Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 18

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 18
greinar@frettabladid.is Fagna ber afgreiðslu allsherjarnefndar á frumvarpi til breytinga á kynferðisbrot- akafla hegningarlaganna. Í upphaflega frumvarpinu var gert ráð fyrir óbreytt- um kynferðislegum lágmarksaldri, þ.e. að kynlíf með börnum sem orðin væru 14 ára væri refsilaust, að því gefnu að barnið hefði ekki verið tælt til verkn- aðarins. Rökin fyrir þessu voru sam- kvæmt greinargerð að rannsóknir sýndu að unglingar á Íslandi byrjuðu fyrr að stunda kyn- líf en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum. Þá segir orðrétt: „Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á þessari staðreynd breytir það ekki því að nauð- synlegt er að taka tillit til þessa veruleika þegar af- staða er tekin til þess hvernig háttað verði refsi- ákvæðum vegna kynferðisbrota gegn börnum.“ Getur verið að viðhorf íslenskra ungmenna til kynlífs litist m.a. af því að þau eru álitin fullgildir bólfélagar 14 ára? Sú afstaða sem birtist í tilvitnuð- um orðum, að unglingar á Íslandi byrji fyrr en jafn- aldrar þeirra á hinum Norðurlöndunum að stunda kynlíf og það réttlæti lægri viðmiðunaraldurs- mörk að þessu leyti er röng og vinnur gegn barna- vernd og ekki til þess fallin að hamla gegn kynferð- islegri misnotkun barna. Er það ekki ein- mitt þessi hugsunarháttur sem við viljum breyta og stuðla að því að boðskapurinn verði: Börn og kynlíf fara ekki saman. Ein leiðin til þess er að hækka aldursmörk- in, þannig að fullorðnir geti ekki stund- að kynlíf með börnum fyrr en þau hafa að minnsta kosti lokið fermingarfræðslu! Með því að hækka aldursmörkin, þó ekki sé nema um eitt ár, höfum við gefið þau skilaboð enn skýrar en áður að börn og kynlíf eigi ekki samleið. Það er fagnaðarefni að allsherjar- nefnd skuli leggja til að aldursmörkin verði hækkuð. Með því er komið til móts við sjón- armið sem ítrekað hafa komið fram í umræðu um þessi mál. Þá er ekki síst komið til móts við vilja ungmennanna sjálfra, en fram kemur í áliti alls- herjarnefndar að niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem gerð var meðal ungmenna á Íslandi, sýni að ungt fólk hér á landi byrjaði seinna að lifa kynlífi en áður hafði verið talið og að meira en helmingur svarenda vildi hækka kynferðislegan lágmarksald- ur, einkum stúlkur. Þetta hefur Barnaverndarstofa talið að mætti túlka sem ósk stúlkna um aukna vernd. Höfundur er kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Kynferðislegur lágmarksaldur Ég sat á þingbekknum og hlust-aði á sakleysislega umræðu um landbrot, þar sem Guðni land- búnaðarráðherra spígsporaði í kringum ræðustólinn eins og maður gerir heima hjá sér meðan maður bíður eftir kvöldmatn- um eða fréttunum. Allt í einu datt einhverjum þingmannin- um í hug að fara að fílósofera um hvað yrði með landið, ef áin tæki upp á því að breyta um farveg. Ég tala nú ekki um ef árfarvegur- inn upprunalegi var landamerkið sjálft, sagði þingmaðurinn. Hver er þá eigandi að breyttu lands- lagi, breyttum landamærum? Það var þá sem ég fór, ásamt fleirum, að spyrja Guðna, úr því hann var staddur þarna á staðnum, hvað liði efndum stjórnarflokkanna um að setja það í stjórnarskrána að fiskistofnarnir væru sameign þjóðarinnar? Spurning, alveg út úr kú og allavega óralangt frá ár- farveginum og landbrotinu. En Guðni var óþolinmóður og