Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 90
Hvernig lágu leiðir ykkar Barða
Jóhannssonar saman?
Við hittumst fyrst í afmæli fyrir
um ári síðan og fórum að tala um
þetta.
Hvernig verður hugmynd að fyr-
irtæki til?
Ég sýndi þessu strax áhuga í byrj-
un. Mánuði síðar hringdi Barði og
spurði hvort að ég vildi vera með.
Og hvernig gengur? Er þetta mikið
mál og mikil vinna?
Það gengur vel og við höfum náð
öllum okkar markmiðum á þeim
skamma tíma sem við höfum verið
að vinna að þessu. Það er gríðar-
leg vinna á bak við þetta og mik-
ill hausverkur oft á tíðum. En ef
maður ætlar að ná árangri þá
þýðir ekkert minna.
Hvert er fyrsta verkefnið?
Að gefa úr Something Wrong með
Bang Gang í Bandaríkjunum.
Hvernig er samstarfið við Barða
og hvernig skiptið þið verkum?
Samstarfið er með ágætum, við
náum vel saman og erum orðnir
miklir vinir. Barði býr yfir mik-
ill reynslu og er með ákveðna sýn.
Sennilega er vandfundinn slík-
ur gæða samstarfsmaður. Verka-
skiptingin er frekar frjáls, þó að
ég sjái meira um daglegan rekst-
ur en Barði.
Eru þetta ekki alls ólíkir markað-
ir, sá evrópski og sá bandaríski?
Nú hef ég ekkert til að bera saman
við, eflaust er það svo.
Þið eruð með dreifingarsamning
við RYKO, dótturfélag Warner
Music. Hvernig fóruð þið að því?
Með stöðugum símhringingum,
tölvupóstsendingum og diska-
sendingum á alla dreifingaraðila í
Bandaríkjunum. RYKO kannaðist
svo við Barða frá fyrri tíð og þá
komumst við í gegnum skiptiborð-
ið hjá þeim.
Hvaðan kom nafnið From Nowhere
Records?
Það var annað hvort Úti í rassgati
Records eða þetta. Mér fannst
From Nowhere vera þjálla.
Er ekki gott fyrir tónlistarfólk að
eiga þá allan rétt með eigin út-
gáfu? Fá kostnað til baka held-
ur en að risafyrirtæki ræni það
öllum peningum?
Jú, fyrir listamann getur það
verið mikilvægt að eiga útgáfu-
fyrirtæki. Ef hann er tilbúinn í
þessa vinnu, líkt og Barði, þá er
þetta sniðugt. Annars getur líka
verið þægilegt að hafa reynda
menn í að sjá um útgáfuna svo að
listamaðurinn geti einbeitt sér að
því að búa til tónlist. Þetta snýst
bara um þjónustu sem listamað-
urinn fær, er hann tilbúinn til að
inna hana af hendi sjálfur eða fá
einhvern annan til að gera þetta.
Hvað varðar að fá kostnað til baka
þá eru listamenn oft ekki í stakk
búnir til að leggja út í þann kostn-
að og þá getur verið gott að leita
til plötufyrirtækja.
Ertu bjartsýnn á velgengni Bang
Gang í USA? Maður ímyndar sér
New York senuna sem ekkert
nema eitthvað svakarokk...
Ég er mjög sannfærður um að
Bang Gang eigi efti að ná árangri í
Bandaríkjunum.
Hafa einhver lög farið í spilun – og
ef svo er, hvernig ganga þau? Hve-
nær kemur platan út í US ?
Find What You Get hefur verið í
spilun í bandarísku háskólaútvarpi
og hefur gengið vel. Var í janúar
síðastliðnum í 116. sæti yfir mest
spiluðu plötur, en listi þessi, CMJ
200 er samansettur úr listum yfir
400 útvarpsstöðva víðs vegar um
Bandaríkin. Platan kemur síðan út
víðs vegar um Bandaríkin 3. apríl
næstkomandi.
