Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 2
Tíu mál eru til rann-
sóknar hjá kynferðisbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu á hendur tæplega þrítugum
manni sem grunaður er um að
hafa áreitt ungar stúlkur í Voga-
hverfi og víðar.
Stúlkurnar sem um ræðir eru á
aldrinum fimm til tólf ára. Mað-
urinn er grunaður um að hafa
reynt að lokka eldri stúlkurnar
upp í bíl til sín, en lögreglurann-
sóknin beinist að viðskiptum hans
við yngri stúlkurnar.
Hann var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 28. mars, en gert er
ráð fyrir að málið verði sent rík-
issaksóknara fyrir þann tíma.
Áreitni gegn
níu stúlkum
Vignir, geturðu ekki einu sinni
slegið á létta strengi?
Formenn stjórnarandstöðuflokk-
anna á Alþingi hafna þeim yfirlýsingum Jóns
Sigurðssonar, formanns Framsóknarflokks-
ins, að stjórnarandstaðan hafi gengið á bak
orða sinna um samstarf í því að veita frum-
varpi formanna stjórnarflokkanna um auð-
lindaákvæði í stjórnarskrá brautargengi.
„Þetta eru mikil vonbrigði en ég vísa ábyrgð-
inni á stjórnarandstöðuna,“ sagði Jón í
Fréttablaðinu í gær.
Formennirnir segja boði stjórnarandstöð-
unnar um samstarf aldrei hafa verið tekið.
Þvert á móti hafi formenn stjórnarflokkanna
samið og dreift frumvarpinu upp á sitt eins-
dæmi, án nokkurs samráðs.
Á blaðamannafundi í gær rifjuðu formenn-
irnir upp tvö viðtöl fréttamanna Útvarpsins
við Jón Sigurðsson. Í þeim kemur glögglega
fram að samstarf við stjórnarandstöðuna var
ekki á dagskrá af hálfu Jóns. Í hinu fyrra,
sem tekið var 3. mars, sagði Jón aldrei hafa
komið til greina að vinna málið með stjórnar-
andstöðunni. Í síðara viðtalinu, teknu 7. mars,
sagði Jón samstarf með stjórnarandstöðunni
ekki á dagskrá.
Formenn Frjálslynda flokksins, Sam-
fylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs segja þessi orð, og auk-
inheldur þá staðreynd að stjórnarflokkarn-
ir hvorki föluðust eftir samstarfi að fyrra
bragði né þáðu boð stjórnarandstöðunnar
þar um, sýna glögglega að yfirlýsingar um
ábyrgð stjórnarandstöðunnar fái ekki staðist.
Séu í raun fullkomlega ósæmilegur áburður.
Enda hafi aldrei alvara búið að baki málinu
og það aðeins sjónarspil.
Jón Sigurðsson vildi aldrei samstarf
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
VOLKSWAGEN PASSAT 4MOTION 2.0
Nýskr. 07.06 - Sjálfskiptur - Ekinn 8 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
3.180
.000.
-
Full-
trúar sex aðildarríkja Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna náðu
á fimmtudag-
inn samkomu-
lagi um hert-
ar refsiaðgerðir
gegn Íran vegna
kjarnorku-
vinnslu, sem þar
er stunduð.
Að samkomu-
laginu standa
öll fastaríkin
fimm, Banda-
ríkin, Rússland, Kína, Bretland
og Frakkland, auk Þýskalands. Í
næstu viku verður samkomulag-
ið kynnt hinum tíu ríkjunum, sem
eiga sæti í Öryggisráðinu.
Aðgerðirnar fela meðal ann-
ars í sér bann á vopnaviðskipti og
fjármagnsflutninga gagnvart ein-
staklingum og fyrirtækjum sem
tengjast kjarnorkuvinnslunni í
Íran.
Hafa samið um
refsiaðgerðir
Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokks í Hafnarfirði, segist
ekki halda að gögnum sé safn-
að á ólögmætan hátt í kosninga-
kerfi Alcan sem Persónuvernd
hefur nú til skoðunar. Vefurinn
geymir upplýsingar um afstöðu
íbúa Hafnarfjarðar til stækkun-
ar álvers Alcan.
„Tilfinning mín er að þetta sé
svona heldur sakleysislegt,“
segir Rósa. „Þetta virðist bara
vera fyrirtæki sem þarf að hella
sér út í kosningabaráttu til að
berjast fyrir sinni framtíð, og
þetta hlýtur að vera svipað og
víðþekkt kosningakerfi stjórn-
málaflokkanna. Þeir segja að
lögfræðingar hafi séð til þess að
þetta stæðist lög, og maður hlýt-
ur að treysta þeim, þeir ættu að
hafa allt sitt á hreinu.“
Lúðvík Geirsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, segist lítið
þekkja til málsins og því ekki
vilja taka afstöðu. „Ef málið er
inni á borði hjá Persónuvernd
þá er auðvitað bara þeirra að
kveða upp um hvað þeir telja
samræmast lögum og reglum
og hvað ekki. Ég hef í sjálfu
sér engar forsendur til að meta
það,“ segir Lúðvík Geirsson.
Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðar-
sambands Íslands, var í gær
dæmdur til að greiða eigendum
starfsmannaleigunnar 2b ehf.,
hjónunum Eiði Eiríki Baldvins-
syni og Olenu Shchavynska, alls
eina og hálfa milljón króna vegna
ummæla sem hann lét falla um
þau haustið 2005.
Forsaga málsins er sú að 2b
ehf. stóð í viðskiptum við Suður-
verk ehf. sem er eitt fjölmargra
verktakafyrirtækja á Kára-
hnjúkasvæðinu og sá fyrirtæk-
inu fyrir starfsmönnum. Pistill
birtist á vefsvæði Rafiðnaðar-
sambandsins þar sem forsvars-
menn 2b ehf. voru sagðir hafa
lagt til við verkstjóra Suðurverks
að berja starfsmennina sem þeir
hefðu leigt af 2b ehf. Í kjölfarið
voru viðtöl við Guðmund Gunn-
arsson í fréttatímum Stöðvar 2
og Sjónvarpsins þann 23. októb-
er 2005 og lét hann þá ummæl-
in sem hann var dæmdur fyrir í
gær falla.
Auk þess að ummælin voru
dæmd dauð og ómerk þá var
Guðmundi gert að greiða Olenu
og Eiði Eiríki samanlagt 800 þús-
und krónur í miskabætur. Þá þarf
hann að greiða þeim aukalega
200 þúsund krónur til að standa
straum af birtingu niðurstöðu
dómsins í fjölmiðlum.
Að síðustu var honum einnig
gert að greiða stefnendum hálfa
milljón í málskostnað. Alls gerir
þetta eina og hálfa milljón auk
dráttarvaxta.
Eiður Eiríkur var ánægður
með niðurstöðuna.
„Þetta mál hefur tekið mikið á
mig og sérstaklega konuna mína.
Það er því afskaplega gleðilegt að
íslenskt réttarfar sé svona skil-
virkt. Ég er virkilega ánægður
með þessa niðurstöðu og það er
ekki spurning að réttlætið hefur
sigrað. Að einn af forystumönn-
um íslenskrar verkalýðshreyf-
ingar skuli láta svona ummæli
falla í fjölmiðlum er með ólíkind-
um.“
„Dómarinn ræður,“ sagði Guð-
mundur Gunnarsson um dóminn
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um niðurstöðuna. Hann hafði enn
ekki tekið ákvörðun um hvort
dómnum yrði áfrýjað.
Dæmdur til að greiða
bætur fyrir meiðyrði
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, var í gær
dæmdur til að greiða eigendum starfsmannaleigunnar 2b miskabætur vegna um-
mæla sem hann lét falla um þá í fjölmiðlum. „Réttlætið sigraði,“ segir eigandi 2b.
Um 350 lítrar af olíu
láku úr 40 tonna flutningabíl sem
lenti í óhappi í Heiðmörk í gær.
Ökumaður bílsins missti stjórn
á honum í beygju vegna hálku,
með þeim afleiðingum að bíll-
inn rann út í kant og lenti þar á
hraundranga sem setti gat olíu-
tankinn.
Mikið magn af olíu lak úr tank-
inum auk þess sem smurolíuleki
gerði vart við sig. Veginum hefur
verið lokað en eftir helgina verð-
ur hafin hreinsun. Ólíklegt er talið
að vatnsból Reykvíkinga, sem eru
skammt undan, hafi mengast.
350 lítrar af olíu
láku út í hraun
Þeim sem þurftu
að þola ofbeldi á opinberum stofn-
unum býðst geðheilbrigðisþjón-
usta, hliðstæð
þeirri sem fyrr-
verandi vist-
mönnum Breiða-
víkurheimilisins
hefur staðið til
boða að undan-
förnu.
Siv Friðleifs-
dóttir heilbrigð-
isráðherra hvet-
ur þá sem telja
sig þurfa á þjónustu að halda að
hafa samband við sérstakt teymi
sem starfar á geðsviði Landspítala.
Um tuttugu fyrrverandi vist-
menn á Breiðavík hafa notið þjón-
ustunnar en Siv segir ómögulegt
að segja til um hve margir til við-
bótar þiggi hjálpina. Hún gerir þó
ráð fyrir að það geri á milli 30 og
40 heyrnarlausir sem beittir voru
ofbeldi.
30 til 40 heyrn-
arlausir gætu
þurft aðstoð