vék sér hvatlega í ræðustól og upplýsti þessa tvo eða þrjá sem staddir voru í þingsalnum að það stæði ekki á þeim framsóknarmönnun- um að efna sín loforð og honum var svo mikið niðri fyrir að sjálf- ur formaður flokksins, sem rakst þarna inn fyrir hreina tilviljun, sá ástæðu til að gefa samskonar yfirlýsingu og sagði hans menn mundu berjast fyrir því af öllu afli að tryggja sameignina. Þetta hratt atburðarásinni af stað og blóðið rann framsókn- armönnum til skyldunnar og Sjálfstæðisflokkurinn vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið næstu dagana. Þeir höfðu kurteis- lega tekið þetta mál út af dag- skrá stjórnarskrárnefndarinn- ar í anda þeirrar hugsjónar að sérhagsmunir ganga fyrir al- mannahagsmunum. Ég segi nú ekki beinlínis að ég hafi sam- viskubit af því að setja þetta yf- irlætisfulla bræðralag í upp- nám en ég fékk þó pínulitla sekt- arkennd þegar ég sá nokkrum dögum síðar að þeir hefðu hnoð- að saman texta að nýju stjórn- arskrárákvæði sem samið hafði verið, að því er virtist, í fullri alvöru. Ég þurfti að lesa hann þrisvar sinnum yfir áður en ég skildi hann. Það átti sem sagt að tryggja náttúruauðlindirn- ar sem þjóðareign, þó með þeim fyrirvara að ekki skyldi haggað við þeim eignarrétti sem skap- ast hefði hjá öðrum á slíkum auðlindum eða þeim sem stunda fiskveiðar á grundvelli veiði- heimilda. Huggun var þó í því að það voru fleiri sem þurftu að leggj- ast yfir þennan texta og jafnvel útlærðir stjórnlagafræðingar hafa komist að sömu niðurstöðu og ég og reyndar flestir aðrir vitibornir menn, sem sé þeirri að tillagan var tautologia sem þýðir á íslensku að ákvæðið stangast á við sjálft sig. Svo fór ég á ráðstefnu í Há- skólanum til að hlusta á sérfræð- ingana útlista þetta fyrir mér og öðrum almenningi og niðurstað- an var sú sama: bastarður var á leiðinni í stjórnarskrána. Ein- hver utan úr sal hélt því fram að það væri sósialismi ef þjóð- in ætti eitthvað og framkvæmda- stjóri útvegsmanna spurði hvort Alþingi ætlaði virkilega að taka kvótann af útgerðinni og benti á Eirík Tómasson, útgerðarmann, sem er meðal fórnarlambanna, og framkvæmdastjórinn sagði að Eiríkur ætti kvóta fyrir tuttugu og eitthvað milljarða og hvort það yrði tekið af honum bóta- laust? Það fór kliður um salinn og menn sáu strax í hendi sinni að þjóðin gæti ekki verið svona vond við Eirík að rýja hann inn að skinninu með svona vit- lausri stjórnarskrá. Hann hlýt- ur að eiga það sem hann á, fjand- inn hafi það. Og um leið og þeir kumpánarnir frá LÍÚ blökuðu við sér, fór hrollur um mig og mér varð ljóst að eignarhald- ið á þessum blessaða fiski og allri þessari óveiddu auðlind var löngu gengið úr greipum þjóðar- innar. Ég hefði aldrei átt að stilla Guðna mínum upp við vegg. Þá hefði Framsókn þagað. Þá hefði þetta fjárans frumvarp aldrei litið dagsins ljós og þjóðin hefði ekki farið að trúa því að hún ætti eitthvað sem hún á ekki. Það eru menn suður með sjó og norður í landi sem eiga þessa auðlind og hvað vill þá þjóðin upp á dekk, þegar hún getur aldrei orðið eig- andi að neinu nema vera bæði sósíalisk og sovésk? Af hverju erum við að þessu veseni? Af hverju erum við amast við því þegar valinkunnir heiðursmenn hafa eignarhald á þeim verð- mætum sem máli skipta? Fiski. Sem öðru. Það eru þeir, þess- ir örfáu, þessir ríku, sem eiga þetta allt, sem verður ekki af þeim tekið og þjóðin á ekkert og getur aldrei átt neitt. Nema það