Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 62
17. MARS 2007 LAUGARDAGUR20 fréttablaðið fermingar
Þegar kemur að því fyrir for-
eldra að velja hina einu sönnu
fermingargjöf getur valið ýmist
legið afar ljóst fyrir eða valdið
miklum heilabrotum.
Ef það er
rokkari sem
er að fara að
fermast eru
ýmis góð
gítartilboð í
gangi. Hægt
er að fá B.C.
Rich Son of
Beast rafmagnsgítar með poka,
ól, snúru og nöglum og 12 W
æfingamagnara á 37. 900 kr. í
Gítarinn – hljóðfæraverslun á
Stórhöfða.
Nú eru það ekki
lengur gömlu
góðu græjurnar
sem fermingar-
börnin sækjast
eftir heldur hefur
tæknin tekið
stökk og hægt
er að koma öllum uppáhalds
lögunum sínum fyrir í einu
litlu hylki. iPod spilararnir fást í
ýmsum stærðum og gerðum
í apple-búðinni og eru frá
19.990 krónum og upp úr.
Tölvur eru ávallt
vinsælar ferming-
argjafir og oft vilja
unglingarnir fá
fartölvur
þar sem
þær eru með-
færilegar og nýtast vel við
námið. Um þessar mundir eru
í gangi ýmis tölvutilboð og eru
vel flestar tölvuverslanir með
einhvers konar fermingartilboð
í gangi. Í versluninni Tölvutek
fást til dæmis ferðatölvur í
miklu úrvali og á góðu verði.
Stafrænar myndavélar eru til í
ýmsum stærðum og gerðum
og þar af leiðandi eru þær á
mjög breiðu verðbili. Hægt er
að fá góðar myndavélar frá 15–
30.000 krónur. Þessi Olympus
Mju 700 myndavél fæst meðal
annars hjá Bræðrunum Orms-
son og kostar 26.900 krónur.
Hún er 7,1 milljón pixla og fæst
í fjórum litum.
Það er alltaf gaman að falleg-
um hlutum með notagildi
og því er ekki úr vegi að gefa
fermingarbarninu lífstíðareign
á borð við klassísk húsgögn
eftir nafntogaða hönnuði. Sem
betur fer er auðvelt að nálgast
slíka dýrgripi á Íslandi í dag
og má til dæmis nefna búðir á
borð við Saltfélagið og Epal. Í
Saltfélaginu fást til að mynda
nokkrir af hinum frægu Eames
stólum sem eru klassísk
nútímahönnun. Þessi
stóll kostar 19.900
krónur í Salt-
félaginu og
fæst í ýmsum
litum. - hs
Veglegar ferm-
ingargjafirFætur barna á fermingaraldri eru enn að stækka og þarf því að mæla
fótinn áður en skór eru keyptir.
Hafa skal í huga að skónúmer
geta verið mismunandi eftir
merkjum þannig að ágætt er að
fara með skóna heim og ganga
aðeins í þeim. Ef fundið er til
óþæginda er um að gera að fara
með þá aftur í búðina og skipta í
rétt númer. Passa verður upp á að
breiddin á skónum sé þægileg, en fólk er með
mismunandi breiða fætur og vill það oft gleym-
ast. Betra er að kaupa skó seinnipart dags þar
sem fætur bólgna
aðeins yfir daginn.
Margar fermingar-
stúlkur vilja vera á
hælum en séu hælarnir
hærri en þrír sentímetrar
kemur skekkja á bakið og
álag eykst á tábergið og aðra
staði á fætinum. Algengt
vandamál hjá stúlkum er að
velja skó sem eru of litlir því
þeim finnst það fallegra, en það
er mjög slæmt fyrir fótinn.
GÓÐ RÁÐ Sniðugt er
fyrir foreldra, sem þurfa að
undirbúa fermingar fleiri
barna, að skrifa sem mest
niður af því sem að höndum
ber við undirbúninginn. Það
getur verið gott að fletta upp
í þeim punktum næst. Hversu
mikið þarf að kaupa af hinu
og þessu og hve mikið af því
var notað. Hvað var eldað,
og bakað. Hvað þið gerðuð
vitlaust núna og þar fram
eftir götunum. Því meira sem
skrifað er – því betra.
Réttu skórnir