Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 1

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 1
Erfði bílinn Rolling Stones frá afa Góðgæti frá öllum heimsins hornum Óskar Manúelsson á margar góðar minningar um afa sinn á gula Saab-num. Nú er bíllinn komin í i Ó Bíllinn er ekinn 80.000 þúsund kílómet samkvæmt mælu Ó fermingarLAUGARDAGUR 17. MARS 2007 Brauð á fermingar-borðið Uppskriftir að þremur brauðréttum BLS. 4 PARKI.IS / DALVEGl 10 - 14 / SÍMI 564 3500 FRÁBÆR OPNUNARTILBOÐ 20-50% AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM Opið 10-18 í dag Sænska kirkj- an hefur ekkert lengur á móti því að gefa samkynhneigð pör saman með kirkjulegri athöfn, svo fram- arlega sem ríkið setur lög um hjónabönd samkynhneigðra. Þetta sagði Claes Bertil-Ytterberg bisk- up, talsmaður sænska kirkju- þingsins. Samkynhneigðir í Svíþjóð hafa frá árinu 1994 átt þess kost að ganga í staðfesta samvist og frá 2005 hefur sænska kirkjan boðið upp á kirkjulegar athafnir til að blessa slík sambönd. Á miðvikudaginn í næstu viku er von á skýrslu frá opin- berri nefnd um það hvort breyta eigi lögum um staðfesta samvist þannig að hjónabönd samkyn- hneigðra verði einnig leyfð. Kirkjan fellst á hjónabönd „Við vissum ekki að styrkurinn kæmi úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra og hefð- um ekki þegið hann ef það hefði legið ljóst fyrir,“ segir Garðar Cortes, stjórnandi Óperukórsins í Reykjavík, sem fékk hálfa milljón í styrk úr framkvæmdasjóði aldr- aðra árið 2004. Meðal annarra sem fengu greidda styrki úr sjóðnum á árunum 1999 til 2006 voru Ung- mennafélag Íslands, Söngskólinn í Reykjavík, Óperukórinn í Reykja- vík, Tónaljón, Lionsklúbburinn í Búðardal, Kvenréttindafélag Ís- lands og fleiri verkefni og stofn- anir sem ekki hafa bein tengsl við öldrunarþjónustu. Þetta kom fram í svari Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráð- herra í vikunni við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um sundur- liðun styrkja úr sjóðnum fram til ársins 2006. Ásta segir heilbrigð- isráðherra hafa dregið að svara í mánuð. „Það lítur út fyrir að ráð- herra hafi leikið sama leik og síð- ast þegar hann veitti upplýsing- ar um sjóðinn í fyrra. Þá útbýtti hann svarinu síðasta dag þingsins þannig að ekki var hægt að taka það til umræðu. Þetta hefur nú endurtekið sig,“ segir Ásta. Sundurliðunin á styrkjum, sem heilbrigðisráðherra afhenti á síð- asta ári, leiddi í ljós að tæplega helmingi af peningum sjóðsins var varið í önnur verkefni en end- urbætur og uppbyggingu dvalar- heimila aldraðra. Megintilgangur sjóðsins er þó að standa straum af þeim verkefnum. Tölur í nýju svari ráðherrans stemma ekki við þau svör sem hann skilaði af sér á síðasta þingi. Upphæðirnar eru lægri auk þess sem nokkra styrkþega er ekki að finna í nýju svari ráðherra. Þá ber svörum ráðherra um ástæður styrks til Óperukórsins í Reykja- vík ekki saman við svör kórstjóra. Í svari ráðherra segir að styrkur hafi verið veittur til kórsins vegna tónleikahalds hans á öldrunar- stofnun. Það kannast kórstjórinn Garðar Cortes ekki við. Einu hugsanlegu ástæðuna fyrir styrkveitingunni til Óperukórs- ins telur Garðar vera þá að þetta kunni að vera greiðsla fyrir söng á Landspítalanum. Aldraðir hefðu þó hvergi komið nálægt því. Heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Óperukórinn söng á kostnað aldraðra Stofnunum og verkefnum sem ekki hafa bein tengsl við öldrunarþjónustu hefur ítrekað verið úthlutað fé úr framkvæmdasjóði aldraðra undanfarin sjö ár og nem- ur það um helmingi fjárins. Ósamræmi er á milli nýrra talna og talna frá 2004. Óvissa einkenndi störf Alþingis lengst af í gær. Lung- ann úr deginum reyndu þingfor- seti og forystumenn flokkanna að ná samkomulagi um afgreiðslu þingmála og þingfrestun en á meðan ræddu nokkr- ir þingmenn og landbúnað- arráðherra um nýgerðan sauð- fjársamning. Eftir næstum fimm klukkustunda umræður var málið samþykkt. Aðeins Pétur H. Blöndal Sjálf- stæðisflokki var á móti. Samkomulag náðist undir kvöld um meðferð margra mála, ýmist um að þau fengju brautargengi eða heyrðu sögunni til. Meðal viðamikilla mála sem ekki verða afgreidd er langtímavegaáætlun. Næstum þrjátíu frumvörp voru samþykkt sem lög í gærkvöldi en enn bíða tugir mála afgreiðslu. Stefnt er að þingfrestun í dag. Enn bíður fjöldi mála afgreiðslu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.