Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 44

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 44
 17. MARS 2007 LAUGARDAGUR2 fréttablaðið fermingar Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona skartaði nýstárlegri greiðslu á fermingardaginn sem allar mæður öfunduðu hana af. Vegna mikilla veikinda og fjárhags- örðugleika á heimili Lilju Guðrún- ar Þorvaldsdóttur varð að fresta fermingu hennar fram á haust. „Mamma hafði verið að berjast við krabbamein og pabbi hafði lent í slysi. Á þessum tíma voru ekki komnar neinar tryggingar og því var róðurinn mjög erfiður,“ útskýr- ir Lilja Guðrún sem fór að vinna í fiski um sumarið til að eiga fyrir fermingunni. „Svo passaði ég öll kvöld sem ég gat fyrir konurnar í nágrenninu,“ segir Lilja Guðrún, hlær góðlátlega og minnist ferm- ingardagsins með mikilli gleði þegar hann loks rann upp. „Systir mín greiddi mér á nýstárlegan hátt svo það vakti eft- irtekt og aðdáun foreldra annarra fermingarbarna,“ segir Lilja Guð- rún en á þessum tíma voru íburðar- miklar greiðslur í hávegum hafðar en Lilja skar sig úr. „Systir mín setti í mig spöng sem á voru blóm og mamma saumaði eitthvað til við- bótar í hana. Hún sneri henni öfugt og þetta kom út eins og rosalega flott hárskraut,“ segir Lilja Guðrún og man vel þegar hinar mæðurnar inntu hana eftir því hvert hún hefði farið í hárgreiðslu. „Þegar ég svar- aði því til að systir mín hefði greitt mér þótti það ekki lengur jafnfínt,“ segir Lilja Guðrún og hlær. Ferm- ingarbörnin í Kópavogskirkju í árganginum 1950 voru það mörg að fresta þurfti altarisgöngu sumra. Það kom sér því ágætlega fyrir Lilju að vera með hárgreiðsludömu heima. „Ég var því alveg jafnfínt greidd í altarisgöngunni eins og í fermingunni.“ Lilja Guðrún skartaði fallegum dimmbláum kjól með ofnu rósa- mynstri í fermingarveislunni. „Mamma saumaði þennan kjól enda saumaði hún allt á okkur krakkana. Pabbi var sjómaður þegar ég var lítil og keypti alltaf tískublöð og efni á siglingum og mamma saum- aði upp úr þessu bæði jakkaföt, kjóla og úlpur,“ útskýrir Lilja Guð- rún en veislan var haldin heima hjá föðursystrum hennar sem bjuggu saman í Sólheimum. Lilja Guðrún fékk góðar gjafir þennan dag. „Til dæmis ofboðslega fallegt íslenskt silfurarmband frá föðursystrum mínum sem ég geng með enn þann dag í dag. Seinna þegar ég var orðin eldri og farin að vinna fyrir mér keypti ég mér hring í stíl. Svo fékk ég silfurháls- men með steini sem ég geng líka með. Þetta er manni mjög kærkom- ið,“ segir Lilja Guðrún sem fannst hún einstaklega fín eftir ferming- una enda fékk hún líka „babydoll“ náttföt, hárþurrku og náttslopp. „Á þessum tíma var stórkostlegast af öllu að fá gullúr og það fékk ég frá foreldrum mínum og systkinum.“ Lilju Guðrúnu blöskrar íburður fermingarveislna í dag. „Ég á sjálf tvær dætur sem hafa fermst en veislur þeirra voru fallegar og ein- faldar. Fermingardagurinn líður manni aldrei úr minni þegar maður tekur mikinn þátt í að undirbúa hann og gerir sitt til að hann geti orðið að veruleika.“ solveig@frettabladid.is Vann fyrir fermingunni Lilja Guðrún með armbandið góða sem hún fékk í fermingargjöf og gengur með enn þann dag í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Hér hjá Gutenberg erum við með sex eða sjö tegundir boðs- korta sem fólk getur valið fyrir eigin myndir og texta. Svo eigum við líka sýnishorn af kortum sem hafa verið fram- leidd í gegnum tíðina og úr þeim getur fólk valið líka. Þannig er auðvelt að endurgera kort sem hafa verið gerð áður. Viðskiptavinir eiga einnig kost á því að hanna boðskortið sjálf- ir eða í samvinnu við hönnuði okkar en svo sjáum við um að ganga frá þeim og prenta þau út. Kortin eru sniðin að þörfum hvers og eins þannig að það er allt hægt í þessu,“ segir Sigurð- ur Björn Blöndal markaðs- stjóri. Hjá Gutenberg eru einnig fáanlegar fallegar gestabækur með áletrun að eigin vali, þar má láta prenta á servíettur og einnig er boðið upp á þá þjón- ustu að senda kortin út. Þetta þykir mörgum góður kostur því oft er í mörgu að snúast fyrir fermingar. Varðandi fyrirvara á prent- un boðskorta segir Sigurður Björn að ágætt sé að fólk gefi sér tvo til þrjá daga, en ef allt er komið á síðasta snúning í fermingarundirbúningi þá er hugsanlega hægt að bjarga fólki fyrir horn. „Mörgum þykir til dæmis mjög hentugt að láta okkur sjá um að senda kortin út. Þá kemur viðskiptavinurinn með excel-skjal þar sem í er að finna nöfn gestanna og heimilisföng. Þetta er svo prentað á bakhlið boðskortsins og við sendum það til viðkomandi. Allt sem sparar fólki tíma við undirbún- ing ferminga er yfirleitt kær- komið,“ segir Sigurður Björn. Hvað varðar kostnað á slíkri prentun má nefna sem dæmi að 21x10,5 stórt boðskort með áletrun á annarri hliðinni kost- ar 15.000 krónur séu fimmtíu kort keypt. Innifalið í verðinu er virðisaukaskattur og öll umsýsla við kortagerðina. Einn- ig er hægt að hafa samband við prentsmiðjuna og biðja um að fá tilboð send með tölvupósti. Meira um Gutenberg og þjónustu fyrirtækisins má lesa á vefsíðunni: www.gutenberg. is. Boðskort eftir þörfum Sigurður Björn Blöndal hjá Gutenberg-prentsmiðjunni segir marga foreldra kjósa að fá alla þjónustu í kringum prentun á einum stað, enda í mörgu að snúast við fermingarundirbúning. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.