Fréttablaðið - 01.03.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 01.03.2007, Síða 4
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Vestmannaeyjabær krefst þess í stefnu, sem send var lögmönnum olíufélaganna í gær, að Vestmannaeyjabæ verði greiddar rúmar 27 milljónir króna í skaðabætur vegna samráðs olíufélaganna fyrir útboð bæjarins, og fyrirtækja í hans eigu, 14. apríl 1997. Steinar Guðgeirsson, hæstaréttarlögmaður og faglegur framkvæmdastjóri Lögfræðistofu Reykja- víkur, staðfesti við Fréttablaðið í gær að stefna í mál- inu hefði verið send til lögmanna olíufélaganna. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun næsta mánaðar. Steinar segir málið efnislega náskylt máli Reykja- víkurborgar gegn olíufélögunum. Í stefnunni er meðal annars vitnað til gagna um að olíufélögin hafi ákveðið fyrirfram hvernig skipta ætti framlegð á milli félaganna í tengslum við viðskipti olíufélaganna við Vestmannaeyjabæ. Í bréfi dagsettu 10. mars 1998, sem sent var af framkvæmdastjóra markaðssviðs stórviðskipta hjá Skeljungi til starfsmanna Olís og Olíufélagsins, nú Kers, býðst Skeljungur til þess að greiða Olíufélag- inu og Olís hluta af framlegð vegna viðskipta við Hafnarsjóð Vestmannaeyja. Jafnframt er þess kraf- ist í bréfinu að Olíufélagið greiði Olís og Skeljungi hlutdeild í framlegð vegna annarra viðskipta við Vestmannaeyjabæ. Lögmenn olíufélaganna hafa til þessa neitað því að framlegðarskipting hafi verið viðhöfð í öðrum útboð- um en fyrir útboð Reykjavíkurborgar. Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Olís og jafn- framt stjórnarformaður félagsins, sagði í viðtali við Fréttablaðið eftir að dómur héraðsdóms var kveðinn upp 12. desember í fyrra að mál Reykjavíkurborgar væri ólíkt öðrum málum sem hugsanlega gætu komið til kasta dómstóla. „Þetta tiltekna mál [Reykjavíkur- borgar og Strætó bs.] er svolítið sérstakt því þetta er eina málið, af öllum þeim sem voru rannsökuð í umfangsmikilli rannsókn, þar sem fyrir lá að félögin höfðu viðurkennt samráð vegna tilboðs, sammælst um verð, og það kemur okkur því ekki á óvart að það þurfi að borga. Önnur mál eru ekkert lík þessu.“ Þessu mati Gísla Baldurs eru forsvarsmenn Vest- mannaeyjabæjar og Steinar Guðgeirsson lögmaður fullkomlega ósammála. Greiddu hlutdeild í framlegð sín á milli Olíufélögin Olís, Skeljungur og Olíufélagið, nú Ker, greiddu hluta af framlegð af viðskiptum við Vestmannaeyjabæ árið 1997 sín á milli. Lögmenn olíufélaganna hafa neitað því. Stefnan í málinu var send lögmönnum olíufélaganna í gær. Sýnatökur úr farfuglum sem koma hingað til lands hefjast um miðjan næsta mánuð, að sögn Halldórs Runólfs- sonar yfirdýra- læknis hjá Land- búnaðarstofnun. Þær munu fara fram í samvinnu við Náttúrufræði- stofnun. „Við munum vinna eftir svipaðri áætlun og við unnum í fyrra,“ segir yfirdýra- læknir. „Á síðasta sumri voru tekin um 400 sýni úr villtum fuglum og síðari hluta árs voru tekin önnur 400 úr alifuglum. Við reiknum með því, að öllu óbreyttu, að halda svipuðum dampi.“ Sýnatökur úr fuglum hefjast Martin Ingi Sigurðsson, 24 ára gamall læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í gær Nýsköp- unarverðlaun forseta Íslands. Martin Ingi var verðlaunaður fyrir verkefni um áhrif aldurs á utangenamengi mannsins. Honum tókst meðal annars að sýna fram á að mengin breyttust með árunum. Verkefnið var unnið í tengslum við líkan um tilurð sjúkdóma, sem leiðbeinendur Martins bjuggu til. „Þetta er auðvitað fyrst og fremst gríðarlegur heiður og viðurkenning á mínu starfi og afskaplega ánægjulegt,“ segir Martin. Hann er sérstaklega ánægður með að verðlaunin séu kennd við forseta Íslands, það greiði fyrir þegar sótt sé um skóla. „Það er mjög gagnlegt fyrir fólk sem hyggur á framhaldsnám erlendis að fá svona viðurkenningu. Hún hjálpar fólki til að komast til náms erlendis og ég vonast til að hún hjálpi mér nú líka. Svo er þetta auðvitað mikil hvatning til að halda áfram með rannsóknirnar,“ segir Martin, en hann stefnir á að birta niðurstöður sínar í vísindatímariti í lok þessa árs. Læknanemi hlaut verðlaunin Fulltrúar Samfylking- arinnar í Norðvesturkjördæmi vilja að Hvalfjarðargöngin verði gjaldfrjáls. Virðisaukaskattur á veggjald í Hvalfjarðargöngunum lækkar úr fjórtán prósentum í sjö í dag. Einstakar ferðir fólksbíla lækka í 900 krónur. Á blaðamannafundi í dag munu þingmaður og frambjóðendur flokksins leggja til að veggjald í göngin verði fellt niður. Meðan á fundinum stendur verður ökumönnum gefin frí ferð í göngin. Fundurinn verður haldinn við norðurenda ganganna, á bílaplani fyrir ofan gjaldskýli, klukkan eitt í dag. Vilja gjaldfrjáls Hvalfjarðargöng Íslensk stjórnvöld hafa stofnað til stjórnmálasam- bands við Mið-Afríkuríkið Austur- Kongó. Fastafulltrúar ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Hjálmar W. Hannesson og Atoke Ileka, undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í New York á föstudaginn. Um sextíu milljónir manns búa í Austur-Kongó, sem er fyrrverandi nýlenda Belgíu og öðlaðist sjálf- stæði árið 1960. Sameinuðu þjóðirnar hafa unnið með stjórn- völdum að uppbyggingu lýðræðis og stöðugleika þar eftir blóðuga borgarastyrjöld undanfarina ár. Samband við Austur-Kongó
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.