Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 4
Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur segir að lækkun Fitch Ratings á lánshæfismati ís- lenska ríkisins þýði að ríkið fái almennt verri kjör í lántökum sínum. Lánshæfismatið hafi líka áhrif á kjörin sem bankarnir fái í lántökum sínum erlendis og leiði þar með til hærri vaxta innanlands. „Þetta þýðir væntanlega að bankarnir verða að taka lán á verri kjörum og það hlýtur því að leiða að einhverju leyti til hærri vaxta innanlands. Svo er spurning hve stór og mikil áhrifin verða. Að sumu leyti er þessi breyting fyrirséð og að ein- hverju leyti komin fram í gegnum væntingar. En það verða einhver áhrif, það er alveg klárt,“ segir hún. „Það gefur augaleið að þessi lækkun á lánshæf- ismati hækkar lántökukostnað, ekki bara ríkis- ins heldur líka þjóðfélagsins. Í rauninni er verið að meta greiðsluhæfni þjóðarinnar,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. „Bankarn- ir verða að skila hærri tilkostnaði í gegnum út- lánsvexti sína þannig að auðvitað hefur þetta áhrif á stöðu okkar sem einstaklinga. Heimilin í land- inu skulda yfir 1.300 milljarða. Hálft prósentustig í vöxtum jafngildir einu skattprósenti.“ Hækkar lánsvexti fjölskyldna Mótmælaað- gerðir stjórnarandstæðinga settu sterkan svip á hátíðahöld á þjóð- hátíðardegi Ungverja á miðviku- dag. Þúsundir hægrimanna söfn- uðust saman og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans og sósíalist- ans Ferenc Gyurscany. Hörð átök herskárra þjóðernis- sinna við lögreglu brutust út um kvöldið og voru tugir manna handteknir. Ekki er búist við miklum átökum næstu daga, en mótmæli gegn Gyurscany hafa brotist út reglulega í vetur. Þjóðhátíðardagurinn er haldinn til minningar um uppreisn Ung- verja gegn Habsborgarveldinu árið 1848. Götubardagar á þjóðhátíðinni Sátt náðist um það á fundi samgöngunefndar í gærkvöldi að fella grein um kjaramál út úr frumvarpi um íslenska alþjóð- lega skipaskrá. Harkalegar deil- ur urðu milli fulltrúa ASÍ og Sjó- mannasambandsins annars vegar og formanns samgöngunefndar hins vegar um frumvarpið á fundi nefndarinnar eftir hádegi í gær. Fulltrúar ASÍ og Sjómannasam- bandsins voru alfarið mótfalln- ir frumvarpinu og töldu það brot á stjórnarskránni, mannréttinda- sáttmála Evrópu og alþjóðasamn- ingum. „Það féllust allir á þá niðurstöðu að kjarasamningar væru bara mál þeirra sem að kæmu og að löggjaf- inn ætti ekki að vera að setja ein- hver ákvæði þar um,“ sagði Guð- mundur Hallvarðsson, formað- ur samgöngunefndar, eftir að sátt náðist. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands- ins, segist ánægður með niður- stöðuna. „ Gylfi hafði gagnrýnt að sam- tök launafólks hefðu ekki vitað af þessu frumvarpi fyrr en um há- degi í fyrradag og ekki hefði verið óskað eftir umsögn ASÍ eftir fund- inn í samgöngunefnd í gær. Það væri mjög sérstök málsmeðferð. Meðal þess sem gagnrýnt var í fyrstu gerð frumvarpsins var að með því væri verið að binda í lög að kjör gætu verið lakari en kveð- ið er á um í kjarasamningum og í raun væri verið að samþykkja mis- munun á grundvelli þjóðernis, sem væri óheimilt samkvæmt stjórnar- skránni. Auk þessa væri verið að brjóta grundvallarsamþykktir Al- þjóðavinnumálastofnunar sem Ís- lendingar hefðu skuldbundið sig til að fylgja. Guðmundur Hallvarðsson, for- maður samgöngunefndar, sagði að engin ástæða hefði verið til að óska eftir umsögn ASÍ enda hefði Alþýðusambandið aldrei beitt sér í málefnum farmanna. Íslensk al- þjóðleg skipaskrá hefði lengi verið í umræðunni milli kaupskipaút- gerða og stéttarfélaga farmanna og nú loks náð saman. „Fyrst samkomulag náðist sýn- ist mér að það sé einsýnt að þessi mál nái fram að ganga og þá vonar maður bara að þetta verði til þess að aftur muni sjást skip undir ís- lenskum fána og skip á íslenskri skipaskrá. Heimild til að greiða undir taxta felld út Harkalegar deilur urðu á fundi samgöngunefndar Alþingis í gær. Verkalýðs- hreyfingin taldi frumvarp um alþjóðlega skipaskrá brot á stjórnarskrá, mann- réttindasáttmála og alþjóðasamningum. Deilurnar leystust í gærkvöldi. Einn var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri eftir harðan árekstur á Akureyri í gærmorg- un. Slysið varð með þeim hætti að vörubíll og fólksbíll skullu saman á gatnamótum Undirhlíðar og Krossanesbrautar. Fólksbíllinn er talinn ónýtur eftir slysið en öku- maðurinn sem slasaðist var einn í bílnum. Meiðsli hans voru ekki al- varleg. Þá handtók lögreglan á Akur- eyri ökumann sem lenti í litlum árekstri á gatnamótum Þórunnar- strætis og Þingvallastrætis. Hann er grunaður um ölvun við akstur. Ekki urðu slys á fólki. Einn fluttur á slysadeild Dómstóll í Berlín komst í gær að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að nota nasistatákn op- inberlega ef augljóslega er verið að lýsa andstöðu við þau og nas- ismann sem þau standa fyrir. Jürgen Kamm og póstsending- arfyrirtæki hans Nix Gut teljast þar með ekki hafa brotið lög með því að framleiða og selja vörur, svo sem límmiða, barmmerki og boli, með nasistatáknum og selja á netinu vegna þess að táknun- um fylgja greinileg skilaboð um andúð á þeim. Ekki bönnuð í mótmælaskyni 44 prósent lands- manna eru hlynnt stækkun álvers Alcan í Straumsvík samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir RÚV og Morg- unblaðið. Þar kemur einnig fram að 39 prósent Íslendinga eru andvíg stækkuninni og 17 prósent hvorki andvíg né hlynnt henni. Úrtak könnunarinnar var 1.820 manns á aldrinum 18 til 75 ára og var svar- hlutfall 61 prósent. Rúmlega níu af hverjum tíu sem svöruðu tóku afstöðu til málsins. Kosið verður um stækk- unina þann 31. mars. Fleiri hlynntir stækkun álvers
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.