Fréttablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 8
Hagur Hafnarfjarðar boð
ar til opins fundar í
Hafnarborg Hafnarfirði í
kvöld kl. 20.00.
Frummælendur á fundi
num eru:
• Sveinn Hannesson, fra
mkvæmdastjóri SI
• Örn Friðriksson, vélvirk
i
• Ingi B. Rútsson, formað
ur Hags Hafnarfjarðar
Misnotkun og smygl
á lyfseðilsskyldum lyfjum er að
verða meiri en notkun ólöglegra
fíkniefna í heiminum, að því er
fram kemur í ársskýrslu alþjóð-
lega fíkniefnaeftirlitsins fyrir árið
2006, sem kemur út í dag.
Þessari þróun fylgir jafnframt
nýtt svið viðskipta, sem er fram-
leiðsla og sala á fölsuðum lyfjum
– iðnaður sem einatt getur reynst
banvænn viðskiptavinunum.
Víða um heim, sums staðar í
Evrópu, Afríku og Asíu, er mis-
notkun löglegra lyfja nú þegar
orðin meiri en notkun ólöglegra
fíkniefna á borð við heróín, kókaín
og e-töflur.
Í Bandaríkjunum einum er mis-
notkun á verkjalyfjum, örvandi
lyfjum, svefnlyfjum og öðrum lyf-
seðilsskyldum lyfjum orðin meiri
en sem nemur „nánast öllum ólög-
legum fíkniefnum að undanskildu
kannabis,“ segir í skýrslunni.
Alþjóðlega fíkniefnaeftirlitið,
INBC, er sjálfstæð stofnun á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
hefur það hlutverk að fylgja eftir
alþjóðlegum samningum um eftir-
lit með ávana- og fíkniefnum.
Í nýju ársskýrslunni kemur
fram að allt að helmingur allra
lyfja sem notuð eru í svokölluðum
þróunarlöndum sé fölsuð lyf, það
er að segja lyf sem líta út fyrir að
vera framleidd í viðurkenndum
lyfjaverksmiðjum en eru bara
ódýr eftirlíking.
„Í staðinn fyrir að lækna geta
þessi lyf verið banvæn,“ sagði
Philip O. Emafo, forseti INBC, og
bætti því við að hættan væri
„raunveruleg og umtalsverð“.
Notkun ólöglegra fíkniefna er
þó enn sem fyrr alvarlegt vanda-
mál víðast hvar í heiminum. Í
skýrslunni kemur meðal annars
fram að framleiðsla ópíums í
Afganistan hafi náð nýjum hæðum
á síðasta ári. Enn fremur kemur
fram að misnotkun ópíumefna sé
hvergi meiri en í Íran.
Misnotkun á
lyfjum eykst
Misnotkun á lyfseðilsskyldum lyfjum er meiri í
Bandaríkjunum en sem nemur ólöglegum fíkniefn-
um að undanskildu kannabis.
Fiskiskipum í
íslenska fiskiskipaflotanum fækk-
aði um 60 í fyrra eftir því sem tölur
Hagstofunnar leiða í ljós. Voru þau
nærri 1.700 talsins við lok síðasta
árs, þar af um helmingur vélskip.
Samanlögð stærð þeirra er um 97
þúsund brúttótonn.
Þá voru 63 togarar í fiskiskipa-
flotanum og hafði þeim fækkað um
tvo en heildarstærð togaraflotans
var um 78 þúsund brúttótonn. Enn
fremur voru opnir fiskibátar um
780 talsins og samtals um 3.700
brúttótonn að stærð. Mest fækkun
varð í þeim hópi, um nærri fimm-
tíu.
Sextíu fiskiskip
voru afskráð í fyrra