Eruð þið með önnur bönd í sigtinu
til að „signa“ á útgáfuna?
Ekkert ákveðið en við fylgjumst
lauslega með. Það er betra að
halda fókus á fyrsta verkefnið og
gera það vel.
Verður þú þá að vera búsettur úti
til þess að sjá um allt dæmið þar
ytra?
Já, ég verð hér í New York í nokkra
mánuði.
Og hvernig fílarðu borgina?
Gríðarlega vel.
Áttu einhverja uppáhalds tón-
leika- og veitingastaði sem þú
mælir með þar?
Í sannleika sagt þá fer ég voða
lítið út og leiðist það mjög, senni-
lega búinn að fylla kvótann. Aftur á
móti er ég gríðarlegur áhugamaður
um mat og finnst gaman að prófa
mat frá hinum og þessum stöðum.
Er einnig mjög hrifinn af stöðum í
anda Hard Rock, þó ekki staðnum
sjálfum sem er orðinn of mikil túr-
istabúlla. Dallas BBQ dettur mér
fyrst í hug, þar er hægt að fá góð
svínarif og hefur verið til síðan ég
man eftir mér. Einnig finnst mér
fátt betra en að fá mér eina pítsu-
sneið, eða fara á kaffihús sem ber
fram egg, beikon og pönnukökur.
Leiðist hins vegar mjög að fara á
einhverja hipp og kúl staði, þar sem
ímynd staðarins er í fyrsta sæti og
maturinn í öðru. Slíkir staðir eru
fljótir að fara í og úr tísku, en góð
matargerðarlist er eilíf. Það þyk-
ir víst voða töff að fara á einhvern
stað hérna sem heitir Otto. Þangað
mun ég aldrei fara.
Þú hefur nú dálítinn fjölmiðla-
bakgrunn – hjálpar sú reynsla þér
í hinum harða PR bransa ytra?
Hversu ýtinn þarf maður að vera
til að koma hlutum á framfæri?
Reynslan af Mogganum nýt-
ist manni í svo mörgu. Ég hef nú
engin bein samskipti við fjölmiðla
hérna en það að komast að kjarna
málsins og sú gagnrýna hugs-
un sem maður lærði hjá Sidda og
Gústa kemur sér alltaf vel.
Skipta réttu kontaktarnir öllu
máli?
Mjög miklu máli.
Er það kostur að vera frá Íslandi?
Er mikill áhugi á íslenskri tónlist
þarna ytra?
Ísland þykir töff, og fólk man betur
eftir manni. Áhugi á íslenskri tón-
list er nú að mestu leyti afmark-
aður við Björk og Sigur Rós. Það
verður öðruvísi eftir eitt ár.
Segðu mér aðeins frá bakhjörlum
ykkar – FL Group? Hvernig kemur
fyrirtækið að verkefninu?
FL Group eiga fjárfestingarsjóð
sem heitir Tónvís og sjóðurinn á
þriðjung í félaginu. Tryggvi Jóns-
son er framkvæmdastjóri Tónvíss
og er hann í stjórn From Nowhere
Records. Það hefur reynst okkur
vel að hafa mann eins og Tryggva
í From Nowhere liðinu.
Nú er South by Southwest næst á
dagskrá, ekki satt?
Jú Bang Gang spilar 17. mars.
Draumurinn ?
Draumar villa manni sýn, ég er
bara með raunhæf markmið.
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson er framkvæmdastjóri From Nowhere Records, plötuútgáfufyrir-
tækis sem hann setti á fót ásamt tónlistarmanninum Barða Jóhannssyni. Sigurður Pálmi hefur
viðskiptavitið í blóðinu enda barnabarn Pálma í Hagkaupum. Fréttablaðið heyrði í honum hljóðið í
New York og fékk að vita meira.
Það var annað hvort
Út í Rassgati Records
eða þetta. Mér fannst
From Nowhere vera
þjálla. .