Fréttablaðið - 01.03.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 01.03.2007, Síða 12
Um helmingur finnskra kjósenda vill að Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands og formaður Miðjuflokksins, verði áfram forsætisráðherra eftir þingkosningarnar í landinu um miðjan mars. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem dagblaðið Helsingin Sanomat lét gera. Þó að vinsældir Vanhanens hafi aukist kemur einnig fram í könn- uninni að Eero Heinäluoma, leið- togi finnskra jafnaðarmanna, og Jyrki Katainen, formaður Hægri flokksins, halda svipuðum stuðn- ingi og áður. Heinäluoma hefur stuðning ellefu prósenta kjósenda en Katainen sjö prósenta. Vanhanen haldi áfram Forstjóri Baugs gaf aldrei fyrirmæli um hvernig ætti að bóka ákveðnar færslur í bók- hald Baugs, að sögn Lindu Jóhannsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs. Linda bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, og svaraði spurn- ingum sækjanda og verj- enda um bókhald Baugs, til dæmis um meintar ólöglegar lán- veitingar til stjórnenda Baugs og fyrirtækja þeim tengdum. Hún sagði Jón Ásgeir Jóhann- esson, forstjóra Baugs Group og einn ákærðu í málinu, ekki hafa gefið nokkur fyrirmæli um hvern- ig ætti að bóka færslur í bókhaldi félagsins, en hann er ákærður fyrir að hafa staðið að lánveiting- um úr Baugi til tengdra aðila. Hún sagðist sjálf hafa ákveðið að færa á ógreitt hlutafé Jóns Ásgeirs, systur hans, föður og fyr- irtækja þeim tengdum á viðskipta- reikninga þessara aðila. Til þess hafi hún ekki þurft nein fyrirmæli, enda fjármálastjóri félagsins. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í málinu, spurði Lindu hvort hún hafi vitað til þess að Baugur hafi lánað fé á þeim árum sem hún starfaði hjá fyrirtækinu, utan við kreditkortaviðskipti í verslunum félagsins. „Nei, ég man ekki til þess að við höfum verið í lánastarfsemi,“ sagði Linda, og sagði það sinn skilning að þær færslur sem ákæruvaldið heldur fram að séu ólögleg lán til stjórn- enda félagsins og tengdra aðila séu ekki lán heldur stöður á viðskipta- reikningum viðkomandi. Með ákveðnum færslum í bók- haldi Baugs fylgdi fylgiskjal sem skýrði færsluna sem lán. Spurð um þetta sagði Linda að ekki megi lesa of mikið í það, hún hafi útbúið umrædd skjöl í töflureikni til að hafa einhverja yfirsýn yfir færsl- urnar, skjölin hafi verið fremur stöðluð og orðið lán því þar inni. Jón Ásgeir gaf ekki fyrirmæli Fyrrverandi fjármálastjóri Baugs segir forstjóra fé- lagsins engin fyrirmæli hafa gefið um hvernig ætti að bóka meint lán í bókhaldinu. Umræddar færslur hafi ekki verið lán, og félagið ekki í lánastarfsemi. BAUGS M Á L I Ð FRUMKVÖÐLAVERÐLAUN ICELANDAIR 2007 Icelandair leitar að samstarfsaðila með hugmynd að vöru eða viðburði sem höfðað getur til erlendra ferðamanna. Vöruna eða viðburðinn þarf að vera hægt að bjóða upp á frá september 2007. Sá er leggur fram bestu hugmyndina af þessu tagi hlýtur nafnbótina Frumkvöðull Icelandair (Icelandair Pioneer Award Winner) og verður afurðin sem slík tekin undir verndarvæng Icelandair og markaðssett erlendis á vefsíðum félagsins. Verðlaunin eru 500.000 krónur og 10 farseðlar sem gilda á leiðum Icelandair til að kynna vöruna eða viðburðinn erlendis. ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 59 01 0 2. 