Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 40
Á Indlandi er hægt að finna
allt.
Indland er að verða sífellt vin-
sælli ferðamannastaður hjá vest-
urlandabúum. Fólk ferðast þangað
í misjöfnum erindagjörðum enda
hefur þetta sjöunda stærsta land
í heimi (heildarflatarmál landsins
er 3.287.590 km²) upp á ótal margt
að bjóða.
Indland er sannkallað himna-
ríki fyrir áhugamenn um sögu og
byggingalist. Mannvirki á borð
við grafhýsið Taj Mahal í borg-
inni Agra, moskan Masjid-i-Jahan
Numa, sem er sú stærsta í landinu,
höllin Rauða virkið í Delhi og Hlið
Indlands í Mumbai (áður Bomb-
ay) sameina þetta tvennt og eru
á meðal vinsælustu minnisvarða
landsins.
Skammt frá Hliði Indlands er
gott hótel í Taj-keðjunni, en nóg
er af íburðarmiklum hótelum í
Mumbai. Svo sem Hyatt-hótelin og
The Leela, þar sem aldrei er að vita
nema maður rekist á fræga kvik-
myndastjörnu. Kvikmyndaiðnað-
ur Indverja hefur nefnilega aðset-
ur í borginni og þekkist undir heit-
inu Bollywood, sem er samsetning
á orðunum Bombay og Hollywood.
Það er líka af nógu að taka fyrir
þá sem vilja sneiða hjá fjölsóttum
ferðamannastöðum. Til að mynda
er alltaf hægt að skella sér úr ysi
og þysi stórborgarlífsins í Mumb-
ai, Agra og Delhi og út á lands-
byggðina.
Kozhikode, öðru nafni Calicut, er
ein fallegasta borg Keralahéraðs á
vesturströnd Indlands, svo dæmi
sé tekið. Þar er gott að slappa af í
náttúrufegurðinni, fara í fljótsferð
um Kallai-fljótið og heimsækja
kryddmarkaðinn. Svo er alltaf
hægt að endurnæra líkama og sál
með því að skella sér í gott Ayur-
veda-nudd sem hefur verið iðkað
öldum saman á Indlandi.
Ævintýragjörnum ferðalöngum
er bent á náttúruskoðunarferðir,
en óvíða er dýralíf eins fjölskrúð-
ugt og á Indlandi. Áætlað er að 88
þjóðgarðar og 490 verndarsvæði
séu í landinu. Hægt er að skella sér
í nokkura daga safaríferðir undir
öruggri handleiðslu fararstjóra og
skoða dýrin í náttúrulegum heim-
kynnum sínum. Pench-þjóðgarð-
urinn, sögusvið bókarinnar Frum-
skógarlífs, er mjög vinsæll en
hann er skammt frá borginni Nag-
pur sem er í landinu miðju.
Svo er hægt að fara á slóðir
móður Theresu í Kalkútta, en sagt
er að varla finnist sá staður í heimi
þar sem örbirgðin er meiri. Tilval-
ið fyrir þá sem vilja heimsækja
munaðarleysingjahæli og láta þar
gott af sér leiða. Fátæktin í borg-
inni er svo ótrúleg að vestrænir
ferðalangar sem hafa áður dvalið
á lúxushótelum í Mumbai og Delhi
trúa því varla að andstæðurnar
geti verið svona miklar í einu og
sama landinu. Land andstæðna er
aftur á móti eitt viðurnefni Ind-
lands og ferð til Kalkútta staðfest-
ir það.
Þegar maður hefur fengið nóg
af ævintýramennsku er alltaf
hægt að leita aftur í vestræna af-
þreyingu. Goa í Konkan-héraði á
vesturströnd landsins er einn vin-
sælasti áfangastaður vestrænna
ferðalanga, enda er þar allt til alls.
Goa er þekkt fyrir villt næturlíf,
fjölskrúðugt gróðurlíf og fallegar
strendur. Ekki má gleyma nuddi,
en tilvalið er að láta nudda sig
undir berum himni í náttúrufeg-
urðinni. Tilvalin endalok á góðu
ferðalagi.
Mörg andlit Indlands
Come2 Scandinavia, Vesterbrogade 17
1620 Kaupmannahöfn.
Bjóðum upp á tvær glæsilegar 160 fm íbúðir til viku-
eða helgarleigu á Vesterbrogade í Kaupmannahöfn.
Hentar fjölskyldum, vina- og vinnuhópum afar vel.
Nánari upplýsingar að finna á: www.come2scandinavia.com
Sími: +45 33 25 64 25 - Netfang: info@come2scandinavia.com
Leiguíbúðir í Kaupmannahöfn
Króatía