Fréttablaðið - 23.02.2007, Page 86
Sigurlaginu í undankeppni Euro-
vision, Ég les í lófa þínum, verður
mikið breytt fyrir lokakeppnina í
Helsinki í maí. Jafnframt verða
tvær nýjar línur settar inn í
íslenska textann.
„Ég var alltaf með hugmyndir
varðandi endanlegan frágang
lagsins og því verður breytt mjög
mikið,“ segir Sveinn Rúnar Sig-
urðsson, lagahöfundur. „Það er
hægt að gera enn betur.“
Hann segir að viðtökurnar við
laginu hafi verið vonum framar.
„Þetta virðast vera bestu við-
brögðin við lagi sem ég hef átt hér
heima,“ segir Sveinn, sem hefur
áður samið lög sem hafa m.a.
komið út í Finnlandi, Argentínu og
Ástralíu. „Það er frábært að heyra
það og lesa að 70% þjóðarinnar sé
sátt við framlagið. Vegna þessa
mikla meirihluta þá hljóta menn
að vera afskaplega þakklátir og
það eflir menn í þeirri viðleitni að
gera enn betur.“
Upptökur á nýrri útgáfu lags-
ins, bæði á íslensku og ensku, hóf-
ust í gærkvöldi. Jafnframt hefst á
næstunni gerð tónlistarmynd-
bands við lagið. Þurfa Sveinn,
Eiríkur Hauksson og félagar að
skila af sér bæði lögunum og
myndbandinu fyrir 10. mars og
verður því mikið að gera hjá þeim
á næstunni. „Þetta verður flott-
asta myndband Íslandssögunnar.
Eiki er „original“ og töff og við
virðum hann það mikið að við
ætlum ekki að troða honum í hefð-
bundið videó þar sem konur eru í
fyrirrúmi,“ segir Sveinn. „Við
ætlum að koma samlöndum okkar
í hæstu hæðir.“
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég vona að við séum ekki orðnir
of gamlir en þegar mig og Sveppa
dreymdi um frægð og frama var
þetta akkúrat þátturinn sem okkur
langaði að komast í,“ segir Auðunn
Blöndal úr ærslabelgjatríóinu
Strákunum en þeir hyggja á end-
urkomu í sjónvarp á vormánuðum
með raunveruleikaþáttinn Leitin.
Auðunn og Sveppi ætla þó ekki að
taka upp gamla ósiði á borð við að
míga í buxurnar eða drekka ógeðs-
drykki heldur láta aðra um það.
Um er að ræða hæfileikaleit
þar sem reynt verður að finna arf-
taka Strákanna sem notið hafa
mikilla vinsælda undanfarin ár.
Auðunn var reyndar staddur í
leigubíl í miðborg Barcelona með
leigubílstjóra sem skildi enga
ensku þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. Mátti heyra hróp og köll
Sverris Þórs leigubílstjóranum til
leiðbeiningar en eins og greint var
frá í Fréttablaðinu í gær sáu þeir
félagar Barcelona tapa fyrir Liver-
pool í Meistaradeild Evrópu þar
sem góðvinur þeirra Eiður Smári
Guðjóhnsen var í eldlínunni.„Það
eru allir komnir með nóg af söng í
sjónvarpi. Þessi þáttur á að gefa
því fólki tækifæri sem vill ekki
eða getur ekki sungið,“ segir Auð-
unn.
Kristófer Dignus, guðfaðir
Strákanna, upplýsir að sigurveg-
ararnir fái sinn eigin sjónvarps-
þátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus og
því sé til mikils að vinna. „Við
verðum með inntökupróf 8. og 11.
mars á Akureyri og í Reykjavík.
Við veljum síðan tíu til tólf kepp-
endur sem keppa um hylli Strák-
anna,“ segir Kristófer. Auðunn og
Sverrir verða aðaldómarar en
Pétur Jóhann einhvers konar heið-
ursforseti dómnefndar. Kristófer
viðurkennir að með þessu sé verið
að gera hálfgert grín að öðrum
hæfileika-og raunveruleikasjón-
varpsþáttum. „Þarna verður
útsláttarfyrirkomulag og þetta
verður okkar eigin útgáfa af þessu
formati,“ segir Kristófer en áætl-
að er að fyrsti þátturinn fari í loft-
ið á Stöð 2 20. apríl nk., um leið og
fyrsti sigurvegari X-Factor verð-
ur krýndur
Líkt og í öðrum raunveruleika-
þáttum mun fjöldi gestadómara
leggja drengjunum lið og nægir
þar að nefna Tvíhöfða, Radíus-
bræður og einhverja úr Fóst-
bræðragenginu. „Þetta er ótrúlega
góður gluggi fyrir þá sem hafa
engan áhuga á að láta rödd sína
heyrast heldur hafa hæfileika á
öðrum sviðum.“
„Allir þessir karlmenn sem eru
að syngja um ástina eru hálf-
gerðir vælukjóar.“
Sigurlagi Eurovision mikið breytt
Kvikmyndagerðarfólk frá fram-
leiðslufyrirtækinu ITN Factual
er statt hér á landi til að gera
klukkustundarlangan þátt um
Magnús Scheving sem sýndur
verður á Discovery Channel. Um
er að ræða heimildarmyndaseríu
sem ber heitið World‘s Most Succ-
essful People og verður kvik-
myndagerðarfólkið á ferð og flugi
næsta hálfa árið. Tökuliðið dvelst
hér á landi í þrjá daga og fylgdi
meðal annars Magnúsi í Borgar-
nes í gær þar sem hann hélt fyrir-
lestur fyrir nemendur Háskólans
á Bifröst.
Samkvæmt upplýsingum frá
framleiðslufyrirtækinu verður
fylgst með Magnúsi í leik og
starfi og ítarlegt viðtal tekið á
heimili hans en reiknað er með að
um fimmtíu milljónir manns sjái
þessa þætti í hverri viku. Sama
fyrirtæki gerði Europe‘s Richest
þar sem fjallað var um þá Evr-
ópubúa sem náðu hvað lengst í
fyrra og vakti sú þáttaröð mikla
athygli á sömu stöð.
Í yfirlýsingu sem ITN sendi
Latabæ í Bretlandi kemur fram
að árangur sjónvarpsþáttanna
og þessa verkefnis hafi ekki
farið framhjá neinum. „Við
trúum því að þessi ótrú-
lega saga á bak við Lata-
bæ eigi erindi við
heimsbyggðina,“ skrif-
ar aðstoðarframleið-
andinn Katja Eldek.
Discovery sýnir Magnúsi áhuga
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is