Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 81
borðar á nokkurra klukkustunda
fresti þá eykur það efnaskipt-
in í líkamanum. Þegar þú borð-
ar óreglulega fer líkaminn alveg í
steik. Ég er nú samt engin heils-
uráðgjafi, þannig að ekki taka of
mikið mark á mér. Stuttu áður
en ég byrjaði að æfa fyrir þessa
mynd hætti ég að reykja, þannig
að ég var alls ekki í góðu formi
þegar ég tók að mér hlutverkið.
Ég henti mér bara í þetta. Það var
heilmikil samkeppni innan hóps-
ins að koma sér í gott form. Ég
fann líka að það varð mikilvægara
og mikilvægara að vinna þessa
vinnu, ekki bara til þess að ég liti
vel út, heldur vegna þess að ég
naut þess að finnast ég vera sterk-
ur. Þetta er mjög ósýnilegur hlut-
ur, einhver eldur sem maður fær
í augun. Þegar ég var að skjóta á
Íslandi fyrir myndina Beowulf &
Grendel í miðjum hvirfilbyl þá gat
ég ekki æft lengur, og mér fannst
það bitna á persónunni sem ég var
að leika, fannst hún mýkjast.“
Um leið og hann minntist á Ís-
land rámaði mig í að hafa heyrt
um veru hans á klakanum. Um
leið og ég segi honum að ég sé frá
Íslandi lifnar yfir manninum og
hann skiptir algjörlega um ham.
Það er eins og hann leggi niður
skjöld Leonídas konungs og líti á
mig núna sem félaga. Hann fyll-
ist þó nýjum eldmóði og greinilegt
að hann á margar góðar minning-
ar frá Íslandi. „Ertu frá Íslandi?“
endurtekur hann eftir að ég hef
upplýst hann, eins og hann trúi
vart sínum eyrum. „Ég dýrka Ís-
land! Það er einn uppáhaldsstað-
urinn á plánetunni. Ég fór aftur
þangað um daginn. Þekkirðu Halla
Hanson?“ Mér líður allt í einu eins
og ég sé staddur í eldhúspartíi í
menntaskóla. Hérna er hann orð-
inn svo æstur að ég lýg, kinka
bara kolli og svara játandi til þess
að halda honum gangandi. Ég hef
þó enga hugmynd um hvern hann
er að tala um. „Já, er það? Hann
var bílstjórinn minn! Aðstoðar-
maður, andlegur gúrú og næring-
arráðgjafi. Ég fór til Íslands með
það í hausnum að ég væri svo
stór og sterkur,“ segir Gerard og
syngur nánast orðin hálf hlæj-
andi, hann minnir mig allt í einu
á tíu ára frænda minn þegar hann
er að segja mér sögur af einu af
mörgum ævintýrum sínum. „Svo
þegar ég lenti á flugvellinum hitti
ég þennan risa, Halla Hanson,
og hann er eins og Súpermann!
Faðmaði mig um leið og ég kom út
og ég var bara eins og lítið barn
miðað við þennan mann. Þá vissi
ég að ég væri kominn til Íslands.
Þekkirðu Ingvar Sigurðsson leik-
ara?“ Já, auðvitað. „Hann er búinn
að búa í húsinu mínu hérna í Lond-
on síðustu þrjár vikur. Húsið mitt
hérna er að verða farfuglaheimili
fyrir íslenska leikara í London. Ég
elska Ísland, og ég held að ég ætli
í heimsókn aftur eftir tvær eða
þrjár vikur.“ Hvernig leist þér á
kvenfólkið? Hér þagnar leikarinn
skyndilega og það kemur mikið
glott á andlit hans. Hann hristir
höfuðið eins og hann sé að reyna
að berjast við að halda aftur af
sér. En svo springur hann.
„Þekkirðu Berglindi Icey?“ Já,
auðvitað geri ég það. „Hún er náin
vinkona mín í Los Angeles. Við
höfum átt margar góðar stundir,“
allt í einu er eins og hann verði
hálf feiminn. „En … eigum við
ekki bara að halda áfram að tala
um 300?“ Ég reyni eins og ég get
að kreista meira upp úr honum en
hinn stolti Spartverji er þagnaður.
Við verðum að fylla upp í eyðurn-
ar með ímyndunaraflinu.
COSY INGREY LAMPI
HÖNNUÐIR
HARRI KOSKINEN
VERÐ
19.900 KR.
I´M BOO KARAFLA
HÖNNUÐUR
NORWAY SAYS
VERÐ
7.400 KR.
LOUNGE CHAIR & OTTOMAN
HÖNNUÐUR
CHARLES & RAY EAMES 1956
VERÐ
439.500 KR.
Opið frá kl. 10-18 virka daga, 11-17 laugardaga og 12-16 sunnudaga.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
5
9
3
7
HEIMILIÐ ER HEILAGT, ÞESS VEGNA SKIPTIR ÖLLU HVAÐ ÞAR ER INNANSTOKKS
ÆÐ OG
FOUR FLOWER VASE BLÓMAVASI
HÖNNUÐUR
MATTI KLENNELL
VERÐ
13.300 KR.
Ný sending frá MUUTO komin í höfn