Fréttablaðið - 01.03.2007, Page 22
[Hlutabréf]
Vöruskiptahalli í janúar nam 6,9
milljörðum króna samkvæmt mæl-
ingu Hagstofu Íslands. Í mánuðin-
um voru fluttar út vörur fyrir 19,2
milljarða króna og inn fyrir 26,2
milljarða króna.
Í janúar 2006 voru vöruskiptin
hins vegar óhagstæð um 10,1 millj-
arð króna á sama gengi, að sögn
Hagstofunnar. Verðmæti útflutn-
ingsins var 6,4 prósentum minna á
föstu gengi en á sama tíma í fyrra
og verðmæti innflutningsins 14,6
prósentum minna. Greiningardeild
Glitnis segir af þessu tilefni hilla
undir bata á vöruskiptajöfnuði við
útlönd, þótt heldur dragi hægar úr
vöruskipahallanum en áður hafi
verið gert ráð fyrir. Samdráttur er í
innflutningi fjárfestingarvöru sem
sagður er væntanlega tengjast því
að það styttist í lok framkvæmda
við álver og virkjun á Austurlandi.
„Á hinn bóginn jókst innflutningur
neysluvöru, að bifreiðum undan-
skildum, töluvert milli ára sem gæti
bent til þess að neytendur séu ekki
farnir að herða beltin að marki eftir
geysilega neyslugleði undanfarin
misseri,“ segir Glitnir, en telur þó
útlit fyrir áframhaldandi bata á
vöruskiptum eftir því sem líður á
árið.
Beltin ekki enn farin að herðast
Verulegar sveiflur hafa verið á
gengi hlutabréfa í Eimskipafélagi
Íslands að undanförnu. Verðmat
sem greiningardeild Landsbank-
ans sendi frá sér um miðjan febrú-
ar, þar sem mælt var með kaupum
í Eimskipafélaginu, olli strax mik-
illi hækkun og fór gengi bréfanna
úr 31 krónu á hlut upp í 41 krónu
við lokun markaða á þriðjudaginn.
Þetta var tæplega þriðjungs geng-
ishækkun á tveimur vikum.
Félagið, sem fór á markað í
byrjun árs 2006 undir heitinu
Avion Group, fór þar með yfir
útboðsgengið 38,3 í fyrsta skipti
síðan í maí í fyrra.
Í gær lækkuðu bréfin hins
vegar um 8,8 prósent og enduðu í
37,4 krónum á hlut. Eggert Magn-
ússon, stjórnarmaður í Eimskipa-
félaginu, hefur fest kaup á hluta-
bréfum í félaginu fyrir 75
milljónir króna. Fóru viðskiptin
fram á genginu 41.
Rússíbanaferð Hf.
Eimskipafélagsins
Félagið hækkaði um þriðjung á tveimur vikum.
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
lækkaði annan daginn í röð en
miklar sveifur hafa verið á hluta-
bréfamörkuðum, hér sem annars
staðar, í vikunni. Úrvalsvísitalan
lækkaði um 1,5 prósent í gær og
endaði í 7.304 stigum eftir að hafa
náð sögulegu hámarki á mánudag-
inn í 7.605 stigum. Hún hefur því
lækkað um fjögur prósent á tveim-
ur dögum.
Velta gærdagsins nam 16,6
milljörðum króna í miklum fjölda
viðskipta sem voru alls 1.512. Við
opnun Kauphallarinnar lækkaði
virði margra fyrirtækja hratt,
einkum fjármálafyrirtækja, og fór
Úrvalsvísitalan niður fyrir 7.200
stig áður en hún rétti sig við.
Frá áramótum hefur vísitalan
hækkað um 13,9 prósent.
Þessi lækkun kemur í beinu
framhaldi af miklum óróa á alþjóð-
legum hlutabréfamörkuðum í vik-
unni eftir að kínverski markaður-
inn féll eins og steinn á
þriðjudagsnótt að íslenskum tíma.
Íslensku fjármálafyrirtækin eiga
stóra eignarhluti í skráðum,
erlendum félögum sem farið hafa
lækkandi í virði. Hlutabréf í
Bandaríkjunum hækkuðu við
opnun markaða í gær eftir að vísi-
tölur höfðu ekki lækkað meira í
tæp fimm ár á þriðjudaginn. -
Úrvalsvísitalan lækkar um 4% á tveimur dögum.
Peningaskápurinn ...
Straumur-Burðarás verður að
öllum líkindum fyrsti íslenski
bankinn til að skrá hlutafé sitt í
erlendri mynt.
Bankinn birti í gær dagskrá
aðalfundar sem fer fram hinn 8.
mars. Í henni kemur fram að fyrir
aðalfundinn verði lögð tillaga um
að stjórn verði heimilt að skrá
hlutafé bankans í evrur.
Friðrik Jóhannsson, forstjóri
Straums-Burðaráss, segist reikna
með að tillagan verði samþykkt á
aðalfundi. Ákvörðunin sé eðlilegt
framhald af því að færa bókhald
bankans í evrum. „Með þessu
gerum við bankann gjaldgengari á
erlendum mörkuðum og mun
aðgengilegri fyrir erlenda fjár-
festa.“
Um 54 prósent af tekjum
Straums-Burðaráss eru í erlendri
mynt. Það hlutfall mun að öllum
líkindum aukast þar sem bankinn
stefnir á að verða alþjóðlegur fjár-
festingarbanki.
Marel tilkynnti einnig í gær að
tillaga sama efnis yrði lögð fyrir
aðalfund félagsins hinn 8. mars.
Meira hlutafé í evrur