Fréttablaðið - 15.03.2007, Page 11
Boðað er til fundar fimmtudaginn 15. mars 2007 kl. 20:00 á Grand Hótel
kjaramál
Fjarfundir: Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar, Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki, Heilbrigðisstofnunin Blönduósi, Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum
Pólska þingið heiðr-
aði í gær 97 ára gamla konu,
Irenu Sendler, fyrir að hafa
bjargað 2.500 gyðingum meðan á
helförinni stóð.
Sendler, sem tilheyrði pólskri
neðanjarðarhreyfingu, stýrði
hópi fólks sem smyglaði börnum
gyðinga frá Varsjá og kom þeim
fyrir hjá pólskum fjölskyldum,
í klaustrum eða á munaðarleys-
ingjahælum. Nöfn þeirra skrif-
aði hún á miða og gróf í jörðu svo
hún gæti komið þeim í hendur
foreldra sinna við stríðslok.
Sendler var handtekin af Þjóð-
verjum árið 1943 og þrátt fyrir ít-
rekaðar pyntingar neitaði hún að
gefa upp nöfn barnanna.
Bjargaði 2.500
gyðingabörnum
Í gær opnaði Atlants-
olía bensínstöð á Akureyri. Stöð-
in, sem stendur við Baldursnes,
er tíunda bensínstöð Atlantsolíu
en sú fyrsta sem fyrirtækið opnar
utan höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Sig-
rún Björk Jakobsdóttir, opnaði
stöðina formlega.
Innkoma Atlantsolíu hefur
þegar skapað aukna samkeppni á
Akureyri en um síðastliðna helgi
var Olís-stöðinni í miðbænum
breytt í ÓB sjálfsafgreiðslustöð.
Tíunda stöðin
Náttúruvernd-
arsamtök Íslands kærðu í gær
framkvæmdaleyfi fyrir lagningu
vatnslagnar frá Vatnsendakrikum
um Heiðmörk til úrskurðarnefnd-
ar skipulags- og byggingarmála.
Svæðið er innan lögsögu Reykja-
víkurborgar.
Samtökin fara fram á að leyfið
verði ógilt auk þess sem þau vilja
að úrskurðarnefndin stöðvi allar
frekari framkvæmdir á vatns-
lögninni þar til hún hefur kveð-
ið upp úrskurð sinn. Reykjavíkur-
borg veitti leyfið hinn 7. mars síð-
astliðinn.
Kæra fram-
kvæmdaleyfi í
Heiðmörk