Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 25
Fjármögnunarmöguleikar við kaup á fyrstu íbúð:
Dæmi miðað við meðal kaupverð, brunabótamat og lóðamat á 3ja herbergja
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu*
90% HÚSNÆÐISLÁN
AF MARKAÐSVIRÐI
Við kaup á fyrstu íbúð getur lánshlutfall skipt verulegu máli. Því geta viðskipta-
vinir Glitnis sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð fengið allt að 90% húsnæðislán af
markaðsvirði, ekki brunabótamati eins og aðrir bjóða. Reiknaðu dæmið til enda.
Kaupverð
Brunabótamat
Lóðamat
LÁNSHLUTFALL
GLITNIR
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR**
LANDSBANKINN***
KAUPÞING****
SPARISJÓÐURINN*****
90%
79,75%
80%
79,75%
68,88%
HEILDARLÁN
18.801.000 kr.
16.660.000 kr.
16.712.000 kr.
16.660.000 kr.
14.390.000 kr.
20.890.000
14.390.000
2.270.000
Meðal kaupverð, brunabótamat og lóðamat á þinglýstum kaupsamningum des. 2006 - feb.2007 skv.
upplýsingum frá Fasteignamati Ríkisins.
Íbúðalánasjóður lánar ekki hærra en 18.000.000 kr. eða því sem samtala brunabótamats og lóðamats nemur.
Landsbankinn býður upp á 80% húsnæðislán af markaðsverði við kaup á fyrstu eign.
Kaupþing auglýsir 100% húsnæðislán en þegar betur er að gáð kemur í ljós að hámark lánsfjárhæðar takmar-
kast við samtölu brunabótamats auk lóðamats.
Sparisjóðurinn býður að hámarki 80% húsnæðislán af markaðsverði en veðsetning má ekki vera umfram
brunabótamat fasteignar.
*
**
***
****
*****
aði af næmum skilningi og hlýju
um skáldið Matthías Jochums-
son sem hvert mannsbarn á að
þekkja, þótt ekki væri vegna ann-
ars en hann samdi sálminn „Ó,
Guð, vors lands“, sem er þjóðsöng-
ur Íslendinga. Mér finnst Þór-
unni takast frábærlega að setja
sig inn í reynsluheim karla á nítj-
ándu öld sem eykur mér bjartsýni
á að karlmenn geti öðlast skilning
á reynsluheimi kvenna þótt hann
sé flókinn.
Ég nennti ekki að
horfa nema með
öðru auganu á beina
útsendingu frá Al-
þingi og það sem ég
heyrði og sá nægði
mér.
Sæunn framsóknarkona hitti
naglann á höfuðið. Þetta eru ekki
stjórnmálaumræður heldur sömu
tuggurnar upp aftur og aftur. Og
aftur.
Sjallar og framsókn eru sam-
mála um að allt sé í besta lagi – og
það sé ríkisstjórninni að þakka.
Stjórnarandstaðan segir að
stjórnin hafi leitt þjóðina og alla
hennar búslóð fram á brún hengi-
flugs og eina lífsvonin sé að snúa
bakinu við þessari ríkisstjórn.
Báðir aðilar vita að svona full-
yrðingar eru út í bláinn. En samt
heldur þetta raus áfram.
Umræða af þessu tagi veld-
ur því hvað fáir nenna að horfa á
eldhúsdagsumræður sem ætti að
verða stjórnmálamönnum hvatn-
ing til að sýna almenningi þá virð-
ingu að tala við okkur eins og viti-
bornar manneskjur með þokka-
lega dómgreind.
En svo að sanngirni sé gætt
þá er það ekki einvörð-
ungu stjórnmálamönnum
að kenna að stjórnmálaum-
ræða hérlendis skuli vera á
svona lágu plani. Fjölmiðlar
eiga líka hlut að máli.
Á fjölmiðlum veður
uppi sá misskilning-
ur að íslenska þjóð-
in samanstandi af
misháværum og mis-
áhrifamiklum þrýsti-
hópum, formlegum
og óformlegum fé-
lagasamtökum og
talsmenn þessara
félagasamtaka séu
hinir sönnu tals-
menn fólksins í landinu. Enda er
auðveldara að slá á þráðinn til for-
manns í einhverju félagi eða fyrir-
tæki og láta hann masa en að fara
á stúfana og athuga hvað þjóð-
in er að bedrífa.
Fréttir af fólki eru sjald-
séðar í fjölmiðlum – ef frá
eru taldar þær sögur sem
eru lifibrauð allra tímarita
sem koma út á Íslandi
og greina ýmist
frá láni og lífs-
hamingju
þeirra heppn-
ustu eða tak-
markalausu
óláni og
óham-
ingju
þeirra
óheppn-
ustu.
Með allri virðingu fyrir félög-
um og fyrirtækjum þá slær hjarta
þjóðarinnar í brjóstinu á venju-
legu fólki en ekki í samþykktum
félaga og fyrirtækja.
Það hefur vonandi verið djúp-
hugsuð herstjórnarlist hjá Sam-
fylkingunni að hvíla sinn besta
ræðumann í kvöld en ekki
hégómlegur ótti við að
þingflokksformaðurinn
skyggði á formanninn
í ræðustól.
Þegar ergelsið
út af reykjarkóf-
inu sem kallast eld-
húsdagsumræður
bættist ofan á pirr-
inginn út af tölvu-
skriflinu mínu ákvað
ég að taka til minna
ráða og útvega mér
galdramann.
Galdramaðurinn
heitir Ríkharður og
ég fann hann í smá-
auglýsingadálki
Fréttablaðsins. Ég
hringdi í hann í gær-
kvöldi og spurði
hvort hann vildi lið-
sinna mér. Hann tók því vel og
á tilsettum tíma í morgun barði
hann að dyrum.
Ég leiddi hann að tölvunni, bauð
honum kaffi sem hann afþakk-
aði og skildi hann eftir og fór inn í
stofu að spjalla við Árna vin minn
sem hafði af sínu næmi skynjað að
ég þyrfti á mannlegum samskipt-
um og hollum félagsskap að halda
eftir baráttuna við þá illu anda
sem hafa tekið sér bólfestu í tölv-
unni minni.
Á meðan við Árni fórum á skeiði
yfir hinstu rök tilverunnar sat
Ríkharður hreyfingarlaus yfir
tölvunni og framdi sinn seið. Og
það stóðst á endum að
Árni var búinn að tala
í mig kjark og nýja trú
á framtíð mannkyns-
ins í stað þeirrar sem ég
hafði glatað í gærkvöldi og
Ríkharður lauk við hreinsa
tölvuna af þeirri óværu sem
hafði tekið sér bólfestu í henni,
en það voru mestmegnis litl-
ir njósnapúkar sem heita á út-
lensku „spyware“ – þótt mér sé
það hulin ráðgáta hvernig nokkr-
um manni dettur í hug að leggja á
sig fyrirhöfn að njósna um mig.
Líf mitt er opin bók – eða öllu
heldur opið Fréttablað.