Fréttablaðið - 23.02.2007, Page 78
MÖGNUÐ MYND MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNA-
TILÞRIFUM FRÁ FOREST WHITAKER SEM EINN
GRIMMASTI HARÐSTJÓRI SÖGUNNAR.
MISSIÐ ALLS EKKI AF ÞESSARI MYND!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.30, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA
THE NUMBER 23 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
THE LAST KING OF SCOTLAND kl. 5.20, 8 og 10.35 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.20, 8 og 10.35
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.30
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
THE NUMBER 23 kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
GHOST RIDER kl. 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
NOTES ON A SCANDAL kl. 6 B.I. 12 ÁRA
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
“FORREST WHITAKER ER HREINT ÚT SAGT MAGNAÐUR Í
HLUTVERKI HARÐSTJÓRANS OG SÝNIR SVO AÐ EKKI VERÐUR
UM VILLST AÐ HÉR FER EINN FREMSTI LEIKARI
SAMTÍMANS. B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ
MYND EFTIR JOEL
SCHUMACHER
Myndin Ghost Rider byggir á sam-
nefndri teiknimyndasögu um mótor-
hjólakappann Johnny Blaze, sem
selur skrattanum sál sína til að
bjarga lífi föður síns. Mörgum árum
síðar, þegar Blaze er orðinn einn
þekktasti ofurhugi heims, vitjar
djöfullinn hans til að innheimta
skuldina. Blaze breytist í Drauginn,
logandi beinagrind á eldspúandi
mótorfáki sem eltir uppi þá sem
hafa fallið í ónáð hjá þeim vonda, í
þessu tilfelli son hans Blackheart
sem vill búa til helvíti á jörð. Inn í
fléttuna flækist æskuást mótorhjóla-
töffarans, Roxanne, og dularfullur
útfararstjóri sem reynist Blaze betri
hjálp en engin.
Leikstjórinn Mark Steven John-
son á að baki myndir á borð við hinar
slöku Daredevil og Elektra en
skemmst er frá því að segja að
honum tekst betur upp í Ghost Rider
en þeim fyrrnefndu, enda með
kappnóg af peningum milli hand-
anna í þetta sinn. Því miður var hins
vegar ekki úr háum söðli að detta og
þegar upp er staðið getur Ghost
Rider varla talist burðug mynd, sér-
staklega í ljósi þess að undanfarin ár
hafa leikstjórar á borð við Sam
Raimi, Bryan Singer og Robert
Rodriguez sett ný viðmið í kvik-
myndagerð af þessu tagi.
Í fyrsta lagi er handritið dauð-
hreinsað, flatt og fyrirsjáanlegt.
Sjarminn er víðs fjarri og persónu-
galleríið hið dauflegasta. Búið er að
stoppa í kollvikin á Nicolas Cage,
sem er hér um bil eini munurinn á
honum í þessari rulllu og fjölmörg-
um öðrum sem hann hefur leikið
áður. Barmur Evu Mendez prýðir
ófá atriði en að öðru leyti fær hún
lítið að spreyta sig. Skúrkateymið er
sérstaklega tilkomulítið; Peter
Fonda er heillum horfinn og klisju-
legur í hlutverki skrattans, Wes
Bentley er veimiltítulegur sem
skollasonurinn og skósveinar hans
lítilfjörlegir.
Sem betur fer er keyrslan sæmi-
leg og þrátt fyrir dauða punkta hist
og her leiðist Ghost Rider aldrei út í
óbærileg leiðindi og er því mögulega
boðleg afþreying fyrir þá sem þurfa
að fylla upp í tveggja tíma tómarúm.
Mark Steven Johnson þarf þó að
þramma býsna langt í sjö mílna
skóm til að komast með tærnar þar
sem Raimi og Singer hafa hælana.
Sálarlaus beinasleggja
Nýtt plötusnúðatvíeyki steig fram
á sjónarsviðið á dögunum, þegar
systurnar Gyða og Steinunn Bergs
þreyttu frumraun sína á B5.
„Við erum nú varla byrjaðar,
þannig séð. Við höfum bara spilað
í þetta eina skipti,“ sagði Gyða létt
í lund, en frumraunin fór fram í
svokölluðu Minimal-partíi. „Við
spiluðum fyrst og svo tóku Mar-
geir og Jón Atli við. Þetta var rosa-
lega skemmtilegt og mjög vel
heppnað,“ bætti hún við.
Aðdragandinn að þessum
fyrstu skrefum þeirra systra á
plötusnúðabrautinni var þó ekki
mjög langur, að sögn Gyðu. „Við
erum bara að leika okkur, spila
góða tónlist og sprella. Við þekkj-
um Margeir og Jón Atla, svo þetta
kom svolítið til í gegnum þá.“ Að
sögn Gyðu nutu þær Steinunn
einnig dyggrar aðstoðar við undir-
búninginn. „Við eigum góða DJ-
vini sem hjálpa okkur og kenndu
okkur á þetta allt saman,“ sagði
hún.
Systurnar hafa mikinn áhuga á
tónlist, eins og vænta má. „Við
hlustum mjög mikið á tónlist, þótt
við séum ekkert alltaf að búa hana
til. Við erum líka með svipaðan
tónlistarsmekk og hlustum mikið
á fallega, elektróníska tónlist,“
sagði Gyða. Þær systur eru afar
samrýmdar, enda voru þær fengn-
ar til að leika tvíburasystur í
Travis-myndbandi hér um árið.
„Við erum bestu vinkonur og
höfum alltaf verið,“ sagði Gyða
kát.
Þær Gyða og Steinunn munu
endurtaka leikinn á B5 á laugar-
daginn. „Það er búið að ganga frá
því að við verðum þarna einu sinni
í mánuði á næstu mánuðum,“ upp-
lýsti Steinunn. „Svo bíðum við
bara eftir gullnum tilboðum,“
bætti Gyða við.
Nýtt plötusnúðatvíeyki
Roman Polanski og Coen-bræð-
urnir eru á meðal 35 leikstjóra
sem hafa búið til stuttmyndir í
tilefni af sextíu ára afmæli kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes.
Hver mynd er þriggja mínútna
löng og fjallar um það að fara í
bíó. Verða þær sýndar á næstu
Cannes-hátíð í maí.
Á meðal fleiri leikstjóra sem
taka þátt eru Lars Von Trier,
Wim Wenders, Alejandro Gonz-
ales Inarritu, Ken Loach og
David Cronenberg. Gerist mynd
Cronenberg inni á baðherbergi.
„Enginn leikstjóranna vissi
nokkuð um söguþræði hinna
stuttmyndanna,“ sagði skipu-
leggjandi Cannes-hátíðarinnar,
Gilles Jacob. Myndirnar verða
sýndar hinn 20. maí. Hátíðin sjálf
stendur yfir frá 16. til 27. maí.
Formaður dómnefndar verður
breski leikstjórinn Stephen
Frears.
Gera stuttmyndir
Hreinar hendur
örugg samskipti
334 kr.237 kr.
5.988 kr.
DAX Hár&húðsápa
m.dælu 600ml
DAX Handsápa
mild 600ml m.dælu
DAX Skammtari
snertifrír
Rekstrarvörur
1982–200725ára
R
V
62
24
B
Á tilboð
i í
febrúar
2007
DAX Han
dspritt,
krem, sá
pur ofl.
DAX Handspritt
732kr.
Jóhanna Runólfsdóttir
sjúkraliði, ráðgjafi hjá RV