Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 12
Oft eru harkaleg viðbrögð gegn hryðjuverkum ná- kvæmlega það sem hryðju- verkamennirnir sækjast helst eftir. Til að forðast þessa gildru gæti verið heillavænlegra að sætta sig að einhverju marki við árásir þeirra. Víðast hvar í heiminum hafa ör- yggis- og varnarmál síðustu árin einkum snúist um þá ógn, raun- verulega jafnt sem ímyndaða, sem stafað hefur af hryðjuverka- mönnum. Mestallur viðbúnað- ur þjóða hefur haft það markmið að verjast árásum hryðjuverka- manna. Alyson Bailes, yfirmaður sænsku friðarrannsóknastofnun- arinnar SIPRI, vill nálgast þessi mál með svolítið öðrum hætti og telur að hugsanlega hafi menn ekki farið rétta leið til að verjast hryðjuverkamönnum. Algengustu viðbrögð stjórnvalda hafa verið að herða reglur og eftirlit með al- menningi, efla her og leyniþjón- ustu og taka af hörku á hryðju- verkamönnum. Hitt sjónarmiðið hefur þó einnig heyrst, að rétt sé að sætta sig að einhverju marki við árásir hryðjuverkamanna til þess að geta þá sýnt þeim að árás- ir þeirra hafi ekki þau áhrif sem þeir sækjast eftir. Þeim muni ekki takast að breyta okkur. Bailes telur ekki alvitlaust að gefa þessu sjónarmiði nokkurn gaum. „Ég tek alltaf dæmi af Þýskalandi á áttunda og níunda áratugnum þegar Baader-Meinhof hópurinn gerði þar hvað mestan usla. Í dag er fólk farið að gleyma þessum hópi, en þetta voru mjög grimmir hryðjuverkamenn. Þeir stóðu fyrir sprengjuárásum sem ollu fólki miklum skaða, þeir stund- uðu aftökur á fólki og mannrán og komu virkilega við kauninn á Þjóðverjum á þessum tíma. Ríkis- stjórnin í Þýskalandi tók hins vegar strax mjög skýra afstöðu gagnvart þessum atburðum.“ Þjóðverjar áttuðu sig á því að Baader-Meinhof samtökin höfðu það markmið að þröngva Þýska- landi til að verða alræðisríki á ný. Þau vonuðu beinlínis að ríkið myndi beita harkalegum aðgerð- um gegn þeim svo þau gætu stillt sjálfum sér upp sem píslarvottum og bent á þýska ríkið sem hreint fasistaríki, engu skárra en nas- istastjórn Hitlers. Bailes segir að Þjóðverjar hafi frá upphafi verið staðráðnir í að falla ekki í þessa gildru. „Þeir sögðu sem svo: við ætlum ekki að brjóta okkar eigin lög og við ætlum ekki að setja ný og strangari lög, við ætlum ekki að senda herinn aftur út á götur Þýskalands heldur ætlum við að beita venjulegum lögregluaðgerð- um til að koma þeim á kné. Þetta þýddi reyndar að það tók tölu- vert langan tíma að hafa hendur í hári þessara hryðjuverkamanna og þeim tókst að valda veruleg- um skaða á meðan. En á hinn bóginn fengu þeir aldrei samúð almennings í Þýskalandi og held- ur ekki í öðrum löndum. Þvert á móti fengu Þjóðverjar mikið lof frá öðrum löndum fyrir að taka á þessum málum með lýðræðisleg- um hætti þrátt fyrir að þurfa að færa ákveðnar fórnir.“ Bailes segir að víða í Evrópu sé fólk sér enn afar meðvitað um þetta eftirminnilega fordæmi Þjóðverja. „Mörg lönd eru að velta þessu fyrir sér í dag og ræða af mikilli alvöru um hvar finna megi rétt jafnvægi milli þess að herða tökin á samfélaginu, sem gæti bjargað einhverjum mannslífum, eða fall- ast kannski á einhverjar fórnir til að tryggja að landið verði áfram opið samfélag með óskert sjálfs- öryggi og óbrenglað gildismat.