Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 6
Tæp 49 prósent þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins segj- ast vilja að Geir H. Haarde, forsæt- isráðherra og formaður Sjálfstæð- isflokksins, verði næsti forsætisráðherra landsins. 51,4 pró- sent karla nefna Geir en 45,6 pró- sent kvenna. Þegar spurt var 7. nóv- ember hvern fólk vildi sem næsta forsætisráðherra sögðust 47,9 pró- sent vilja að Geir héldi áfram. Rúmur fjórðungur, eða 25,8 pró- sent, segist vilja að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri græns, verði næsti forsætisráðherra. Lít- ill munur er á afstöðu eftir kyni, en 26,8 prósent íbúa á höfuðborgar- svæðinu nefna Steingrím og 24,3 prósent íbúa á landsbyggðinni. Í könnun blaðsins í nóvember sögð- ust 16,6 prósent vilja að Steingrím- ur verði næsti forsætisráðherra. 18,5 prósent segjast vilja að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði næsti forsætisráðherra. 16,7 pró- sent karla og 20,5 prósent kvenna nefna nafn hennar. Lítill munur er á afstöðu eftir búsetu. Í könnun blaðsins í nóvember nefndu 22,0 prósent nafn Ingibjargar Sólrúnar. 7,1 prósent vildi ekki að einhver þeirra þriggja yrði næsti forsætis- ráðherra og nefndi einhvern annan. Hringt var í 800 kjósendur sem skiptust jafnt eftir kyni og hlut- fallslega eftir kjördæmum. Spurt var; Hver af eftirtöldum vilt þú að verði næsti forsætisráðherra? Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir eða Steingrímur J. Sigfús- son? 77,6 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. Tæpur helmingur vill Geir Allir sem ráðnir eru til starfa hjá KFUM og -K skrifa upp á beiðni til sakaskrár ríkisins um að félaginu verði afhentar allar upplýsingar um viðkomandi af sakaskránni. Ragnar Snær Karlsson hjá KFUM segir að þegar menn sæki þar um starf, til dæmis í sumar- búðunum, gangist þeir undir að félagið megi afla upplýsinga um þá hjá sakaskránni. „Þegar viðkomandi er síðan ráðinn skrifar hann undir bréf sem er sent til sakaskrárinnar. Þá kemur allt saman fram, líka þeir hlutir sem venjulega fyrnast á sakavottorðum,“ segir Ragnar og vísar hér til þess að á venjulegum sakavottorðum komi brot ekki fram að tilteknum tíma liðnum. Dæmi um þetta er að brot kyn- ferðisbrotamanns sem setið hefur í fangelsi kemur ekki fram á hefð- bundnu sakavottorði eftir að fimm ár eru liðin frá því hann er látinn laus. Að sögn Ragnars hefur enn enginn umsækjandi mótmælt því að gefa upplýsingar um sig af sakaskrá. „Fólk tekur þessu mjög vel og er ánægt með að þetta skuli gert því það sýnir að það er ákveðin festa til staðar,“ segir Ragnar og upplýsir að sú regla sé í gildi að hætti starfsmaður og byrji aftur sé aftur kallað eftir nýjum upplýs- ingum úr sakaskránni. Stefán Konráðsson, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, segir að fyrir nokkrum árum hafi komið upp sú umræða innan hreyfingarinnar að krafist yrði sakavottorða. „En ÍSÍ hefur ekki boðvald yfir mannaráðningum félaganna þannig að við ákváðum að gera ekkert í þessu þá,“ segir Stefán og bendir á að upp undir áttatíu pró- sent félagsmanna ÍSÍ eru yngri en sextán ára. „Við erum með barnahreyfingu í höndunum og þurfum alltaf að vera á varðbergi. Þjálfarar hafa verið sakaðir um áreitni og þess vegna höfum við lagt áherslu á að allir séu vakandi. Við höldum for- mannafundi með forystumönnum íþróttahreyfingarinnar á hverju ári og það kæmi mér ekkert á óvart að við myndum ræða