Fréttablaðið - 23.02.2007, Page 56

Fréttablaðið - 23.02.2007, Page 56
BLS. 14 | sirkus | 23. FEBRÚAR 2007 „Ég mæli með því að foreldrar nýti sér þessa fáu mánuði sem þeir fá í fæðingar- orlof. Ég mæli líka með því að reglur um Fæðingar- orlofssjóð verði endurskoðaðar. Það má ekki mismuna litlum börnum fyrsta æviskeiðið eftir því hvernig foreldrar þeirra standa. Í þessu fiskfári sem nú ríður yfir landann mæli ég líka með fiski úr Fylgifiskum, gufusoðnu grænmeti og kartöflum. Þegar fisknum hefur verið sporðrennt mæli ég svo með myndinni Babel. Esther Talia Casey, leikkona „Ég mæli með cafe latte og bjór á Boston. Það er það eina sem er þess virði að mæla með þessa dagana.“ Helgi Seljan, sjónvarpsmaður „Ég mæli með að fólk fari út að ganga af því að það fer að líða að vori. Það bætir og kætir. Síðan mæli ég með að fólk sé duglegt að virkja sambandið við vini og fjölskyldu.“ Aðalheiður Ólafsdóttir, söngkona „Ég mæli með nýja homma- staðnum Q- bar sem var að opna. Þar er fókusinn mest á samkyn- hneigða en hinir eru velkomnir líka. Það verður enginn fyrir vonbrigðum því það er búið að setja upp stærsta DJ-búr landsins.“ Ólafur Hjörtur Ólafsson, athafnamað- ur Útgáfufélag 365 prentmiðlar Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm. Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettabladid.is, Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@ frettabladid.is Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is, Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Rvk, sími 550 5000 Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir 550 5864 gretakaren@frett.is sirkus Hvað á að gera um helgina? Siv með rauðar strípur en heldur toppnum Þ egar breski leikarinn Jude Law kom til landsins í síðustu viku var strax farið að velta því upp hvaða íslenska kona myndi næla sér í kappann. Hann er jú myndarlegur, moldríkur og einsamall og því alls ekki slæmur mannkostur. Sirkus getur greint frá því að það var hin stórglæsilega leik- og söngkona Halla Vilhjálmsdóttir sem Jude Law féll fyrir á föstudagskvöldinu fyrir viku. Þau borðuðu saman á Domo eftir að Halla hafði lokið við að kynna X- Faktor, og sáust síðan í innilegum samræð- um á Sirkus áður en þau héldu út í nóttina, saman. Sirkus hefur jafnframt heimildir fyrir því að Halla og Jude hafi haldið miklu og góðu sambandi síðan leikarinn yfirgaf Ísland á laugar- dag. Símalínur á milli Bretlands og Íslands hafa verið rauðglóandi og greinilegt að Halla hefur heillað Hollywood- leikarann upp úr skónum. Halla hyggst flytja á ný til London nú í vor og verður fróðlegt að sjá hvort samband hennar og Jude Law verður nánara þegar hún er komin í stórborgina. Annars þarf Halla ekki að hafa áhyggjur. Breska götublaðið The Sun tók upp frétt Fréttablaðsins af samneyti Höllu og Jude Law og hún er því orðin fræg í Bretlandi. Hún er nú komin í hóp glæsikvenn- anna Sadie Frost, Nicole Kidman og Siennu Miller sem hafa allar á einn eða annan hátt verið orðaðar við Jude Law. Law á þrjú börn með Sadie Frost sem hann giftist árið 1997 og skildi við árið 2003. Fljótlega eftir það var hann orðaður við áströlsku þokkagyðjuna Nicole Kidman en þau léku saman í kvikmyndinni Cold Mountain. Hann kynntist síðan Siennu Miller við gerð myndarinnar Alfie en hætti með henni eftir að upp komst um að hann hafði haldið framhjá með barnfóstru barna sinna. Law hefur verið laus og liðugur en spurning hvort breyting verður á nú. Hefur Halla fangað hjarta breska sjarmörs- ins? Tíminn mun leiða það í ljós en eitt er víst að Halla verður ávallt nefnd til sögunnar sem ein af þeim konum sem Jude Law eyddi tíma með. HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR KRÆKTI Í HINN FJALLMYNDARLEGA JUDE LAW HEILLAÐI BRESKA SJARMÖRINN Halla Vilhjálmsdóttir er gullfalleg stúlka og virtist ekki eiga í erfiðleikum með að heilla einn eftirsóttasta piparsvein veraldar upp úr skónum. ÞRJÚ BÖRN OG SKILNAÐUR Sadie Frost eignaðist þrjú börn með Jude Law en hjónabandið entist ekki. ORÐRÓMUR Ekki hefur enn fengist staðfest hvort Nicole Kidman og Jude Law voru saman meðan á tökum stóð á myndinni Cold Mountain. „Ég ætla að njóta Vetrarhátíðarinnar í Reykjavík á föstudag og laugardag. Ég mun stjórna mínum vikulega útvarps- þætti á laugardaginn og fara á tónleika um kvöldið í Listasafni Íslands með frönsku hljómsveitinni Dionysos. Síðan stefni ég á að sjá söngleikinn Abbababb í fimmta sinn á sunnudaginn og hlæja mig máttlausan.“ Felix Bergsson, fjölmiðla- maður „Ég er að fara að passa barnabarnið mitt, sem er nafna mín, um helgina. Foreldrar hennar eru að fara að spila á Búðum þannig að ég og sonur minn, sem er níu ára, ætlum að fara heim til þeirra og passa Ellen yngri. Þetta er fyrsta fríhelgin í óralangan tíma og ég hlakka mikið til að passa þetta yndislega barn.“ Ellen Kristjánsdótt- ir, söngkona „Ég ætla að reyna að sjá Mein Kampf í Borgarleikhúsinu en annars sé ég fyrir mér að helginni verði eytt í faðmi fjölskyldunnar. Ég fer til London á mánudaginn og verð þar í tvær vikur að leika í Pétri Gaut í Barbican- leikhús- inu.“ Ólafur Darri Ólafsson, leikari „Ég ætla að leggjast í lærdóm um helgina en það á svo eftir að koma í ljós hvernig það gengur. Ég tek SAT-próf, sem er inntökupróf í bandaríska háskóla, eftir tvær vikur og þar sem ég flýg sérstaklega til Bandaríkjanna til að taka það þá er eins gott að vera vel undirbúin og ná því.“ Helena Sverrisdóttir, körfuboltakona Í HÓPI FLOTTRA KVENNA S iv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-herra er óhrædd við að brydda upp á nýjungum þegar kemur að hárinu á henni. Ekki er langt síðan hún fórnaði hinu flæðandi faxi sínu fyrir topp og nú er hún komin með rauðar strípur í hárið. Aðspurð sagðist Siv hafa gert þetta nú í febrúar en sú ferð á hárgreiðslustof- una hafi verið eftirminnileg í meira lagi. „Ég þurfti að rjúka út með hálfklippt hárið til að mæla fyrir frumvarpi um tæknifrjóvgun á Alþingi,“ segir Siv og hlær. „Ég kom síðan daginn eftir og lét ljúka við að klippa hárið.“ Hún segist hafa fengið jákvæð viðbrögð á hárið og þá sérstaklega eftir að hún lét klippa á sig topp í október á síðasta ári. „Það töluðu margir um það hvað ég væri orðin ungleg með toppinn enda var það greiðsla sem ég var með sem unglingur,“ segir Siv. Stjórnmálamenn gera oft allt til að vekja athygli á sér í aðdraganda kosninga og ljósi þess má búast við því að Siv bryddi upp á enn fleiri hárnýjungum þegar nær dregur kosningum í vor. „Það er allt eins von á því að það bregði fyrir alls kyns útfærsl- um,“ segir Siv. Aðspurð hvort hún hafi íhugað að lita hárið grænt í hinum eina sanna Framsókn- arlit sagðist Siv ekkert geta sagt um það. „Ég útiloka ekki neitt.“ RAUÐAR STRÍPUR Heilbrigðisráðherr- ann Siv hefur gaman að því að lífga upp á hárið sitt. MEÐ TOPPINN Siv tók sig vel út með toppinn þegar hún hjálpaði MND- sjúklingum að raða hjálpartækjum í gám til Mongolíu í síðasta mánuði. FLAKSANDI FAX Siv hafði verið lengi með þessa greiðslu þegar hún breytti til og fékk sér topp. SÁ EFTIRSÓTTASTI Verður Jude Law næsti tengdasonur Íslands? Hver veit? HIÐ FULLKOMNA PAR Sienna Miller og Jude Law þóttu fullkomin saman. Útlitið er þó greinilega ekki allt. Við mælum með

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.