Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 68
17. MARS 2007 LAUGARDAGUR26 fréttablaðið fermingar
Við fermingarmyndatöku legg ég fyrst og fremst áherslu á að krakkarnir nái að vera þeir sjálfir,“ segir Freyja Gylfadóttir hjá Stúdíó 101.
„Ég vil ekki skella þeim hér inn í myndverið, taka
þrjátíu myndir og að þær séu bara einhvern veginn.
Myndatakan þarf að taka um það bil klukkustund og þá
er til dæmis hægt að nota tónlist með. Ég mæli oft með
því að krakkarnir taki sína uppáhalds tónlist með sér,
en hún hjálpar þeim að slappa af og vera rólegri í skinn-
inu. Það labbar nefnilega enginn inn í stúdíó, sest í stól-
inn og breytist í fyrirsætu. Þetta tekur allt sinn tíma.“
Freyja segir sífellt færri kjósa að hafa einungis
kyrtil og sálmabók á fermingarmyndinni og að sumir
vilji það hreinlega alls ekki. Hún hefur þó alltaf ferm-
ingarkyrtil við hendina og margir hafa þá eina slíka
mynd með í syrpunni. Fólk kýs líka að fá myndirnar
útprentaðar bæði í lit, svarthvítu og brúnum tónum,
eða svarthvíta með einum lit, og svo eru þær afhentar í
stærðinni 13x18 í þar til gerðri möppu. Stækkanir eru
gerðar eftir þörfum. Stundum kemur það fyrir að ferm-
ingarmyndatökur
fari fram utandyra
en enn hefur ekki til
þess komið að kyrtil-
smynd sé tekin úti í
guðsgrænni náttúr-
unni. „Það gæti samt
orðið mjög skemmti-
ega óhefðbundin
mynd. Til dæmis væri hægt að taka hana úti í hrauni eða
niðri við sjó,“ segir Freyja og hlær.
Freyja hvetur fólk einnig til að nýta sér tækifærið og
láta taka fjölskyldumynd um leið og fermingarmynda-
takan fer fram. „Það er ekki á hverjum degi sem fólk
kemur í ljósmyndastúdíó og því vel þess virði að smala
hópnum saman, því í raun er alveg ómetanlegt að eiga
góða fjölskyldumynd,“ segir hún að lokum.
Heimasíða Freyju er www.studio101.is
Harpa Hrund Njálsdóttir ljósmyndari hefur rekið ljósmyndastúdíó í um tvö ár en hefur þó verið að taka myndir
frá því á unglingsárum.
Hún segir fermingarmyndir hafa breyst
mikið undanfarin ár og nú fái unglingarnir
meira að taka þátt í því hvað gerist.
„Ég held að það hafi til dæmis aldrei átt
sér stað hér áður fyrr að sjálft fermingar-
barnið réðist í að panta myndatökuna, en núna
er ég byrjuð að fá tölvupósta frá krökkum
sem eru að skipuleggja myndatökur. Krakkar
kunna almennt mjög illa við þessar uppstilltu
myndir þar sem fermingarbarnið stendur við
dúkalagt borð með logandi kerti, haldandi á
sálmabók eða með spenntar greipar og angur-
væran svip. Þetta er liðin tíð og nú viljum við
hafa þetta svolítið afslappaðra,“ segir Harpa
og bendir á að krakkarnir vilji gjarnan að
þeirra persónuleiki eða áhugamál skíni í
gegn.
„Þannig koma margir með íþróttagallann,
hljóðfæri, dansfötin eða annað sem gefur vís-
bendingu um hverju unglingurinn hefur
áhuga á. Oft er til dæmis hægt að taka mjög
fallegar, svarthvítar myndir þar sem hljóðfæri eru með
á mynd.“ Spurð að því hvort einhver unglingurinn hafi
tekið með sér fartölvu eða Play Station-vél í myndatöku
segir hún það enn ekki hafa gerst, en að því hljóti þó að
koma. „Ein kom reyndar með iPod um daginn og það
var bara mjög skemmtilegt. Ef fermingarbarnið er
feimið að eðlisfari þá er minna gaman að myndaalbúmi
þar sem allar myndirnar sýna einstaklinginn með
þvingað og skrítið bros, svo á heldur ekkert að brosa á
öllum myndum. Það brosir enginn allan daginn hvort
sem er,“ segir hún og bætir því við að fermingarmynda-
takan sé í raun orðin meira unglingavæn.
„Fermingarbörn eru fullorðin en samt ekki og því
finnst þeim mjög gott að fá að vera með í að taka
ákvarðanir kringum þetta. Enda ættu þau vissulega að
fá að hafa áhrif þar sem þetta eru myndir af þeim.“
Heimasíða Hörpu Hrundar er www.harpahrund.is
en þar má finna verðlista og fleira. mhg@frettabladid.is
Fæst kjósa kyrtilinn
Flestir Íslendingar láta ferma sig og við það tilefni má ekki sleppa því að láta taka ljósmynd af fermingarbarninu. Stundum kemur það fyrir að fólki mislíki blessuð
fermingarmyndin þar sem tíska liðinnar tíðar verður oft hlægileg þegar fram líða stundir og unglingar geta verið fremur sérkennilegir í útliti þegar þeir eru á hátindi
kynþroskaskeiðs. Af þessum og fleiri ástæðum hafa venjur í kringum fermingarmyndatökur breyst töluvert undanfarið og eru nú öllu hliðhollari unglingunum þar sem
þeir fá að vera mikið með í ráðum.
Harpa Hrund Njálsdóttir ljósmyndari segir mikil-
vægt að persónuleiki þess sem verið er að mynda
fái að koma fram við myndatökuna.
Freyja Gylfadóttir hefur enn ekki tekið mynd þar sem fermingarbarnið stendur utandyra í kyrtlinum, en
heldur að það gæti komið skemmtilega út enda verða fermingarmyndir æ óhefðbundnari.
Fermingargjöf – með æviábyrgð
Gjafabréf Hraðlestrarskólans • Frábær fermingargjöf • Gjöf með æviábyrgð
Allar upplýsingar á www.h.is og í síma 586-9400
“..hef náð frá 130 orðum á mínútu í 1056 orðum á mínútu..”
Axel Kristinsson, 16 ára nemi.
“Þetta mun nýtast mér alla ævi.”
Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi.“..byrjaði með 96 orð á mínútu og 40% skilning en
í lokin las ég 406 orð á mínútu og 70% skilning.”
14 ára nemi.
“Ykkur að þakka mun ég rúlla upp
samræmdu prófunum.”
Jökull Torfason, 15 ára nemi.
“Námskeiðið er gott,
ekki of tímafrekt og
góður undirbúningur fyrir
framtíðina.”
Margrét Ósk, 14 ára nemi.
“..fannst námskeiðið
skemmtilegt og krefjandi.”
Álfrún Perla, 14 ára nemi
“...jók lestrarhraðann
talsvert mikið.”
Elísa Elíasdóttir, 12 ára nemi.
“..þetta hefur hjálpað mér í námi.”
Steinar Þorsteinsson, 15 ára nemi.
Korthafar VISA kreditkorta
– nýtið ykkur frábært tilboð
– gildir til 1. apríl