þetta mál þar,“ segir Stefán Konráðs- son. Skoða sakavottorð nýrra starfsmanna Samkvæmt starfsreglum hjá KFUM og -K er sakaferill allra starfsmanna skoð- aður við ráðningu. Engar samræmdar reglur eru hjá ÍSÍ um skoðun á bak- grunni starfsfólks íþróttafélaga. Framkvæmdastjórinn segir menn á varðbergi. Nýverið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness mál á hendur rúmlega tvítugum manni fyrir að hafa haft í vörslu sinni 418 e-töflur ætlaðar til söludreif- ingar. Forsaga málsins er sú að faðir mannsins keypti tvö grömm af hassi hinn 14. júlí á síðasta ári og seldi öðrum manni það síðar sama dag með 1.000 króna hagnaði. Var hann þá handtekinn fyrir fíkniefnasölu. Lögreglan gerði í kjölfarið húsleit á heimili hans. Þar fundust 11,44 grömm af mjólkur- sykursdrýgðu amfetamíni í fórum eiginkonu hans, auk e- taflanna sem sonur hans er ákærður fyrir vörslu á, en þau búa öll á sama stað. Tekinn ásamt foreldrunum Aðalfundur SPRON verður haldinn í Borgarleikhúsinu við Listabraut í Reykjavík fimmtudaginn 8. mars 2007 og hefst hann kl. 16.15. Komin er fram ósk um hlutfallskosningu til stjórnarkjörs á aðalfundinum. Framboðslistum skal skilað til stjórnar fyrir kl. 17.00 mánudaginn 5. mars á skrifstofu sparisjóðsins, Ármúla 13a. Framboðslistum skulu fylgja meðmæli fimm stofnfjáreigenda og samþykki frambjóðenda. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun. Reykjavík, 1. mars 2007 Sparisjóðsstjórnin Aðalfundur SPRON 2007 A R G U S / 0 7 -0 1 7 4 Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráð- herra fundaði með Thabo Mbeki, forseta Suður- Afríku, á síðasta degi opinberrar heimsóknar til landsins í gær. Valgerður ræddi um orkumál og viðskipti við forsetann og möguleika á tvíhliða samningum sem íslensk stjórnvöld hafa áhuga á að gera við landið. „Fundurinn með Mbeki forseta var sérstaklega eftirminnilegur,“ segir Valgerður. „Við ræddum ástandið í Afríku og þá ímynd sem heimsálfan hefur í Evrópu og þá staðreynd að dökk mynd er dregin upp af álfunni almennt. Vissulega eru hér mörg vandamál en ekki síður mörg tækifæri og mikill uppgangur og framfarir á mörgum sviðum.“ Valgerður segir að viðskiptalífið sé að taka við sér í Suður-Afríku og þar sé hagvöxtur, ólíkt því sem gerist víða annars staðar. „Það eru því viðskiptatækifæri hérna, það er ekki nokkur vafi á því.“ Valgerður segist hafa minnst á það við Mbeki forseta að Afríka væri frábrugðin því sem hún hafði gert sér í hugarlund fyrirfram. „Það mun hafa áhrif á það hvernig ég mun taka á málum sem varða Afríku til framtíðar.“ Valgerður segir jafnframt að sín fyrsta heimsókn til álfunnar muni skilja eftir afar jákvæðar minningar og ekki sé það síst vegna hversu fólkið er gott heim að sækja. Ertu hlynnt(ur) hugmyndum um netlögreglu? Á að refsa fyrir brot á skógræktarlögum? Deiliskipulag um tengibraut við Álafosskvos var dregið til baka af bæjarstjórn Mosfellsbæjar í gær. Stjórnin samþykkti þetta einróma. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hafði áður stöðvað framkvæmdirnar með bráða- birgðaúrskurði. Í honum var bent á að ekki hefði verið gert ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna mengunar í skipulagið. Í samtali við RÚV sagði Ragnheiður Ríkarðsdóttir bæjarstjóri að í nýju skipulagi verði leitast við að skýra betur mótvægisaðgerðir vegna mengun- ar sem tengibrautinni fylgir. Hefur frestað framkvæmdum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.