sem úti frýs. Enda sýnist manni að það sé niðurstaðan. Þökk sé sérhags- munagæslu sjálfstæðismanna. Og ófrágenginni stjórnarskrá. Þjóðin á það sem úti frýs Morgunverður frá kl. 9:00 - 11:00 195,- Þú átt allt gott skilið! mánudaga - laugardaga verslun opnar kl. 10:00 Í vikunni voru haldnir aðalfundir tveggja af stærstu fyrir- tækjum landsins Exista og Kaupþings. Í ræðum stjórnar- formanna þessara félaga birtust óskir um að framtíðarsýn íslenskra stjórnvalda yrði með þeim hætti að þessi öflugu félög ættu hér höfuðstöðvar um langa framtíð. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, og Sigurður Ein- arsson, stjórnarformaður Kaupþings, eiga saman farsæla vegferð að baki í íslensku viðskiptalífi. Þeir hafa báðir leitt fyrirtæki frá því að vera smá og veikburða íslensk fyrirtæki í það að vera stór fyrirtæki á íslenskan mælikvarða og sýnileg berum augum á Evr- ópukorti viðskiptanna. Þessi vegferð er töluvert afrek og það sem sætir undrun er að þeir eru ekki þeir einu. Á skömmum tíma hefur nokkur hópur fólks náð markverðum árangri í uppbyggingu alþjóðlegra fyrir- tækja. Þessi árangur getur orðið uppspretta ótrúlegra tækifæra fyrir land og þjóð, ef rétt er á málum haldið. Íslendingar eru orðin verulega efnuð þjóð og fjármálageirinn er ný stóriðja í landinu sem þúsundir fjölskyldna byggja afkomu sína á. Sem betur fer hefur orðið umræða meðal stjórnmálamanna um að hlúa að umhverfi slíkra fyrirtækja og horfa fram á veg- inn til að skapa jarðveg sem nærir slíka starfsemi. Samt er eins og víða skorti skilning á mikilvægi þess að horfa til þess að nýta þetta einstaka tækifæri. Slíkri stöðu hefur áður verið klúðrað og nærtækast er að líta til hinnar auðugu Argentínu við upphaf síð- ustu aldar. Stærð nokkurra íslenskra fyrirtækja er komin að þeim mörk- um að þau munu ekki vaxa að neinu marki nema alþjóðlegir fjár- festar leggi fé í þau. Til þess að það gerist þarf að ríkja traust til umhverfisins sem þau starfa í. Í máli bæði Sigurðar og Lýðs kom fram ríkur vilji til þess að halda höfuðstöðvum fyrirtækjanna á Íslandi með tilheyrandi hagsauka fyrir samfélagið í formi skatta og veltu af vellaunuðum störfum og þjónustu sem slík starfsemi nýtir sér. Sigurður Einarsson fór fyrir nefnd sem gerði tillögur um hvern- ig gera mætti Ísland að fjármálamiðstöð í framtíðinni og laða að alþjóðlega fjárfesta. Í ræðu sinni á aðalfundi Kaupþings sagði Sig- urður: „Eftir því sem fjármálafyrirtæki verða alþjóðlegri, þurfa þau að hafa möguleika á að færa rök fyrir því að hafa höfuðstöðv- ar sínar í Reykjavík til þess að geta sannfært þá fjárfesta sem leggja enga merkingu í íslenskar rætur fyrirtækjanna.“ Þetta er kjarni málsins og mikilvægt fyrir stjórnmálamenn sem vilja taka af ábyrgð á framtíð samfélagsins að gera sér grein fyrir því. Þeirra hlutverk er að móta komandi kynslóðum farsæla fram- tíð og möguleika í alþjóðavæddum heimi. Í slíku samhengi verða menn að horfa bæði af meiri dýpt og meiri breidd en raunin hefur verið upp á síðkastið þegar smíðaðar eru reglugerðir og frum- varpsdrög sem lýsa takmörkuðum skilningi á því sem er í húfi. Í því samhengi þurfa menn einnig að horfa til hagsmuna lengri framtíðar þegar metnar eru grundvallarspurningar um hvar í hópi þjóða við viljum standa og hvers konar gjaldmiðil við vilj- um hafa til langrar framtíðar. Víðsýnin ræður velferð framtíðar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.