Fréttablaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 58
17. MARS 2007 LAUGARDAGUR16 fréttablaðið fermingar
1. Dukkah, olía og pestó og
brauð til að dýfa ofan í glösin.
2. Tígrisrækja með sætum pipar-
ávexti (peppadew) á klettasalat-
beði.
3. Grillað nautakjöt í teriaky-sósu
með jógúrtídýfu.
4. Petite franskar súkkulaðikökur
með rjóma og jarðarberjum.
5. Ferskt sælkerasalat Yndisauka
með öllu sem sannir sælkerar
kunna að meta.
6. Grafið lamb með hindberjavín-
egrettu, geitaosti, furuhnetum
og fleira fíneríi.
Fyrir þremur árum stofnuðu Guð-
björg Halldórsdóttir og Kristín
Ásgeirsdóttir sælkeraþjónustuna
Yndisauka. Kristín hafði þá meðal
annars starfað sem smurbrauðs-
dama á Jómfrúnni, kokkanemi á
Vox og sem matreiðslumeistari og
umsjónarmaður veisluþjónustu á
Copenhagen Conditori.
Guðbjörg lærði kokkinn fyrir
tuttugu árum síðan, en eftir það lá
leiðin í aðra átt. Hún fór í heilsu-
geirann og starfaði um árabil sem
einkaþjálfari, nuddari og heilsu-
ráðgjafi þar til hún sneri sér aftur
að matargerð.
Margir kannast nú við vörur
kvennanna í Yndisauka en þær
framleiða meðal annars hið geysi-
vinsæla dukkah og fleira góðgæti
sem selt er í öllum betri matvöru-
verslunum. Veislumatur frá Ynd-
isauka er ekki hefðbundinn í þeim
skilningi að veisluborðið byggist
á hamborgarhrygg og skinku-
brauðréttum. Þær leita fanga alls
staðar í heiminum og reyna að
velja það besta hverju sinni, hvort
sem um er að ræða ferska spergla,
furuhnetur, geitaost, tígrisrækjur
eða afar fíngerðar franskættaðar
súkkulaðikökur.
Til að panta veisluborð frá kon-
unum í Yndisauka er nauðsynlegt
að hafa góðan fyrirvara á pöntun-
inni, en þær sinna veislum af
öllum stærðum og gerðum.
- mhg
Góðgæti frá öllum
heimsins hornum
Guðbjörg Halldórsdóttir og Kristín Ásgeirsdóttir reka veisluþjónustuna Yndisauka.
1
4
6
3
5
2