefur ákveðið að hraða kjarnorkuáætlun sinni í stað þess að fara að fyrirmælum Sameinuðu þjóðanna um að láta af henni samkvæmt yfirlýsingu sem Alþjóðakjarnorkumálastofn- in (IAEA) sendi frá sér í gær. Þó þessar upplýsingar hafi legið fyrir á laugardaginn er þessi yfirlýsing stofnunarinnar nú mikilvæg því hún getur orðið til þess að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefji viðræður um harðari refsiaðgerðir gagnvart Íran vegna kjarnorkuáætlunar- innar. Hraða kjarn- orkuáætlun Mikil óánægja er með raforkuverð meðal Þingeyringa að sögn Gunnhildar Elíasdóttur, formanns Dýrafjarðardeildar Verkalýðsfélags Vestfjarða. Þingeyringar búa á köldu svæði og þurfa að hita upp hús sín með rafmagni. Gunnhildur segir ríkið niðurgreiða húshitun- ina um níu þúsund krónur, en að kostnaður fyrir lítið einbýlishús sé samt sextán til átján þúsund krónur á mánuði. Gjaldið var innheimt sam- kvæmt tveimur mælum, einum fyrir húshitun og öðrum fyrir heimilisrafmagn, segir Gunn- hildur. Nú sé allt á einum mæli og margir í þorpinu tengi dýrt verð- lag við nýja þráðlausa raforku- mæla Orkubús Vestfjarða, sem settir hafa verið í hvert hús á Þingeyri. „Þetta er allt orðið þvældara. Það er erfiðara að sjá mun á kyndingu og ljósarafmagni og fólk talar um að það sé að borga meira, að niðurgreiðslan skili sér ekki. Þetta er orðið það flókið að ég og aðrir borgarar höfum ekki forsendur til að leggja mat á þetta. Við höldum að það sé skekkja í þessu,“ segir hún. Kristján Haraldsson, orku- bússtjóri Orkubús Vestfjarða, segir ekki rétt að kostnaður við nýja mæla fari út í verð til neyt- enda. Samkvæmt nýjum raforku- lögum þurfi aðeins að vera einn mælir í hverju húsi. Þeir sem vilji hafa tvo mæla áfram geti fengið aukamæli, en það geti kostað allt að 11.210 krónur á ári, utan virðisaukaskatts. Umræddir mælar eru þrífasa og af gerðinni Kamstrup. Þeir kosta 13.700 krónur, að sögn Kristjáns, fyrir utan gagnasendi, sem kostar um 5.000 krónur. Kostnaðurinn sé hins vegar tölu- vert mikill, þegar litið sé til umsýslu og fleiri þátta. „Ástæða þess að reikningar hafa hækkað hjá sumum en lækkað hjá öðrum er sú að nú er einn mælir í stað tveggja áður. Orkustofnun hefur ákveðið að 85 prósent raforku- notkunar sé til hitunar og 15 pró- sent til almennra heimilisnota. Þar sem eru fáir í heimili og heimilisnotkun því tiltölulega lítil kemur þessi skiptiregla illa út fyrir notandann og reikning- arnir hækka.“ Hærra raforkuverð með nýjum lögum Vinstrihreyfingin – grænt framboð setur landsfund sinn á Grand hóteli í dag klukkan 16.30. Kjörorð fundar- ins er Allt annað líf. Á fundinum verður kosið í stjórn flokksins, frambjóðendur til Alþingis kynna kosningaáherslur sínar og fleira. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður flokksins, boðar róttækar tillögur í vissum málaflokkum, til dæmis tillögu um að festa í lög jafnt hlutfall kynja í stjórnmál- um og stjórnum fyrirtækja. Samhliða landsfundinum verð- ur haldið málþing um atvinnu- mál. Jöfn kynjahlut- föll verði lögfest
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.