Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 66

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 66
 17. MARS 2007 LAUGARDAGUR24 fréttablaðið fermingar Fermingarundirbúningurinn hjá Védísi Köru Ólafsdóttur hófst síð- astliðið haust með messusókn og fermingarfræðslu og hefur undir- búningurinn að veisluhöldunum sjálfum staðið yfir í svipaðan tíma. „Mamma byrjaði löngu fyrir jól í veisluundirbúningi en ég byrjaði nú bara að pæla í þessu fyrir um viku síðan,“ segir Védís sem fermist í Árbæjarkirkju hinn 5. apríl næst- komandi. Fermingarfræðslan er að sögn Védísar ekki í mestu uppáhaldi hjá krökkunum. „Við þurfum að sækja tíu mess- ur fram að fermingu og það er svo- lítið leiðinlegt,“ segir Védís Kara sem þó segist ekki vita af neinum sem ekki ætlar að láta ferma sig og hjá henni kom aldrei annað til greina. „Við frændsystkinin höfum fermst hvert á eftir öðru og nú er röðin komin að mér svo ég gat ekki slitið þessa keðju.“ Kjóllinn sem Védís fermist í er hvítur með silfruðum blómum og verður hún í stíl við vinkonurnar Heiðdísi og Ólöfu sem fermast með henni. „Við verðum allar í eins kjól- um og allar með appelsínugult þema í veislunni,“ segir Védís brosandi og segir litinn upprunninn af heima- síðu vinkvennanna. Védís er þó einnig með rautt þema en hún fær tvær veislur sama dag, eina hjá mömmu og hina hjá pabba. Aðspurð segir Védís Kara flest fermingarsystkinin meira spennt fyrir gjöfunum frekar en trúarlegri hlið fermingarinnar en sjálf er henni eiginlega alveg sama um gjaf- ir. „Ég er kannski svolítið skrítin því mér er eiginlega alveg sama hvað ég fæ í fermingargjöf. Ég er mest spennt fyrir að hitta allt fólkið sem kemur til að fagna ferming- unni með mér,“ segir Védís Kara. rh@frettabladid.is Hlakkar til að hitta gestina Ó, faðir gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið til hjálpar hverjum hal og drós sem hefur villst af leið. Ó, faðir gjör mig blómstur blítt sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. Ó, faðir gjör mig ljúflingslag sem lífgar hug og sál, sem vekur sól og sumardag en svæfir storm og bál. Ó, faðir gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf uns allt það pund sem Guð mér gaf ég gef sem bróðurarf. Ó, faðir gjör mig sigursálm eitt signað trúarlag sem afli blæs í brotinn hálm og breytir nótt í dag. Matthías Jochumsson þýddi Bæn barnsins Védís Kara Ólafs- dóttir hlakkar mest til að hitta allt fólkið sem ætlar að fagna fermingunni með henni í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í Kirkjuhúsinu við Laugaveg má nálgast ýmsa hluti sem gott er að eiga fyrir ferminguna. Þar ber hæst sálmabókina sem flest ferming- arbörn þurfa að eiga og oft er hún merkt þeim í gulli. Gestabók er nauðsynleg til að halda utan um minningar dagsins. Í Kirkjuhúsinu fæst gestabók sem einnig er útbúin vösum fyrir myndir og kort. Litla bænabókin hentar vel í vasa og gott er að grípa í hana. Heillaóskir á ferm- ingardaginn Gestabók 3.990 með gyllingu, sálmabók 1.740, með gyllingu 2.870 og Litla bænabókin, 1.585 kr. Opið 10:00 - 20:00 virka daga | Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | www.IKEA.is TROMSNES rúm B90xL200 cm 14.900,- BRYNE himnasæng Ø56, L230 cm 1.490,- HEMNES kommóða B110xD51, H97 cm 16.950,- Allt fyrir svefnherbergið þitt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.