Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 25

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 25
Fjármögnunarmöguleikar við kaup á fyrstu íbúð: Dæmi miðað við meðal kaupverð, brunabótamat og lóðamat á 3ja herbergja íbúðum á höfuðborgarsvæðinu* 90% HÚSNÆÐISLÁN AF MARKAÐSVIRÐI Við kaup á fyrstu íbúð getur lánshlutfall skipt verulegu máli. Því geta viðskipta- vinir Glitnis sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð fengið allt að 90% húsnæðislán af markaðsvirði, ekki brunabótamati eins og aðrir bjóða. Reiknaðu dæmið til enda. Kaupverð Brunabótamat Lóðamat LÁNSHLUTFALL GLITNIR ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR** LANDSBANKINN*** KAUPÞING**** SPARISJÓÐURINN***** 90% 79,75% 80% 79,75% 68,88% HEILDARLÁN 18.801.000 kr. 16.660.000 kr. 16.712.000 kr. 16.660.000 kr. 14.390.000 kr. 20.890.000 14.390.000 2.270.000 Meðal kaupverð, brunabótamat og lóðamat á þinglýstum kaupsamningum des. 2006 - feb.2007 skv. upplýsingum frá Fasteignamati Ríkisins. Íbúðalánasjóður lánar ekki hærra en 18.000.000 kr. eða því sem samtala brunabótamats og lóðamats nemur. Landsbankinn býður upp á 80% húsnæðislán af markaðsverði við kaup á fyrstu eign. Kaupþing auglýsir 100% húsnæðislán en þegar betur er að gáð kemur í ljós að hámark lánsfjárhæðar takmar- kast við samtölu brunabótamats auk lóðamats. Sparisjóðurinn býður að hámarki 80% húsnæðislán af markaðsverði en veðsetning má ekki vera umfram brunabótamat fasteignar. * ** *** **** ***** aði af næmum skilningi og hlýju um skáldið Matthías Jochums- son sem hvert mannsbarn á að þekkja, þótt ekki væri vegna ann- ars en hann samdi sálminn „Ó, Guð, vors lands“, sem er þjóðsöng- ur Íslendinga. Mér finnst Þór- unni takast frábærlega að setja sig inn í reynsluheim karla á nítj- ándu öld sem eykur mér bjartsýni á að karlmenn geti öðlast skilning á reynsluheimi kvenna þótt hann sé flókinn. Ég nennti ekki að horfa nema með öðru auganu á beina útsendingu frá Al- þingi og það sem ég heyrði og sá nægði mér. Sæunn framsóknarkona hitti naglann á höfuðið. Þetta eru ekki stjórnmálaumræður heldur sömu tuggurnar upp aftur og aftur. Og aftur. Sjallar og framsókn eru sam- mála um að allt sé í besta lagi – og það sé ríkisstjórninni að þakka. Stjórnarandstaðan segir að stjórnin hafi leitt þjóðina og alla hennar búslóð fram á brún hengi- flugs og eina lífsvonin sé að snúa bakinu við þessari ríkisstjórn. Báðir aðilar vita að svona full- yrðingar eru út í bláinn. En samt heldur þetta raus áfram. Umræða af þessu tagi veld- ur því hvað fáir nenna að horfa á eldhúsdagsumræður sem ætti að verða stjórnmálamönnum hvatn- ing til að sýna almenningi þá virð- ingu að tala við okkur eins og viti- bornar manneskjur með þokka- lega dómgreind. En svo að sanngirni sé gætt þá er það ekki einvörð- ungu stjórnmálamönnum að kenna að stjórnmálaum- ræða hérlendis skuli vera á svona lágu plani. Fjölmiðlar eiga líka hlut að máli. Á fjölmiðlum veður uppi sá misskilning- ur að íslenska þjóð- in samanstandi af misháværum og mis- áhrifamiklum þrýsti- hópum, formlegum og óformlegum fé- lagasamtökum og talsmenn þessara félagasamtaka séu hinir sönnu tals- menn fólksins í landinu. Enda er auðveldara að slá á þráðinn til for- manns í einhverju félagi eða fyrir- tæki og láta hann masa en að fara á stúfana og athuga hvað þjóð- in er að bedrífa. Fréttir af fólki eru sjald- séðar í fjölmiðlum – ef frá eru taldar þær sögur sem eru lifibrauð allra tímarita sem koma út á Íslandi og greina ýmist frá láni og lífs- hamingju þeirra heppn- ustu eða tak- markalausu óláni og óham- ingju þeirra óheppn- ustu. Með allri virðingu fyrir félög- um og fyrirtækjum þá slær hjarta þjóðarinnar í brjóstinu á venju- legu fólki en ekki í samþykktum félaga og fyrirtækja. Það hefur vonandi verið djúp- hugsuð herstjórnarlist hjá Sam- fylkingunni að hvíla sinn besta ræðumann í kvöld en ekki hégómlegur ótti við að þingflokksformaðurinn skyggði á formanninn í ræðustól. Þegar ergelsið út af reykjarkóf- inu sem kallast eld- húsdagsumræður bættist ofan á pirr- inginn út af tölvu- skriflinu mínu ákvað ég að taka til minna ráða og útvega mér galdramann. Galdramaðurinn heitir Ríkharður og ég fann hann í smá- auglýsingadálki Fréttablaðsins. Ég hringdi í hann í gær- kvöldi og spurði hvort hann vildi lið- sinna mér. Hann tók því vel og á tilsettum tíma í morgun barði hann að dyrum. Ég leiddi hann að tölvunni, bauð honum kaffi sem hann afþakk- aði og skildi hann eftir og fór inn í stofu að spjalla við Árna vin minn sem hafði af sínu næmi skynjað að ég þyrfti á mannlegum samskipt- um og hollum félagsskap að halda eftir baráttuna við þá illu anda sem hafa tekið sér bólfestu í tölv- unni minni. Á meðan við Árni fórum á skeiði yfir hinstu rök tilverunnar sat Ríkharður hreyfingarlaus yfir tölvunni og framdi sinn seið. Og það stóðst á endum að Árni var búinn að tala í mig kjark og nýja trú á framtíð mannkyns- ins í stað þeirrar sem ég hafði glatað í gærkvöldi og Ríkharður lauk við hreinsa tölvuna af þeirri óværu sem hafði tekið sér bólfestu í henni, en það voru mestmegnis litl- ir njósnapúkar sem heita á út- lensku „spyware“ – þótt mér sé það hulin ráðgáta hvernig nokkr- um manni dettur í hug að leggja á sig fyrirhöfn að njósna um mig. Líf mitt er opin bók – eða öllu heldur opið Fréttablað.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.