Fréttablaðið - 01.03.2007, Page 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Fiskifélag Íslands hafði
forgöngu um hvaladráp
með loftárásum banda-
ríska varnarliðsins fyrir
hálfri öld. Með þessu átti
að vernda reknet síldarsjó-
manna á Faxaflóa. Nokkur
hundruð hvalir voru drepn-
ir á þennan hátt án sýnilegs
árangurs.
Fiskifélag Íslands hafði forgöngu
um að bandaríski flotinn varpaði
sprengjum á háhyrninga á síldar-
miðunum í Faxaflóa árið 1956.
Farnar voru ítrekaðar ferðir til
drápanna með þeim árangri að
hundruð dýra eru talin hafa verið
drepin á þennan hátt. Þetta var
„lokaatlaga“ að hvölunum eftir að
íslenskir sjómenn höfðu drepið
hvali með öllum tiltækum ráðum
árin á undan. Ástæðan fyrir dráp-
unum var sú að háhyrningarnir
eyðilögðu reknet síldarsjómanna.
Þetta er meðal þess sem rifjast
upp við rannsókn kaldastríðsnefnd-
arinnar svokölluðu á gögnum er
varða öryggismál Íslands en dr.
Hrefna Margrét Karlsdóttir sagn-
fræðingur birti grein árið 1998 þar
sem sagt er frá þessari tilraun til
að fæla hvali af síldarmiðunum
suðvestan við landið. „Háhyrning-
urinn lagðist á netin og át úr þeim
og við það eyðilögðust þau. Það
varð enginn mælanlegur árangur
af þessum loftárásum því háhyrn-
ingurinn hélt auðvitað áfram að éta
síld. Íslenskir sjómenn höfðu drep-
ið háhyrning með ýmsu móti áður
en þessi aðferð var reynd árin á
undan; reyndar með aðstoð frá
varnarliðinu,“ segir Hrefna sem
hyggst birta ítarlega grein um
„síldarstríðið“ á næstunni.
Aðdragandinn að loftárásum
Bandaríkjahers á háhyrningsvöð-
ur eru skipulagðar árásir síldarsjó-
mannanna sjálfra tveimur árum
fyrr. Þá fékkst einnig stuðningur
varnarliðsins með forgöngu Fiski-
félags Íslands. Í september voru
gerðir út 50 bátar frá Suðurnesjum
og Reykjavík þar sem sjómennirn-
ir voru vopnaðir eigin byssum en
auk þess voru tveir varnarliðs-
menn á hverjum bát vopnaðir vél-
byssum. Á stuttum tíma var mikill
fjöldi dýra drepinn og sjómennirn-
ir greindu frá því síðar að sjórinn
hefði verið blóðlitaður hvert sem
litið var. Framtakið skilaði engu og
því þótti reynandi að fæla háhyrn-
inginn í burtu með loftárásum.
„Mér skilst að notaðar hafi verið
bæði venjulegar sprengjur og
djúpsprengjur til að drepa háhyrn-
inginn,“ segir Hrefna. „Heimildir
benda til að nokkur hundruð
háhyrningar hafi verið drepnir
með þessum loftárásum sem lauk
árið 1957.“
Sprengjum varpað á hvali
„Grunnskólarnir hér í Maputó
eru allir þrísetnir og sumir fjór-
setnir þannig að skólahúsgögn
sem gefin eru fyrir íslenskt fé
verða sannarlega vel nýtt og
börnin sitja ekki lengur á gólf-
inu,“ segir Jóhann Pálsson,
umdæmisstjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ).
Nýlokið er tilraunaverkefni
ÞSSÍ og fræðsluyfirvalda í höf-
uðborg Mósambík um endur-
bætur á aðbúnaði grunnskóla í
Mapútó. Verkefnið gaf það góða
raun að viðræður um samstarfs-
samning til nokkurra ára um
slík verkefni standa yfir.
Jóhann segir að síðastliðið
haust hafi verið ákveðið að hefja
þetta samstarf með því að láta
smíða skólahúsgögn í tvo skóla.
Að auki var komið upp salernis-
aðstöðu við annan skólann, tíu
vatnsklósettum.
Forsaga þessa átaks er að
fræðslustjóri Mapútóborgar
kom síðastliðið haust með beiðni
til ÞSSÍ um aðstoð við að búa
nokkra grunnskóla húsgögnum
og koma upp salernisaðstöðu
við þá skóla sem verst voru
staddir. „Hér í borginni eru ríf-
lega hundrað grunnskólar og
marga þeirra skortir sárlega
húsgögn. Þegar við fórum að
skoða skólana kom mér mest á
óvart að þeir eru þrí- og fjór-
setnir,“ segir Jóhann.
Skólabörnum boðið til sætis
Uppfyllir draum og lærir á píanó
Með annarri hendinni
Reykingafólk er
líka fólk
– Vel lesið
Vertu inní
Fréttablaðinu
með þitt
kynningarefni
Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband
í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is
Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög
Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Notaðu mest lesna* blað landsins til að
dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina
*Gallup maí 2006
Hjartað slær
í miðborginni