2 0 0 7 + Tillögum skal skila í síðasta lagi þann 22. mars 2007, á einu A4-blaði, á frumkvodull@icelandair.is eða póstsenda með utanáskriftinni: Frumkvöðlaverðlaun Icelandair, Aðalskrifstofa Icelandair, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík. Maður á fimmtugs- aldri var handtekinn á sveitabæ í Rangárþingi ytra í gærmorgun eftir að hann hafði hótað að drepa fyrrverandi sambýliskonu sína. Fimm menn úr sérsveit Ríkislög- reglustjóra aðstoðuðu lögregluna á Hvolsvelli og Selfossi við handtök- una því vitað var að maðurinn ætti skotvopn. Alls tóku tíu lögreglu- menn þátt í að handtaka manninn. Maðurinn og konan voru í sam- búð en slitu samvistum fyrir nokkru. Konan flutti þá til foreldra sinna á næsta bæ. Maðurinn hafði oftsinnis áreitt hana á síðustu vikum. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hafði maðurinn verið ölvaður í nokkra daga og ítrekað hótað henni símleiðis, en hún var stödd í Reykjavík þegar maðurinn var handtekinn. Konan var orðin hrædd um líf sitt. Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli þorðu lögreglumenn á staðn- um ekki annað en að kalla eftir aðstoð sérsveitarinnar vegna þess að skotvopn voru á bænum. Maður- inn sýndi ekki mótþróa við hand- töku. Lögreglan hefur áður þurft að hafa afskipti af manninum, sem á við áfengisvandamál að stríða. Hann var færður í fangageymslur á Selfossi, þar sem hann var látinn sofa úr sér og var yfirheyrður í gær. „Hver skyldi nú vera að hringja frá Havana?“ spurði Hugo Chavez, forseti Venesúela, og bað um kaffibolla skömmu eftir að símatími forsetans hófst í útvarpinu í Venesúela á þriðjudag- inn. „Guð minn góður, það er Fidel,“ hrópaði hann síðan þegar ljóst var að Fidel Castro frá Kúbu var á lín- unni. „Hvernig hefurðu það?“ spurði Chavez og Castro sagðist hafa það gott. „Ég er að ná mér. Mér finnst ég vera kraftmeiri og sterkari og ég hef meiri tíma til að læra. Ég er orðinn námsmaður á ný,“ sagði hann við Chavez. Þeir spjölluðu saman í hálftíma, sögðust báðir lesa mikið og vera sífellt að læra meira. Þeir hrósuðu hvor öðrum fyrir gott minni og Castro sagði fréttir af verðhruni í kauphöllunum í Kína og New York, sem Chavez hafði ekki heyrt um þegar símtalið átti sér stað. Þeir sögðust báðir vera afar bjartsýnir á framtíð byltingarinn- ar og töldu greinilegt að kapítal- isminn væri allur á undanhaldi. Þátturinn var fluttur á Kúbu skömmu síðar og aðdáendur Castros í Havana voru himinlif- andi. „Tónninn í rödd hans er full- kominn,“ sagði til dæmis 46 ára kona sem vinnur við tölvur og vildi ekki gefa upp annað nafn en Santa Elena. Sorphirðumaður að nafni Cebeno sagði samtalið við Chavez sýna að Castro væri á góðum bata- vegi og myndi „birtast á ný“. Castro segist vera að ná sér Stavros Dimas, umhverfisráðherra Evrópusam- bandsins, lýsti ánægju með nýja stefnu Íslands í loftslagsmálum á fundi með Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra í gær. Hann sagði mikilvægt að tækniþekking Íslendinga á nýtingu jarðhita yrði aðgengileg og nýtt sem víðast í heiminum. Það myndi gagnast vel í baráttunni við loftlagsbreyting- ar. Á fundinum ræddu ráðherr- arnir loftslagsbreytingar og þá samninga sem framundan eru um aðgerðir gegn losun gróðurhúsa- lofttegunda eftir 2012, þegar Kýótó-bókunin fellur úr gildi. Íslandi hrósað fyrir loftlagsmál
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.