Fréttablaðið - 17.03.2007, Qupperneq 10
Nemendur á heima-
vistum framhaldsskóla á Íslandi
geta margir átt von á fíkniefna-
leitarhundum í heimsókn á vist-
irnar fyrirvaralaust. „Fíkniefnin
eru vá sem við stöndum frammi
fyrir á öllu landinu og við erum
auðvitað með augun mjög vel
opin,“ segir Valgerður Gunnars-
dóttir, skólameistari Framhalds-
skólans á Laugum, en nemandi við
skólann var handtekinn á heima-
vist á þriðjudag með mikið magn
fíkniefna sem talin eru hafa verið
ætluð til sölu.
Valgerður segir að mjög vel
sé fylgst með áfengis- og vímu-
efnanotkun íbúa heimavistarinn-
ar. Svokallaðir húsbændur séu á
vakt á heimavistunum öll kvöld
og helgarnætur, starfsmenn sem
nemendur fylgist vel með og láti
vita ef eitthvað kemur upp, auk
þess sem öflugur forvarnarfull-
trúi starfi við skólann.
Valgerður hefur gripið til þess
ráðs að kalla til lögreglu með
fíkniefnaleitarhund einu sinni á
vetri, en vill ekki gefa upp hvort
eitthvað hafi fundist í slíkum leit-
um. Valgerður segir hundana þó
ekki leita inni á herbergjum nem-
enda, enda sé óheimilt að fara inn
á herbergin nema með húsleitar-
heimild frá lögreglu.
Halldór Páll Halldórsson, skóla-
meistari Menntaskólans að Laug-
arvatni, hefur einnig brugðið á
það ráð að kalla til fíkniefnaleit-
arhunda. „Það er bara hluti af því
að reka heimavist að fíkniefna-
hundar komi þangað,“ segir hann.
„Það eru fjögur ár síðan mál tengt
fíkniefnum kom hér upp síðast og
síðan ég byrjaði hér hafa málin
verið afskaplega fá og ekki stór.“
Í leigusamningum sem vist-
menn á Laugarvatni gera er kveð-
ið á um að stjórnendur hafi heim-
ild til að leita í herbergjum að
leigjanda viðstöddum vakni grun-
ur um eitthvað misjafnt. Halldór
segir þó mjög óalgengt að þetta
þurfi að gera.
Að sögn Helga Braga Ómars-
sonar, skólameistara Menntaskól-
ans á Egilsstöðum, hefur enn ekki
komið til þess að fíkniefnahundar
leiti á heimavistinni þar, þótt það
hafi komið til tals. Helgi segir að
aldrei hafi komið upp mál tengt
fíkniefnum á heimavist skólans.
„Það er bara svo erfitt að átta sig
á þeim. Þau eru örugglega hér á
ferðinni eins og annars staðar.“
Þá segir hann íbúa heimavistar-
innar meðvitaða um það að leit-
að verði í herbergjum þeirra ef
þurfa þykir.
Hundar leita á heimavistum
Fíkniefnahundar eru reglulega fengnir til að leita á heimavistum sumra framhaldsskóla landsins. Misjafnt
er hvort yfirmenn skóla og heimavista hafa heimild til að leita á herbergjum íbúa ef ástæða þykir.
„Ég myndi ekki
kalla þetta einkarekna heilsu-
gæslu,“ segir María Bragadóttir,
sviðsstjóri heilbrigðissviðs InPro
en eins og komið hefur fram í
fréttum hefur dótturfélag InPro,
Heilsuverndarstöðin ehf., tekið
yfir rekstur Heilsuverndarstöðv-
arinnar við Barónsstíg.
Markmiðið er að endurreisa
Heilsuverndarstöðina og endur-
vekja hin upprunalegu gildi henn-
ar sem snúa að því að efla líkam-
lega, andlega og félagslega heilsu
landsmanna.
Að sögn Maríu verður rekstur-
inn ekki svo ólíkur rekstri annarra
heilbrigðisstofnana. „Það er engin
einkavæðing í gangi. Þetta er að-
eins spurning um að geta boðið
fagfólki, sem nú þegar vinnur að
heilbrigðismálum, tækifæri til
að vinna saman undir einu þaki,“
segir María.
Þá kemur þjónusta hinnar nýju
Heilsuverndarstöðvar ekki til með
að kosta meira en önnur heilbrigð-
isþjónusta. „Það gilda ákveðnir
samningar milli þessara heilbrigð-
issérfræðinga og ríkisins. Þeir eru
einungis að flytja þjónustu sína til
og rekstur þeirra mun í raun ekki
breytast. Þessir starfsmenn verða
ekki starfsmenn InPro,“ segir
María og bætir því við að þjónusta
fagfólksins komi til með að falla
undir skilmála Tryggingastofn-
unar á sama hátt og hjá þeim sér-
fræðingum sem reka sínar eigin
stofur.
Engin einkavæðing í gangi
Tveir karlmenn, 20 og
26 ára, voru í gær dæmdir í skil-
orðsbundið fangelsi í tvo og þrjá
mánuði, fyrir líkamsmeiðingar af
gáleysi.
Mennirnir gripu í sameiningu
í buxnastreng og pung tæplega
fimmtugs manns og drógu hann
niður stiga á skipi sem þeir voru
allir skipverjar á. Atburðurinn
átti sér stað í október árið 2004.
Við þetta hlaut maðurinn var-
anleg meiðsli á þvagfærum og
þurfti að gangast undir aðgerð.
Mennirnir voru einnig dæmdir til
að greiða fórnarlambinu 800 þús-
und krónur í skaðabætur.
Drógu sjómann
á pungnum