Fréttablaðið - 23.02.2007, Side 66
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Djassklúbburinn Múlinn fagnar tíu
ára afmæli sínu með tónleikum á
Domo í kvöld. Klúbbur sá heitir í höf-
uðið á helsta djassgeggjara þjóðarinn-
ar, Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt
var heiðursfélagi og verndari Múlans
á sinni tíð. Múlinn er samstarfsverk-
efni Félags íslenskra hljómlistar-
manna, Jazzvakningar og Heita potts-
ins.
„Múlinn var stofnaður sem vett-
vangur fyrir djassleikara til þess að
koma tónleikum sínum inn í heild-
stæða dagskrá,“ útskýrir Ólafur Jóns-
son, einn forsvarsmanna Múlans.
„Áherslur starfsins hafa lítið breyst í
gegnum tíðina en það sem hefur staðið
okkur fyrir þrifum er að við höfum
ekki átt varanlegan samastað heldur
verið á sífelldu flakki milli húsa.“ Fyrr
í vetur færði Múlinn sig um set og
fluttist úr Þjóðleikhúskjallaranum í
ný húsakynni skemmti- og veitinga-
hússins Domo í Þingholtsstræti og
segir Ólafur komna góða reynslu á það
aðsetur. „Það er skemmtilegur staður,
bæði fyrir hlustendur og áhorfendur.
Það er fínn hljómur, góður andi og
ekki spillir að þeir sem þarna starfa
hafa tekið okkur afskaplega vel.“
Fleiri djassklúbbar eru starfandi á
höfuðborgarsvæðinu en Ólafur tekur
undir að Múlinn sé mögulega þeirra
sýnilegastur. „Enda er Múlinn sá eini
sem er með reglulega starfsemi yfir
vetrartímann. Við reyndar förum í
sumarfrí en þá tekur annað við, til
dæmis er þá boðið upp á djasstónleika
á Jómfrúnni.“ Djassheimurinn hér
heima á Fróni er ekki stór svo flestir
þekkjast innan hans og er jafnan sam-
starf um hátíðahald og stærri sam-
komur. Þannig fá til að mynda blús-
áhugamenn inni á Domo meðan á
Blúshátíð Reykjavíkur stendur í apríl.
Tónleikadagskrá vetrarins var
kynnt fyrir skömmu en Múlinn stend-
ur fyrir vikulegum tónleikum á
fimmtudagskvöldum þar sem ólíkir
straumar og stefnur í djasstónlist fá
að njóta sín fram á vorið. Ólafur
útskýrir að starf stjórnar Múlans snú-
ist fyrst og fremst um að taka á móti
umsóknum frá tónlistarhópum og
velja saman dagskrána. „Umsóknun-
um hefur fjölgað með árunum og nú
komast færri að en vilja,“ útskýrir
Ólafur og bætir við að nú taki um sex-
tíu tónlistarmenn þátt í tónleikahaldi
klúbbsins fram á vorið.
Nú um helgina verður hins vegar
hátíðarbragur í kjallaranum við Þing-
holtsstrætið því í tilefni afmælisins
koma góðir gestir frá Danmörku en
tríó Alex Riel heldur hér tvenna tón-
leika. „Riel er einn af þekktari músík-
öntum Dana en hann er mikill Íslands-
vinur,“ segir Ólafur. „Hann er
þrælflottur trymbill sem hefur spilað
með öllum í djassgeiranum sem eitt-
hvað hafa staldrað við í Danmörku.
Hann kemur líka með ansi skemmti-
legt tríó með sér, ungan píanista sem
er víst sá heitasti þar í landi um þessar
mundir og bassaleikarann Jesper
Lundgaard sem hefur líka verið lengi
að og er mjög virtur.“ Þetta er í fyrsta
sinn sem Riel leikur með eigin tríói en
hann hefur ávallt leikið hér með hljóm-
sveitum annarra.
Fjörutíu ár eru síðan Riel heimsótti
Ísland fyrst en hann er víst í fanta-
formi og hefur aldrei leikið betur.
„Ég sé mig alveg fyrir mér
sem áttræðan karl, enn þá
að leika, akandi um á
mótorhjóli, nakinn.“
Fáninn reistur á Iwo Jima
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Karl Júlíusson
Garðhúsum, Grindavík,
verður jarðsettur í Grindavíkurkirkju laugardaginn
24. febrúar klukkan 14.
Sigrún Guðmundsdóttir
Guðmundur Grétar Karlsson
Sigurður Rúnar Karlsson
Jón Júlíus Karlsson
Páll Tryggvi Karlsson Finndís Fjóla Birgisdóttir
Ronja Rán Pálsdóttir
Ylfa Dröfn Pálsdóttir
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Reykjavík
sími 587 1960 www.mosaik.is
LEGSTEINAR
TILBOÐSDAGAR
allt að 50% afsláttur
af legsteinum og
fylgihlutum
Sendum myndalista
70 ára afmæli
Aðalheiður Vagnsdóttir
(Heiða) Tröllagili 5, Akureyri.
Í tilefni af 70 ára afmæli mínu þann
18. febrúar vil ég senda öllum þeim
sem glöddu mig með g jöfum, blómum,
söng og heimsóknum þökk fyrir
ógleymanlega helgi.
Lifið heil.
50 ára afmæli
Auðunn Þ.
Þorgrímsson
verður að heiman á
afmælisdaginn.
Thelma Ásdísar á lista vinstri grænna
Thelma Ásdísardóttir hefur ákveðið
að fara í þingframboð og tekið 8. sæti
á lista Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Suðvesturkjör-
dæmi, hinum svokallaða Kraga.
Thelma vakti þjóðarathygli fyrir
endurminningar sínar, sem Gerður
Kristný Guðjónsdóttir skráði og
komu út í hittifyrra undir nafninu
Myndin af pabba.
Thelma gekk í Vinstrihreyfing-
una í fyrra og leist vel á þegar hún
var beðin um að taka sæti á lista
flokksins í Kraganum. „Ég gekk í
flokkinn því skoðanir mínar sam-
ræmast stefnu hans í flestum efnum
og vil gjarnan taka þátt í baráttu
hans.“ Thelma segir að barátta
vinstri grænna gegn ofbeldi, ekki
síst kynbundnu ofbeldi, hafi höfðað
sterkast til sín. „Í þeim efnum hafa
Kolbrún Halldórsdóttir og fleiri
staðið sig frábærlega og ég vil taka
þátt í því.“
Um áramótin varð uppi fótur og
fit þegar Múrinn birti færslu þar
sem Margrét Frímannsdóttir var
sögð heimfæra endurminningar
Thelmu upp á sjálfa sig í bókinni
Stelpan frá Stokkseyri, en ritstjórn
vefritsins er skipuð félögum úr
Vinstrihreyfingunni, þar á meðal er
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
flokksins. Gamanið þótti helst til
grátt og fór fyrir brjóstið á mörgum
en Thelma segist ekki hafa tekið það
nærri sér. „Ég tók því ekki eins illa
og margir hugðu. Ég leit á þetta sem
klaufaskap frekar en annað og er
viss um að þetta var ekki gert til að
meiða einn eða neinn, allra síst mig.
Það skemmdi því alls ekkert fyrir
milli mín og flokksins.“
Thelma vinnur hjá Stígamótum og
það lá óvenjuvel á henni þegar
Fréttablaðið hringdi. „Við vorum að
fá fréttir af því að það væri búið
að aflýsa þessari klámráðstefnu
og erum alsælar yfir því. Þetta
er flott yfirlýsing frá Íslandi.“