Fréttablaðið - 17.03.2007, Qupperneq 28
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 550 5000.
Fyrsti Porsche-bíllinn kynntur
Móðir okkar og amma,
Sigurrós Lárusdóttir
húsmóðir, Vesturgötu 50A,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi 7. mars.
Útförin fer fram frá Grafarholtskirkju mánudaginn
19. mars klukkan 13.00.
Þorsteinn Viðar Antonsson
Sigríður Eygló Antonsdóttir
Kolbrún Lilja Antonsdóttir
Grétar Örn Antonsson
Atli Viðar Þorsteinsson
Katrín Edda Þorsteinsdóttir
Helga Björk Stefánsdóttir
Valdís Ösp Ingvadóttir
Lúcinda Árnadóttir
Eyrún Rós Árnadóttir
Vera Grétarsdóttir
Anton Ívarsson
Benedikt Ívarsson
og Anna Birna Ívarsdóttir
Sigríður Jónasdóttir
Asparfelli 2, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn
20. mars kl. 13.00.
Hjörtur Jónasson
Helgi Sigurður Jónasson
Kristján Össur Jónasson
Páll Jónasson
og fjölskyldur þeirra.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Ástu Bjarnadóttur
Norðurbrún 1.
Margrét Kjartansdóttir
Björg Kjartansdóttir Freysteinn G. Jónsson
Sæunn Kjartansdóttir Guðmundur Jónsson
Ásta Kjartansdóttir Vigfús Erlendsson
og barnabörn.
Þökkum af hlýhug auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Ólafs Theodórssonar
Esjubraut 19, Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B2 á
Landspítalanum Fossvogi fyrir góða aðhlynningu.
Júlía Baldursdóttir
Baldur Ólafsson Auður Líndal Sigmarsdóttir
Ellen Ólafsdóttir Guðjón Theódórsson
Ragnhildur Í. Ólafsdóttir Birgir Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Helgi Hafliðason
Hátúni 23, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn
19. mars kl. 13.00.
Helgi Helgason Anna Kristín Hannesdóttir
Dagbjört Helgadóttir Þorkell Hjaltason
Júlíus B. Helgason Hildur Sverrisdóttir
Hafliði Helgason Barbara Helgason
Ragnar Hauksson Josephine Pangolamus
afabörn og langafabörn.
“Hross eru mun færri
nú en fyrstu árin sem
ég fór á fjall en þeim
fjölgaði mjög um það
leyti sem mæðuveikin
geisaði.”
„Dagurinn byrjar á því að mér er boðið
í fermingu litlu frænku minnar en svo
skilst mér að samstarfsmenn mínir á
FM 957 ætli að bjóða mér óvænt út að
borða á Argentínu í kvöld,“ segir út-
varpsmaðurinn Heiðar Austmann sem
er þrítugur í dag.
Heiðar ætlar að halda veislu fyrir
vini og ættingja en vill ekki gefa upp
staðsetningu veislunnar. Hann hefur
afþakkað allar gjafir en beðið fólk um
að leggja pening inn á reikning Félags
krabbameinssjúkra barna ef það telur
sig knúið til að gleðja hann í tilefni dags-
ins. „Ég ætla ekki að halda einhverja af-
mælisgjafaveislu heldur aðeins partí
fyrir vini og ættingja. Ég er búinn að fá
góða menn til að halda uppi fjörinu eins
og Einar Ágúst, Gunna Óla, Magna og
fleiri sem munu troða upp á meðan þeir
hafa orku til,“ segir Heiðar og bætir við
að hann sé ekki með á hreinu hvernig
honum lítist á að verða þrítugur. „Suma
daga er ég ánægður með þetta en aðra
daga kvíði ég fyrir. Þetta er samt bara
tala og á meðan maður er ungur í anda
þá skiptir hún ekki máli. Á svona dögum
lítur maður um öxl á það sem maður
hefur afrekað og síðustu tíu ár hafa
verið virkilega viðburðarík hjá mér. Ég
hef fengið að gera margt og er reynsl-
unni ríkari svo ég er tiltölulega sátt-
ur við aldurinn. Það er samt spurning
hvort ég verði það enn þá þegar dagur-
inn er liðinn og allir hættir að óska mér
til hamingju.“