Fréttablaðið - 01.03.2007, Side 10
Karlmaður hefur verið
sýknaður af því að slá annan
hnefahögg í andlitið við söluturn í
Austurstræti, með þeim afleiðing-
um að sá síðarnefndi nefbrotnaði.
Sá síðarnefndi krafðist tæplega
700 þúsund króna í skaðabætur.
Framburður þess sem fyrir
líkamsárásinni varð var nokkuð á
reiki. Þá sýndi lögregla vitni að
atburðinum mynd af ákærða sem
hafði birst framan á tímariti og
sagði hann að þetta væri gerand-
inn. Hann var því ekki látinn
benda á ákærða úr hópi annarra
manna og taldi dómurinn það
aðfinnsluvert hvernig staðið var
að sakbendingunni.
Sýknaður af
hnefahöggi
„Af hverju geta
demókratar og repúblikanar ekki
bara sest niður og spjallað
saman?“ spurði Arnold Schwarzen-
egger, ríkisstjóri
Kaliforníu, í
ræðu sem hann
flutti á fundi hjá
félagi blaða-
manna í
Washington.
„Stjórnmál
snúast um
málamiðlanir.
Um að gefa og
þiggja. Man
enginn hér í Washington eftir þeim
kafla í réttarfarsbókum sínum?“
Schwarzenegger, sem er
repúblikani, hefur oft tekið afstöðu
með demókrötum þvert ofan í vilja
flokksfélaga sinna. Til dæmis vill
hann að ákveðin verði tímaáætlun
um brotthvarf bandaríska hersins
frá Írak.
Vill að allir séu
vinir í pólitík
Jónmundur Guðmars-
son, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi,
telur að nokkrar leiðir geti komið
til greina til að leysa kjaradeiluna
við kennara, til dæmis að hvert
sveitarfélag semji fyrir sig við
sitt fólk eins og gert hafi verið í
samningum við kennara áður en
launanefnd sveitarfélaga varð til.
„Það var á sínum tíma ósk Kenn-
arasambandsins að gerðir yrðu
heildarsamningar milli fulltrúa
sveitarfélaganna og Kennara-
sambandsins. Það fyrirkomulag
hefur verið við lýði síðan með
sínum kostum og göllum,“ segir
Jónmundur og kveðst ekki ætla
að hafa frumkvæði að breyting-
um því hann sé ekki viss um að
þetta myndi gera kjaraviðræður
sveitarfélaga og grunnskólakenn-
ara farsælli.
„Enginn hefur lýst yfir að
þetta ætti að gera. Ég hef sjálfur
sagt að mér finnist það koma til
greina en þá hef ég lagt á það ríka
áherslu að við sem sveitarfélag
værum að semja beint við okkar
kennara, ekki við Kennarasam-
band Íslands. Báðir aðilar myndu
þá segja sig frá þessum heildar-
pakka og ná saman augliti til aug-
litis.“
Jónmundur segir að bæði
sveitarstjórnarmenn og kennarar
hafi áhuga á öðru fyrirkomulagi
en verið hefur. Það geti verið
fólgið í því að launanefndin og
samninganefnd KÍ stilli betur
saman strengi og reyni að ná
saman um grundvallarsjónarmið
áður en farið sé út í kjarasamn-
ingsgerðina sjálfa. „Mér finnst að
menn eigi að vera opnir fyrir
möguleikum og láta á það reyna
hvort leiðin sé fær.“
Björk Einisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heimili og skóla,
segir að staðan í kennaradeilunni
sé slæm og samtökin vilji að allir
hlutist til um að leysa deiluna.
„Það á að leita allra leiða til að
leysa þennan hnút,“ segir hún.
Kanna færar leiðir
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi telur að kennarar og sveitarstjórnarmenn eigi að
vera opnir fyrir möguleikum og láta reyna á það hvort ýmsar leiðir geti verið
færar til að leysa kjaradeilu kennara og sveitarfélaga.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinn-
ar, gerði í gær athugasemdir við
störf þingsins vegna skorts á
umræðu um kjaradeilu kennara.
Launanefnd sveitarfélaga og
Félag grunnskólakennara slitu
nýverið viðræðum sínum um
framkvæmd endurskoðunar-
ákvæðis í samningum aðilanna frá
því í nóvember 2004.
Sagði Ingibjörg að rekstur
grunnskólanna væri stærsta verk-
efni sveitarfélaganna og að þingið
ætti að takast á við þann fjárhags-
vanda sem þau ættu í þannig að
leysa mætti deiluna. Geir H.
Haarde forsætisráðherra sagði
það hins vegar vera verkefni
deiluaðila að koma sér saman um
aðrar leiðir en þá hefðbundu til að
semja.