Fréttablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 1
S á - kvef f Ég nota Sterimar, það hjálpar Eidís Anna Björnsdóttir lét vaða og keypti sér tíu dala peysu á flóamarkaði í New York.„Ég bjó og starfaði í New York fyrir nokkrum árum og hafði þá óskaplega gaman af því að gramsa á flóamörkuðum. Þegar ég fann þessa peysu á einum slíkum langaði mig strax í hana, en samt tímdi ég ekki alveg að kaupa hana af því hún kostaði heila tíu dollara. Ég hafði verið svo dugleg að kaupa mér föt að ég var eitthvað hikandi við þetta en svo gat ég ekki haldið aftur af mér lengur og lét vaða. Keypti peysuna og hef notað hana mjög mikið síðan,“ segir Eidís og tekur það fram að nælan í peysunni sé prjónuð af Unni móðursystur hennar. „Unnur móðursystir mín er alveg ótrúlega góð í höndunum. Hún hefur í gegnum tíðina prjón- að allt milli himins og jarðar fyrir mig, allt frá Barbífötum yfir í skartgripi og er mikil uppáhaldsfrænka,“ segir Eidís og af röddinni að dæma er hún stolt af þessari frænku sinni. Eidís Anna var með þeim fyrstu sem útskrifuðust úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2003. Síðan þá hefur hún starfað við búningagerð og fleira sem tengist fatahönnun en í október síðastliðnum söðlaði hún um er hún hóf störf hjá Habitat þar sem hún sinnir hlutverki inn- kaupastjóra. Hún segist sátt við nýja starfið, enda fær fagurkerinn að njóta sín innan um fíneríið frá Habitat. „Þetta er stöðug vinna, ég fæ tækifæri til að ferðast og er innan um fallega hluti allan daginn þannig að þetta hentar mér ákaflega vel,“ segir Eidís að lokum. Keypti tíu dala silfurpeysu Blöðrudagar í BLAZE á Selfossi dagana 2-3 mars. 5-100% afsl. Komdu og líttu við BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag LAGERSALA SKÍFUNNAR SKEIFUNNI 17 OPIÐ ALLA DAGA VIKUNNAR 11-19 Vestmannaeyjabær krefst rúmlega 27 milljóna króna skaðabóta vegna samráðs olíufélag- anna fyrir útboð bæjarins í apríl 1997. Stefnan var send lögmönnum olíufélaganna í gær en málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á næstu dögum. Þetta staðfesti Steinar Guðgeirsson, hæstaréttarlög- maður og faglegur framkvæmdastjóri Lögfræðistofu Reykjavíkur, í gær. Í stefnunni kemur meðal annars fram að olíufélög- in hafi greitt hlutdeild í framlegð af viðskiptum við Vestmannaeyjabæ sín á milli. Er meðal annars vitnað til bréfs framkvæmdastjóra markaðsviðskipta stórviðskipta hjá Skeljungi sem hann sendi Olís og Olíufélaginu, nú Keri, 10. mars 1998. Í bréfinu er gerð grein fyrir boði Skeljungs um að greiða Olíufélaginu og Olís hluta af framlegð vegna viðskipta við Hafnarsjóð Vestmannaeyja. Í bréfinu er þess jafnframt krafist að Olíufélagið greiði Olís og Skeljungi hlutdeild í framlegð vegna annarra viðskipta við Vestmannaeyjabæ. Krefst bóta vegna samráðsins Verðlækkanir í dag Virðisaukaskattur á matvörum, geisladiskum, bókum og öðru lækkar í dag. Verð til neytandans lækkar um sex til fjórtán prósent. Vörugjöld á matvörum verða einnig felld niður. „Þótt fyrr hefði verið,“ segir verslunarstjóri Melabúðarinnar. Virðisaukaskattur á matvöru lækkar í sjö prósent í dag. Vörugjöld á matvælum öðrum en sykri og sætindum fell- ur niður, auk þess sem virðis- aukaskattur af veitingaþjónustu, geisladiskum, bókum, blöðum og tímaritum lækkar í sjö prósent. Flest matvæli báru áður fjór- tán prósenta virðisaukaskatt, en á gosdrykkjum, sælgæti og öðrum vörum var hann 24,5 pró- sent. Lækkunin í dag færir virð- isaukaskattinn niður í sjö pró- sent, hvort sem hann var fjórtán eða 24,5 prósent áður. Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu má ætla að verð til neytenda lækki um rúm sex prósent þar sem virðisaukaskatt- ur var áður fjórtán prósent, en um rúm fjórtán prósent þar sem skatturinn var áður 24,5 prósent. Vörugjöld á flestum þeim mat- vælum sem báru þau áður falla niður í dag, og almennir tollar á innfluttum óunnum kjötvörum lækka um allt að fjörutíu pró- sent. Matvæli eru ekki einu vörurn- ar sem lækka í verði í dag. Virð- isaukaskattur á geisladiskum og hljómplötum lækkar úr 24,5 pró- sentum í sjö, og verðið því um rúm fjórtán prósent. Virðisauka- skattur á bókum, tímaritum, blöðum og húshitun, sem og veggjald í Hvalfjarðargöngin, lækkar úr fjórtán prósentum í sjö. Virðisaukaskattur af hótel- gistingu lækkar þar að auki úr fjórtán prósentum í sjö og skatt- ur af veitingaþjónustu lækkar í sjö prósent, en hann var áður 24,5 prósent. Friðrik Ármann Guðmunds- son, verslunarstjóri Melabúðar- innar, sagði starfsfólk sitt vera í startholunum með verðmiðana þegar talað var við hann í gær- kvöldi. „Við lokum klukkan átta og verðum að merkja fram eftir kvöldi. Það þarf að taka alla gömlu verðmiðana og setja nýja í staðinn.“ Hann segir ekkert minna hafa verið að gera í gær en venjulega, þrátt fyrir að það hafi verið sein- asti dagur fyrir verðlækkun. „Ég er mjög ánægður með þessa skattalækkun. Þótt fyrr hefði verið, segi ég bara.“ Tæp 49 prósent segjast vilja að Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, verði næsti forsætisráðherra, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Í könnun Fréttablaðsins í nóvember á síðasta ári nefndu tæp 48 prósent nafn hans. Tæp 26 prósent segjast vilja að Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri græns, verði næsti forsætisráðherra. Fleiri nefna nú nafn hans en í nóvember þegar tæp sautján prósent nefndu hann. Tæp nítján prósent segjast nú vilja að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingarinn- ar, verði næsti forsætisráðherra. Færri nefna nú hennar nafn en í nóvember, þegar 22 prósent vildu að hún yrði forsætisráðherra. Helmingur vill Geir H. Haarde Slá X-Factor við Öll nágrannaríki Íraks, þar á meðal Íran og Sýrland, hafa fallist á að taka þátt í ráðstefnu um ástandið í Írak, sem haldin verður í Bagdad um miðjan mars. Fulltrúar Bandaríkjanna, Bret- lands og Kína verða á ráðstefn- unni, og líklega Rússar og Frakkar einnig, auk nágrannaríkjanna Sádi- Arabíu, Tyrklands, Egyptalands, Jórdaníu, Kúvæt og Barein. Markmiðið er að finna leið til friðar í Írak. Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur staðfest að Bandaríkin verði með og að þau styðji það að Írönum og Sýrlendingum sé einnig boðið. Bandaríkin og Íran taka þátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.