“ Alyson Bailes var stödd hér á landi í vikunni á vegum Alþjóða- stofnunar Háskóla Íslands. Hún flutti hér fyrirlestur á mánudag- inn var þar sem hún fjallaði sér- staklega um tengsl viðskiptalífs- ins við hernaðar- og öryggismál. Þau tengsl eru margvísleg og töluvert meiri en menn kannski gera sér grein fyrir. Þetta er frekar lítt kannað svið í örygg- is- og varnarfræðum, en Bailes telur að betri þekking á tengslum viðskiptalífsins við hinn grimma heim hernaðar og öryggismála bjóði upp á margvíslega mögu- leika til að hafa áhrif á þróun þeirra mála í heiminum. Aukin kostnaðarvitund getur til dæmis ein og sér vakið upp eflda gagnrýni á umdeildar hliðar vopnaviðskipta, eins og til dæmis notkun jarðsprengna og klasa- sprengna. „Við verðum að muna að hern- aðaraðgerðir eru ekki bara kostn- aðarsamar fyrir skattgreiðendur sem þurfa að greiða fyrir vopn- in,“ sagði hún í viðtali við Frétta- blaðið, „heldur geta þær líka vald- ið öðru fólki í heiminum ómældu tjóni ef þessi vopn eru notuð á rangan hátt, til dæmis ef þeim er beitt af litlu tilefni eða af of miklu offorsi. Áhrifin af þeim geta þá orðið miklu grimmilegri en nauð- synlegt er til að ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að.“ „Flestir sem verða fyrir jarð- sprengjum eru saklausir borgar- ar og verstu tegundir þeirra geta legið í jörðinni í fimm eða tíu ár eftir að átökum lýkur og hald- ið áfram að sprengja upp fólk meðan reynt er að finna friðsam- legar lausnir. Jarðsprengjur geta kannski verið hagkvæmar í fram- leiðslu vegna þess að kostnaður- inn á hverja framleiðslueiningu er frekar lítill, en þegar horft er til þess hve gríðarlega kostnaðar- samar þær eru fyrir íbúa þeirra landa þar sem vopnin eru notuð, þá myndi ég segja að kostnaðar- jafnvægið væri óviðunandi.“ Með tiltölulega einföldum kostnaðarútreikningi geta því mannúðarsjónarmið fengið veru- lega aukið vægi, enda verð- ur kostnaðurinn ekki eingöngu mældur í peningum heldur ekki síður í manntjóni og mannleg- um harmleik. Slíkir útreikning- ar geta einnig lumað á sterkum rökum fyrir afvopnunarsjónar- miðum. „Mörg lönd halda til dæmis enn uppi allt of voldugum her- búnaði sem þau komu sér upp í kalda stríðinu af ástæðum sem kannski voru skynsamlegar þá en sem ekkert vit er í lengur. Hvers vegna höldum við til dæmis í alla þessa skriðdreka? Út frá efna- hagslegum forsendum eingöngu gæti maður komist að þeirri nið- urstöðu að best væri að losa sig við þá. Og ef við ætlum að losa okkur við þá, þá gætum við einn- ig komist að þeirri niðurstöðu að betra væri að sannfæra aðra um að losa sig við þá líka.“ Hún hlær þegar blaðamaður spyr hvers vegna hún hafi tekið þá ákvörðun að koma til Íslands og hefja hér störf hjá Alþjóðastofn- un Háskóla Íslands. „Það kemur engum í fjölskyldu minni á óvart né neinum sem þekkir mig heima, því ég hef allt- af verið hrifin af Íslandi, alveg frá því ég var smákrakki. Frá árinu 1983 hef ég komið hingað á hverju einasta ári, stundum oftar en einu sinni.“ Seinni árin hefur hún kynnst fólki og eignast vini, bæði meðal háskólafólks og fólks sem starf- ar hjá stjórnvöldum og í fjölmiðl- um. „Ég hafði alltaf hugsað með mér hvað það væri gaman að geta komið hingað til að vinna þegar ég væri laus úr starfi mínu hjá SIPRI.“ Starfsfólk Alþjóðastofnun- ar vissi af þessum Íslandsáhuga hennar og spurði hvort hún væri ekki til í að koma hingað að kenna, og ekki þurfti að bíða lengi eftir svari. „Hér fæ ég tækifæri til að um- gangast ungt fólk, sem er mikil- vægt fyrir mig á þessu stigi lífs- ins. Ég fæ einnig tækifæri til að rannsaka nýjar hliðar á ör- yggismálum og sinna mínum eigin rannsóknum, þar á meðal á tengslum viðskiptalífsins við ör- yggis- og hernaðarmál.“ Hryðjuverkagildruna verður að forðast 75% afsláttur af erlendum útsölubókum – opið til kl. 22.00 öll kvöld
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.