Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 98
Slagorð og mynd-
ir á T-bolum hafa
löngum verið vin-
sælt viðfangsefni.
Hvergi er betra
að tjá skoðanir
sínar og koma rót-
tækum slagorðum
á framfæri. Uppá-
haldshljómsveit-
ir manna og tísku-
íkon hafa selst á
T-bolum eins og
heitar lummur og
nægir að nefna
Che Guevara,
Elvis og Rolling
Stones í því sam-
hengi. Nýlega spratt upp náungi,
Henry Holland að nafni, með ein-
staklega fína hugmynd. Hann
stofnaði lítið tískuhús sem hann
nefndi House of Holland og bjó til
samansafn af mega flottum slá-
andi litríkum T-bolum sem hann
kallar „Fashion
Groupie“. Á
þá skellir hann
svo slagorð-
um þar sem
hann lofsyngur
marga tísku-
hönnuði sam-
tímans en gerir
nett grín að
þeim í leiðinni.
Á einum stend-
ur skýrum
stórum stöfum:
Cause Me Pain
Hedi Slimane, á
öðrum Get Yer
Freak On Giles Deacon, á þeim
þriðja Give Us A Tickle Richard
Nicolls. Hljómar eins og skemmti-
legt einkadjók sem gekk aðeins of
langt og hefur náð útbreiddri at-
hygli! Hægt er að fjárfesta í bol-
unum á www.house-ofholland.
co.uk
Húsið hans Henrys
Tískubylgjur verða til með einstaklingum. Yfirleitt eru það utangarð-
sunglingar sem vilja eitthvað nýtt og annað en það sem er í gildi í dag.
Þessir krakkar safnast fyrst saman á litlum börum þar sem helst eng-
inn sér þá, hlusta á skrýtna tónlist og klæðast skrýtnum fötum. Þeir
verða sjálfkrafa hluti af einhvers konar neðanjarðarmenningu sem
krefst breytinga og vill ekki þrífast í þeim leiðindaferhyrningi sem
samfélagið setur þeim. Í þessum hóp er fólk af öllum stærðum og gerð-
um, ljósmyndarar, listamenn, leikarar, tónlistarfólk, stílistar, hugsuð-
ir og heimspekingar. Allir eiga það sameiginlegt að þeim líður eins og
þeir séu komnir heim þegar þeir stíga fæti inn á barinn sinn, kaffihúsið
eða klúbbinn og hitta vinina sem eru þeim líkt og fjölskylda og eiga sér
svipaða drauma og tilfinningar.
Og hvernig sýnir þessi þéttskipaði kjarni fólks hvað þau eru að meina
út á við? Hvernig sýna þau hvers þau eru megnug? Með klæðaburði!
Hipparnir gerðu það á sjöunda áratugnum, pönkaranir á þeim á átt-
unda og reifararnir á þeim níunda. Allar þessar bylgjur voru byltinga-
kenndar hvað varðar klæðaburð og fatahönnun. Minni byltingar (þó
ekki minna áhugaverðar) eiga sér þó
stað hvert sem litið er og geta af sér
æðislega fatahönnuði og tískuspek-
úlanta. Þessa dagana siglir skemmti-
leg bylgja yfir Bretland sem kölluð
hefur verið nýja reifið eða New Rave.
Samkvæmt upplýsingum mínum eru
þetta mestmegnis breskir utangarðs-
klúbbakrakkar sem fengu leið á að
gera ekki neitt og ákváðu að undir-
strika og umfaðma eigin furðulegheit
og gera skemmtilega hluti af alvöru
með tilheyrandi glimmeri og glow-
prikum. Mér koma strax í hug nokkrir
ungir breskir fatahönnuðir sem hafa
sprottið upp úr þessari senu. Gareth
Pugh og Christopher Kane eru að taka
tískuheiminn með trompi og lífga við
breska fatahönnun sem hefur verið
meira og minna í andaslitrunum síð-
ustu 20 árin (Stella McCartney, Alex-
ander McQueen og auðvitað frú West-
wood eru þó algjörar undantekning-
ar). Hönnuðurinn Giles Deacon er
líka með eindæmum atorkusamur líkt
og Henry Holland sem fékk skemmti-
lega og einfalda hugmynd og gerði
sannarlega alvöru úr henni.
Þetta sýnir og sannar enn og aftur
að af litlum neista kviknar oft mikið
bál. Munum því öll eftir að rækta litla
neistann innra með okkur.
Reif í skóinn
Jæja, nú er allt að smella saman. Eftir miklar vanga-
veltur er maður búinn að velja kjól og finna hina
fullkomnu skó í stíl, háir hælar sem undirstrika fal-
lega leggina. Kápan er eins og punkturinn yfir i-ið
og manni líður eins og maður sé nýstiginn út úr ein-
hverri góðri kvikmynd. En það er samt eitthvað sem
sárlega vantar. Maður brýtur heilann svo í brakar.
Allt frá naglalakki upp í kinnalit er á sínum stað...
engin lykkjuföll á sokkabuxunum... hárið nýblásið og
fínt. Hananú! Hárið. Það vantar eitthvað fallegt til að
undirstrika fína hárið og hvað er betur til þess fall-
ið en falleg hárspöng með satínslaufu eða litríkum
perlum? Eða jafnvel litrík fjaðraspenna? Fullkomið
til að fullkomna lúkkið. Hér eru nokkur góð dæmi
sem tínd voru til í búðum Reykjavíkur sem og höfuð-
búnaður frá tískuhönnuðum úti í heimi sem gaman
er að skoða og fá hressandi innblástur frá!
Hárskraut og höfuðskraut
Veikust fyrir Símoni Birgissyni
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM
OPIÐ TIL KL. 18 Í DAG