Fréttablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 24
hagur heimilanna
Íslendingar eru óupplýstir
um erfðabreytt matvæli.
Nær öll Evrópuríki skylda
framleiðendur til að taka
fram hvort vörur eða
afurðir eru erfðabreyttar.
Ísland er ekki eitt þeirra.
Hreinleiki íslenskra afurða
virðist ekki eiga við rök að
styðjast. Þetta kemur fram
í nýju kynningarátaki um
erfðabreyttar lífverur og
matvæli sem nú stendur
yfir.
Að kynningarátaki um erfða-
breyttar lífverur og matvæli, sem
nú stendur yfir, koma Landvernd,
Matvís, Náttúrulækningafélag
Íslands, Neytendasamtökin og
Vottunarstofan Tún en fulltrúum
þessara stofnana og samtaka þykir
sem íslenskur almenningur og
stjórnvöld séu ekki nægilega upp-
lýst um erfðatækni. Nýr bækling-
ur hefur verið gefinn út í tilefni
átaksins og heitir hann Erfða-
breytt erfðatækni og spurningar
sem hún vekur. Samkvæmt honum
hafa öll fyrirheit erfðatækninnar
brugðist.
Á kynningarfundi um þessi
matvæli kom fram að hér á landi
séu erfðabreytt matvæli og fóður
seld inn án merkinga. Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, segir notkun þessa
fóðurs hér á landi fara vaxandi.
Það brjóti í bága við þá hreinleika-
ímynd sem Íslendingar hafa lagt
sig fram við að skapa. Hann telur
notkun þess ógna útflutningi á
landbúnaðarvörum. „Komist
bandaríska verslunarkeðjan Whole
Foods Market að því að hér á landi
er erfðabreytt fóður gefið skepn-
um er ég viss um að viðskiptum
við framleiðendur skyrs og lamba-
kjöts verður rift,“ segir Jóhannes
en verslunarkeðjan hefur beitt sér
gegn því að bjóða upp á vörur sem
hafa tengsl við erfðatækni.
Hann segir Ísland nær eina ríki
Evrópu sem ekki hefur leitt í lög
reglur um merkingar á þessum
vörum. Von sé á reglugerð frá
umhverfisráðherra á þessu ári
þótt hann telji að rétt hefði verið
að ganga lengra í henni. Íslending-
ar ættu að vera fyrirmynd í þess-
um málum vegna þeirrar ímyndar
sem þeir vilja hafa af landinu.
Þeir sem koma að átakinu eru
sammála um að reynslan sem
menn hafi af ræktun erfðabreyttra
matvæla síðustu tíu ár sýni að
tæknin sé varhugaverð. Í Banda-
ríkjunum hafi verið sýnt fram á að
eftir skamman tíma þurfi meira af
skordýraeitri við ræktun erfða-
breyttra matvæla en í annarri
ræktun. Blásið er á fullyrðingu um
að erfðabreytt matvæli eig eftir að
brauðfæða hungraðan heim og
bent á að erfðatæknin sé helst
notuð í Bandaríkjunum og því
haldið fram að ræktun erfða-
breyttra planta í fátækari ríkjum
heims hafi haft mikla ógæfu í för
með sér.
Segja fyrirheit erfða-
tækninnar brostin
Guðjón Bergmann jógakennari
mundar tuskuna í gríð og erg og lumar
á uppskrift að ætum hafragraut.
Lét gabba sig í London
Lotus Professional
pappírsvörur
R
V
62
27
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Halldór Sigdórsson
Þjónn, aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
Á tilboði í
mars 2007
LinStyle servíettur og dúkar,
JustOne servíettur og
servíettubox
LinStyle servíettur
40x40cm, 50stk
794 kr.
2.388 kr.
JustOne startpakki
servíettubox og 600
servíettur