Fréttablaðið - 01.03.2007, Side 67
Nýstofnað félag áhugafólks um
heimildarmyndagerð, Reykjavík
Documentary Workshop, gengst
fyrir heimsókn heimildarmynda-
gerðarmannins Micha X. Peled til
Íslands í samstarfi við Kvikmynda-
miðstöð Íslands og námsbrautina
„Hagnýt menningarmiðlun“ við
Háskóla Íslands. Micha Peled gerði
kvikmyndagerð að aðalstarfi sínu
árið 1992. Hann hefur leikstýrt
fjölda heimildarmynda, sjónvarps-
þátta og stuttmynda. Nýjasta
mynd hans, China Blue, verður
sýnd í Norræna húsinu kl. 20 í
kvöld og mun leikstjórinn svara
spurningum að henni lokinni.
Micha Peled gerði kvikmynda-
gerð að aðalstarfi sínu árið 1992.
Hann hefur leikstýrt fjölda heim-
ildarmynda, sjónvarpsþátta og
stuttmynda. Flestir kannast við
miðann sem merktur er „Made in
China“ en á undanförnum árum
hefur umræðan um þrældóm og
harðræði verkafólks í vefnaðar-
vöruiðnaði aukist. Í mynd Peled er
skyggnst bak við luktar dyr kín-
verskra verksmiðja og nafnlausum
verkamönnum gefið andlit og rödd.
Tökur á myndinni voru stöðvaðar
ítrekað af kínverskum yfirvöldum,
tökuliðið var handtekið og mynd-
efni gert upptækt.
Myndin tekur 86 mínútur í sýn-
ingu og er hún sýnd með enskum
texta. Aðgangur á sýninguna er
ókeypis.
Á morgun er boðið upp á nám-
skeið þar sem Peled ræðir verk sín
en það fer fram í sal 132 í Öskju
milli kl. 13-18. Aðgangseyrir á
námskeiðið er 2.000 kr. og fer
greiðsla fram á staðnum en ekki er
hægt að taka við greiðslukortum.
Þrælakistur í Kína
Sinfóníuhljómsveit Íslands slær
ekki slöku við eftir velheppnaða
tónleikaferð um Evrópu. Sveitin
heldur tónleika í Háskólabíói í
kvöld ásamt finnsku söngkonunni
Lilli Paasikivi.
Af óviðráðanlegum ástæðum
mun Gunnar Kvaran ekki geta
leikið áður auglýstan sellókonsert
eftir John Speight á tónleikum og
því hefur efnisskránni verið
breytt.
Þar er nú að finna forleik og
sinfóníu nr. 3 eftir Ludwig van
Beethoven og Wesendonck Lieder
sem söngkonan knáa mun flytja.
Stjórnandi er eftir sem áður
Lawrence Renes.
Tónleikarnir hefjast að vanda
kl. 19.30.
Wagner og Beethoven
Viðurkenning Hagþenkis var veitt í gær: Íslenskir
fiskar eftir Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og
Jón Baldur Hlíðberg fékk viðurkenninguna sem
felst í viðurkenningarskjali og fjárhæð samkvæmt
ákvörðun félagsfundar Hagþenkis hverju sinni og
er upphæðin nú 750 þúsund krónur. Í umsögn dóm-
nefndar segir um verkið: „Íslenskir fiskar eftir
Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og Jón Baldur
Hlíðberg er unnin er af fágætri alúð og vandvirkni.
Hún er þaulunnin og færir okkur fjölþættan fróð-
leik um fiska, einkenni þeirra, flokkun og ferðir um
höf og vötn. Fjallað er um vel á fjórða hundrað teg-
undir, með ítarlegri lýsingu, kortum og greinar-
gerð um heimkynni þeirra auk fróðleiks um nytjar
af þeim og hvar og hvenær hinir fágætustu hafa
veiðst við landið. Viðurkenningu Hagþenkis 2007
hljóta Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og Jón
Baldur Hlíðberg fyrir að hafa dregið nytjaskepnur
og furðukvikindi úr sjó og upp á bókarsíður, með
snilldarlegum myndum og ljósu máli.“
Viðurkenning Hagþenkis
Skámáni Kynnir:
KILLer
JOE
Skám
áni Ky
nnir:
KILLe
r
JOE
JOE
Skámáni Kynnir:
KILLer
JOE
Skámáni Kynnir:
KILLer
JOE
Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins
Tilboðsverð til Vörðu- og Námufélaga kr. 1.900 á fyrstu 10 sýningarnar
Skámá
ni Kynn
ir:
KILLe
r
JOE
SÖNGLEIKURINN
Í tilefni 120 ára afmælis Landsbankans fá Námufélagar
35% afslátt af miðaverði á allar sýningar gegn
framvísun Námukortsins.
EFTIR HUGLEIK DAGSSON & FLÍS. LEIKSTJÓRI: STEFÁN JÓNSSON
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
FRUMSÝNING 8
. MARS. FORSA
LA HAFIN!
FORSÝNINGAR 1
. 2. OG 3. MARS.
AÐEINS 1500 KR
. FYRSTIR KOMA
FYRSTIR FÁ!