Fréttablaðið - 23.02.2007, Síða 68

Fréttablaðið - 23.02.2007, Síða 68
Það er sáraeinfalt að spila góðan fótbolta, þetta snýst bara um samvinnu og ekkert annað. Í raun er þetta voðalega líkt því sem maður gerir í svefnherberginu, því eins og í fótbolta er lítið vit í að gera allt einn. Þú sérð hvað ég meina, er það ekki? Fótbolti er enginn staður fyrir fólk sem ekki hugsar um annað en sjálft sig, alveg eins og ... Í svefnherberginu. Vúpps!!! Lyktar- eyðirinn brotnaði Farðu nú að viðurkenna að þú ert líklega með fótsvepp og eitthvað þarf að gera í því. Grunnskóli og Tattoo stofa Þrymirs Varstu búin að skoða þetta almennilega? Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? Hvað meinarðu? Ég meina, verður þú dalmatíuhundur, kjölturakkur eða púðlu hundur? Bara svona eins og ég er Svona nú, þú getur nú gert betur, ekki þetta metnaðarleysi Hefur einhver séð góða pennann minn? Það fer eftir því hvað þú meinar með séð? Ég meina, ég hef alveg séð hann. Það hafa allir séð þennan penna sem búa hérna? Það sem þú ert í raun að spyrja er hefur einhver fengið pennan lánaðan? Kannski fékk einhver hann lánaðan til að lita í litabókina sína eða til að teikna falleg hjörtu á hendina á sér ... Hefur einhver fengið góða pennann minn lánaðan? Skilgreindu, einhver ... Klámframleiðendur hafa hætt við fyrir- hugaða ráðstefnu á Íslandi eftir að hafa verið vísað frá Hótel Sögu, þar sem hópur- inn átti bókaða gist- ingu. Sjálfsagt varpa margir öndinni léttar, þar á meðal stjórn Bændasamtaka Íslands sem eiga Hótel Sögu, borgaryfirvöld og ýmis félagasam- tök, sem hafa lýst sig andvíg komu hópsins. Klámhundarnir hafa hins vegar risið upp á afturfæturna og mótmælt mannréttingabrotunum sem verið er að fremja í þessu fyrir- myndarríki. Persónulega finnst mér ráð- stefnan hafa fengið allt of mikla fjölmiðlaathygli, þótt umræðan sé vissulega þörf og hafi í þessu tilviki haft áhrif. Ég er nefnilega ansi hræddur um að sú neikvæða umfjöllun sem hópurinn hefur fengið eigi eftir að reynast honum ágætis auglýsing þegar öllu er á botninn hvolft, alveg sama þótt hann hafi afboðað komu sína til landsins. Mér finnst líka skrítið að áhugi klámframleiðenda á landinu skuli koma Íslendingum svona á óvart. Sérstaklega í ljósi þeirrar landkynn- ingar sem fyrirtæki eins og Ice- landair hafa staðið fyrir um árabil, þar sem gert er út á lauslæti lands- manna. Eða man enginn eftir banda- rísku slökkviliðsmönnunum og Playboy-tökuliðinu sem komu hing- að í sitt hvoru lagi en í þeim sama tilgangi: að komast yfir konur? Það er bara vonandi að við drög- um lærdóm af þessu máli og verð- um betur undirbúin þegar næsti klámhópur boðar komu sína hingað. Ég legg til að við eyðum þá ekki öllu púðri í þvaður heldur látum verkin tala, handtökum fólkið, tökum af því myndavélarnar og setjum í stofufangelsi í Austurbæjarskóla. Sleppum því ekki aftur undir bert loft fyrr en tilgangur þess liggur ljós fyrir og höfum það svo undir ströngu eftirliti. Það er alveg nóg að við skulum hafa leyft útlendingunum að nauðga landinu, látum þá ekki líka hossa sér úti í náttúrunni. GRENSÁSVEGI 48 • S ÍM I 553 1600 Í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR Áttu von á gestum?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.