Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 90

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 90
Hvernig lágu leiðir ykkar Barða Jóhannssonar saman? Við hittumst fyrst í afmæli fyrir um ári síðan og fórum að tala um þetta. Hvernig verður hugmynd að fyr- irtæki til? Ég sýndi þessu strax áhuga í byrj- un. Mánuði síðar hringdi Barði og spurði hvort að ég vildi vera með. Og hvernig gengur? Er þetta mikið mál og mikil vinna? Það gengur vel og við höfum náð öllum okkar markmiðum á þeim skamma tíma sem við höfum verið að vinna að þessu. Það er gríðar- leg vinna á bak við þetta og mik- ill hausverkur oft á tíðum. En ef maður ætlar að ná árangri þá þýðir ekkert minna. Hvert er fyrsta verkefnið? Að gefa úr Something Wrong með Bang Gang í Bandaríkjunum. Hvernig er samstarfið við Barða og hvernig skiptið þið verkum? Samstarfið er með ágætum, við náum vel saman og erum orðnir miklir vinir. Barði býr yfir mik- ill reynslu og er með ákveðna sýn. Sennilega er vandfundinn slík- ur gæða samstarfsmaður. Verka- skiptingin er frekar frjáls, þó að ég sjái meira um daglegan rekst- ur en Barði. Eru þetta ekki alls ólíkir markað- ir, sá evrópski og sá bandaríski? Nú hef ég ekkert til að bera saman við, eflaust er það svo. Þið eruð með dreifingarsamning við RYKO, dótturfélag Warner Music. Hvernig fóruð þið að því? Með stöðugum símhringingum, tölvupóstsendingum og diska- sendingum á alla dreifingaraðila í Bandaríkjunum. RYKO kannaðist svo við Barða frá fyrri tíð og þá komumst við í gegnum skiptiborð- ið hjá þeim. Hvaðan kom nafnið From Nowhere Records? Það var annað hvort Úti í rassgati Records eða þetta. Mér fannst From Nowhere vera þjálla. Er ekki gott fyrir tónlistarfólk að eiga þá allan rétt með eigin út- gáfu? Fá kostnað til baka held- ur en að risafyrirtæki ræni það öllum peningum? Jú, fyrir listamann getur það verið mikilvægt að eiga útgáfu- fyrirtæki. Ef hann er tilbúinn í þessa vinnu, líkt og Barði, þá er þetta sniðugt. Annars getur líka verið þægilegt að hafa reynda menn í að sjá um útgáfuna svo að listamaðurinn geti einbeitt sér að því að búa til tónlist. Þetta snýst bara um þjónustu sem listamað- urinn fær, er hann tilbúinn til að inna hana af hendi sjálfur eða fá einhvern annan til að gera þetta. Hvað varðar að fá kostnað til baka þá eru listamenn oft ekki í stakk búnir til að leggja út í þann kostn- að og þá getur verið gott að leita til plötufyrirtækja. Ertu bjartsýnn á velgengni Bang Gang í USA? Maður ímyndar sér New York senuna sem ekkert nema eitthvað svakarokk... Ég er mjög sannfærður um að Bang Gang eigi efti að ná árangri í Bandaríkjunum. Hafa einhver lög farið í spilun – og ef svo er, hvernig ganga þau? Hve- nær kemur platan út í US ? Find What You Get hefur verið í spilun í bandarísku háskólaútvarpi og hefur gengið vel. Var í janúar síðastliðnum í 116. sæti yfir mest spiluðu plötur, en listi þessi, CMJ 200 er samansettur úr listum yfir 400 útvarpsstöðva víðs vegar um Bandaríkin. Platan kemur síðan út víðs vegar um Bandaríkin 3. apríl næstkomandi. Eruð þið með önnur bönd í sigtinu til að „signa“ á útgáfuna? Ekkert ákveðið en við fylgjumst lauslega með. Það er betra að halda fókus á fyrsta verkefnið og gera það vel. Verður þú þá að vera búsettur úti til þess að sjá um allt dæmið þar ytra? Já, ég verð hér í New York í nokkra mánuði. Og hvernig fílarðu borgina? Gríðarlega vel. Áttu einhverja uppáhalds tón- leika- og veitingastaði sem þú mælir með þar? Í sannleika sagt þá fer ég voða lítið út og leiðist það mjög, senni- lega búinn að fylla kvótann. Aftur á móti er ég gríðarlegur áhugamaður um mat og finnst gaman að prófa mat frá hinum og þessum stöðum. Er einnig mjög hrifinn af stöðum í anda Hard Rock, þó ekki staðnum sjálfum sem er orðinn of mikil túr- istabúlla. Dallas BBQ dettur mér fyrst í hug, þar er hægt að fá góð svínarif og hefur verið til síðan ég man eftir mér. Einnig finnst mér fátt betra en að fá mér eina pítsu- sneið, eða fara á kaffihús sem ber fram egg, beikon og pönnukökur. Leiðist hins vegar mjög að fara á einhverja hipp og kúl staði, þar sem ímynd staðarins er í fyrsta sæti og maturinn í öðru. Slíkir staðir eru fljótir að fara í og úr tísku, en góð matargerðarlist er eilíf. Það þyk- ir víst voða töff að fara á einhvern stað hérna sem heitir Otto. Þangað mun ég aldrei fara. Þú hefur nú dálítinn fjölmiðla- bakgrunn – hjálpar sú reynsla þér í hinum harða PR bransa ytra? Hversu ýtinn þarf maður að vera til að koma hlutum á framfæri? Reynslan af Mogganum nýt- ist manni í svo mörgu. Ég hef nú engin bein samskipti við fjölmiðla hérna en það að komast að kjarna málsins og sú gagnrýna hugs- un sem maður lærði hjá Sidda og Gústa kemur sér alltaf vel. Skipta réttu kontaktarnir öllu máli? Mjög miklu máli. Er það kostur að vera frá Íslandi? Er mikill áhugi á íslenskri tónlist þarna ytra? Ísland þykir töff, og fólk man betur eftir manni. Áhugi á íslenskri tón- list er nú að mestu leyti afmark- aður við Björk og Sigur Rós. Það verður öðruvísi eftir eitt ár. Segðu mér aðeins frá bakhjörlum ykkar – FL Group? Hvernig kemur fyrirtækið að verkefninu? FL Group eiga fjárfestingarsjóð sem heitir Tónvís og sjóðurinn á þriðjung í félaginu. Tryggvi Jóns- son er framkvæmdastjóri Tónvíss og er hann í stjórn From Nowhere Records. Það hefur reynst okkur vel að hafa mann eins og Tryggva í From Nowhere liðinu. Nú er South by Southwest næst á dagskrá, ekki satt? Jú Bang Gang spilar 17. mars. Draumurinn ? Draumar villa manni sýn, ég er bara með raunhæf markmið. Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson er framkvæmdastjóri From Nowhere Records, plötuútgáfufyrir- tækis sem hann setti á fót ásamt tónlistarmanninum Barða Jóhannssyni. Sigurður Pálmi hefur viðskiptavitið í blóðinu enda barnabarn Pálma í Hagkaupum. Fréttablaðið heyrði í honum hljóðið í New York og fékk að vita meira. Það var annað hvort Út í Rassgati Records eða þetta. Mér fannst From Nowhere vera þjálla. .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.